Fréttablaðið - 28.11.2005, Síða 26
28. nóvember 2005 MÁNUDAGUR4
Kristjáni Þórði Hrafnssyni
rithöfundi þykir vænt um hús
gamla Borgarbókasafnsins.
Hann hefur alltaf verið mikið
fyrir bækur og var rétt í þessu
að gefa út aðra skáldsögu sína,
Hinir sterku.
Kristján Þórður Hrafnsson rithöf-
undur hefur lengi tengst bókum.
Það kemur því kannski ekki á óvart
að eftirlætishús hans sé gamla
Borgarbókasafnið í Þingholtun-
um. ,,Mér þykir ákaflega vænt um
húsið því þangað kom ég svo oft
og fékk lánaðar bækur til að lesa,“
segir Kristján, sem kveðst alltaf
hafa verið mikill bókaormur. ,,Það
var einhver sérstök stemning við
að koma inn í þetta gamla og virðu-
lega hús.“
Kristján segist hafa gaman af
fallegum byggingum. ,,Mér finnst
sérstaklega skemmtilegt að skoða
gömlu Þingholtin því þar er svo
mikið af fallegum timburhúsum.
Umhverfið er vinalegt og mann-
legt og ég geng þar oft um þegar
ég er að hugsa og velta einhverju
fyrir mér.“
Kristján lætur sér ekki nægja
að lesa bækur heldur skrifar þær
einnig sjálfur. Hann var einmitt
að gefa út skáldsöguna Hinir
sterku fyrir fáeinum dögum.
,,Þetta er dramatísk skáldsaga
sem fjallar um átök milli fólks.
Hún spyr spurninga um samfélag-
ið, stjórnmálaskoðanir og lífshug-
myndir okkar en fjallar jafnframt
um mannleg gildi og góðu hlutina
í lífinu. Þetta er verk um glímu
við sorg og sársauka en fjallar
líka um trú á lífið,“ segir Kristján.
Fyrri skáldsaga hans, Hugsanir
annarra, var ástarsaga en Kristj-
án segir síðara verkið kannski
nokkru breiðara og víðfemara.
Blaðamaður er forvitinn um
næstu verkefni. ,,Það er margt í
vinnslu sem enn er of snemmt að
tala um núna,“ segir Kristján að
lokum.
mariathora@frettabladid.is
Undraveröld bókanna
Kristján Þórður Hrafnsson fór reglulega á gamla Borgarbókasafnið þegar það var og hét.
...um heilsu
á þriðjudögum í Fréttablaðinu.
Hafið samband við auglýsingadeild „Allts“
Síminn er 550-5000
markvissar auglýsingar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
PR
E
28
02
3
0
4/
20
05