Fréttablaðið - 28.11.2005, Page 59

Fréttablaðið - 28.11.2005, Page 59
MÁNUDAGUR 28. nóvember 2005 23 „Við stefnum að því að vera öflugt félag, með dúndrandi kappreiðar og reyna að beita okkur fyrir ýmsum hagsmunamálum skeið- reiðmanna og ræktenda,“ segir Sigurður Óli Kristinsson, stjórn- armeðlimur í nýstofnuðu Skeið- mannafélagi. Lengi hefur verið í bígerð að koma á slíku félagi en það varð að veruleika þegar nýtt félag var stofnað í félagsheimili hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi í vikunni. Markmiðið félagsins er að efla kappreiðar og skeiðíþrótt- ina og reyna að gera henni hærra undir höfði. Fyrirhuguð er móta- röð næsta sumar og efnt verður til kappreiða á sumarkvöldum. Fyrst um sinn verða mótin hald- in á Selfossi en ekki útilokað að víðar verði farið eftir því sem starfið vex og dafnar. Stofnfundurinn var mjög vel sóttur og komu flestir af Suð- urlandi. „En við fengum bar- áttukveðjur að norðan frá skeið- félögum í hestamannafélaginu Náttfara,“ segir Sigurður Óli, sem telur aukinn áhuga vera á skeiði meðal hestamanna. Því sé best lýst í því að þær skeiðkapp- reiðar sem haldnar voru í lok sumars hafi verið frábærlega vel sóttar. ■ Skeið til vegs og virðingar Á FLUGSKEIÐI Sigurður Óli er sjálfur liðtækur skeiðreiðmaður. Kaleikar í kirkjum Kjalarnes- prófastsdæmis verða til sýnir í Vídalínskirkju í Garðabæ á aðvent- unni. Undanfarin ár hefur verið haldin listasýning í kirkjunni á aðventunni og hefur sýningarefni verið af ýmsum toga. Í ár urðu fyrir valinu kaleikar úr flestum kirkj- um prófastsdæmisins en þeir eiga margir merka sögu. Hinir elstu þeirra eru nokkur hundruð ára en sá yngsti var gerður á síðasta ári. Sýningin verður opin frá fyrsta sunnudegi í aðventu 27. nóvember fram til 28. desember frá kl. 13 til 19. Kaleikar til sýnis VÍDALÍNSKIRKJA Kaleikar úr Kjalarnespróf- astsdæmi verða til sýnis á aðventunni. ÍSHESTUR Hátíðin Ice World fór fram í vik- unni í Lubeck í Þýskalandi. Hér mótar hinn írski Fergus Mulvany hest úr ís en þema hátíðarinnar var Konungdæmi dýranna. ANDLÁT Njáll Breiðdal, frá Jörfa, Stampbrogatan 20, 681 32 Kristinehamn, Svíþjóð, lést laugardaginn 12. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þórir Maack Pétursson lést sunnudag- inn 6. nóvember. Kveðjuathöfn hefur farið fram. Kristín Jónsdóttir, Heiðargerði 22, Reykjavík, lést miðvikudaginn 16. nóvem- ber. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.