Fréttablaðið - 28.11.2005, Side 63
MÁNUDAGUR 28. nóvember 2005 27
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
VEGLEGI
PAKKINN
200.000 kr. jólaafsláttur!
Tegund Ver› me› afslætti
Pathfinder XE beinskiptur 3.590.000,-
Pathfinder SE beinskiptur 3.950.000,-
Pathfinder SE sjálfskiptur 4.090.000,-
Pathfinder LE sjálfskiptur 4.590.000,-
Pathfinder LE IT 4.790.000,-
N†R PATHFINDER ME‹ TVÖ HUNDRU‹ fiÚSUND KRÓNA
AFSLÆTTI OG HUNDRA‹ fiÚSUND KRÓNA JÓLAGJÖF Í
KAUPBÆTI. A‹EINS 20 BÍLAR Á fiESSU TILBO‹I!
PATHFINDER
JÓLA–NISSAN
300.000 KALL Í JÓLAGJÖF!
SKIPT_um landslag
A‹EINS 20 BÍLARÁ fiESSU TILBO‹I!
KAUPAUKI100.000 kr.GJAFABRÉF HJÁ
Dætur hafsins, erótískur krimmi eftir Súsönnu Svavarsdóttur, er
kominn út hjá JPV útgáfu. Súsanna
Svavarsdóttir fer
ótroðnar slóðir
í sinni fyrstu
glæpasögu. Hér
er á ferð æsi-
leg, blóðheit
spennusaga sem
ögrar viðteknum
gildum og þenur
taugar lesandans
til hins ýtrasta.
JPV ÚTGÁFA hefur sent frá sér Töfrabragðabókina eftir Jón Víðis
töframann. Í
þessari skemmti-
legu bók Jóns
Víðis er að finna
leyndardóminn
á bakvið fjölda
töfrabragða, allt
frá gríngöldrum
til töfra sem
gera áhorfendur
orðlausa.
Frá JPV útgáfu er komin bókin Gæfuspor - gildin í lífinu, eftir
Gunnar Hersvein. Í
Gæfusporum fjallar
Gunnar Hersveinn
um mannkosti og
tilfinningar, stríð og
frið og hamingju
og rósemd af hug-
kvæmni og varpar
oft óvæntu ljósi á
rótgróin hugtök.
Stórvirkið Jörðin – myndrænn leiðarvísir um reikistjörnu okkar, er
komið út hjá JPV útgáfu. Jörðin er tíma-
mótaverk þar sem saman fara frábærar
ljósmyndir og vandaður texti, unninn
af sérfræðingum. Hér er því hægt að
kynnast mörgum sérkennilegustu og
mögnuðustu
stöðum jarðar
- allt frá brenn-
heitri Atacama-
eyðimörkinni
til ógnvænlegra
eldgosa Etnu
og frá ánni Níl
til víðáttu Kyrra-
hafsins.
NÝJAR BÆKUR
Einleikur Auðuns Blöndal,
Typpatal, í leikstjórn Sigurð-
ar Sigurjónssonar, snýst eins
og nafnið gefur til kynna um
typpi og allt sem tengist þeim.
Einleikurinn var saminn af
Richard Herring sem mótvægi
við hinum vinsælu Píkusög-
um. Er hann byggður á könnun
sem höfundurinn gerði á netinu
og var beint jafnt til karla og
kvenna.
Sýningin með Audda í aðal-
hlutverki var nokkurs konar
blanda af uppistandi og fyrir-
lestri. Þar skoðaði hann með
hjálp skjávarpa svörin við
hinum ýmsu spurningum sem
lagðar voru fram í könnuninni,
sem margir hafa eflaust spurt
sjálfa sig að en ekki þorað að
spyrja aðra. Þar komu fram
ýmis skondin svör sem leiddu
margt áhugavert í ljós varðandi
kynlífshegðun almennings.
Auddi talaði einnig um að nú
á dögum skömmuðust karlmenn
sín fyrir typpin sín og hvatti þá
til að hætta því snarlega, enda
voru þau stolt manna og yndi fyrr
á öldum. Vangavelturnar um það
hvort stærðin skipti máli voru
einnig skemmtilegar. Reyndi
hann hvað eftir annað að stappa
stálinu í karlmenn og hvatti hann
einnig konur til að sýna körlum
meiri virðingu þegar kemur að
typpunum þeirra.
Auddi sýndi fádæma yfirveg-
un í frumraun sinni á leiksviði.
Greinilegt er að hin gífurlega
reynsla sem hann hefur úr sjón-
varpinu hjálpar honum mikið.
Ekki má gleyma danstöktum
hans, því allt ætlaði um koll
að keyra í salnum þegar hann
brá sér í Michael Jackson-gír-
inn og braut þannig sýninguna
skemmtilega upp. Langflestir
brandararnir hittu í mark og
átti Auddi auðvelt með að koma
þeim frá sér á réttan hátt.
Þýðanda verksins, Jóni Atla
Jónassyni, hefur tekist vel upp
í því að færa Typpasögurnar í
íslenskt umhverfi og fór text-
inn aldrei yfir strikið í dóna-
skap. Ekki má heldur gleyma
þátttöku Audda, Sigga Sigur-
jóns og Hallgríms Helgasonar í
þýðingunni.
Það sem helst mátti finna að
sýningunni var sú staðreynd að
hléið, sem átti að vera í 15 mín-
útur, teygðist upp í 35 mínútur
og voru margir orðnir ókyrrir
þegar Auddi mætti loksins aftur
á sviðið. Einnig hefði Nasa mátt
vera reyklaus með öllu, rétt
eins og venjan er í leikhúsum.
Mengað andrúmsloftið gæti
orðið til þess að letja reyklausa
áhorfendur til að sjá þessa ann-
ars skemmtilegu sýningu.
Freyr Bjarnason
Stálinu stappað í íslenska karlmenn
EINLEIKURINN TYPPATAL MEÐ AUÐUNNI
BLÖNDAL:
NASA 24. NÓVEMBER
Niðurstaða: Auðunn Blöndal stóð sig með
mikilli prýði í frumraun sinni á leiksviði. Ljóst
er að reynslan úr sjónvarpinu kemur honum
að góðum notum.
�����������
�� �����������������
�������� ���
��������