Fréttablaðið - 28.11.2005, Síða 64

Fréttablaðið - 28.11.2005, Síða 64
 28. nóvember 2005 MÁNUDAGUR28 Einhver allra skemmtilegasta verðlaunaafhending ársins fór fram á Ölveri á fimmtu- dagskvöldið en þá var Gullkindin afhent. Verðlaunin eru ætluð þeim sem hafa staðið sig verst í íslensk- um fjölmiðlum. Það eru Tvíhöfða- bræðurnir Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr sem eiga heiðurinn af þessari hátíð en í ár var það morgunþátturinn Capone á X-Fm sem sá alfarið um að allt færi fram samkvæmt settum reglum. Alþjóð gafst þess kostur að kjósa á heimasíðu útvarpsstöðvar- innar en vægi atkvæða almúgans hafði sextíu prósenta vægi til móts við dómnefndina. Meðal helstu sigurvegara má nefna að útvarpsþátturinn Zúúber var val- inn verstur í sínu fagi, Jón Ingi Hákonarson, kynnir Bachelorsins, var verstur allra sjónvarpsmanna en þátturinn fékk Gullkindina sem versti raunveruleikasjón- varpsþátturinn. Eiríki Jónssyni, blaðamanni á DV og þáttastjórnanda hjá NFS, voru afhent heiðursverðlaun Gull- kindarinnar. „Ég lít á þetta sem mikinn heiður,“ sagði Eiríkur þegar hann var inntur eftir sínum viðbrögðum. „Þetta eru verðlaun sem eru veitt af þeim sem standa á móti straumnum en eru ekki hluti af kerfinu,“ segir hann ákveðinn. „Um leið og fjölmiðlafólk tekur þátt í leik samfélagsins og valdhafanna þá eru þeir dauðir og ættu að snúa sér að einhverju öðru,“ bætti hann við og sagðist jafnframt taka á móti öllum þeim verðlaunum sem honum væru veitt. - fgg Enginn fór í fýlu á Gullkindinni SILVÍA NÓTT Stóð sig með stakri prýði sem kynnir Gullkindarinnar og var ekki feimin við að sýna Eddustytturnar. JING OG JANG Spurningaþáttur Popp TV var valinn versti þátturinn í íslensku sjónvarpi og bar sigurorð af Kvöldþætti Guðmundar Steingrímssonar. VIÐ ERUM EKKI SVO SLÆM Ritstjórn Hér og nú tekur við Gullkindinni úr hendi Óttars Proppé. Blaðið fékk titilinn „Versta blaðið“. VERSTA LAGIÐ Brynjar Már, útvarpsmaður á FM 957, fékk Gullkindina fyrir íslenska útgáfu sína af lagi James Blunt, Þú ert falleg. ZÚÚBER LÉLEG Morgunþátturinn Zúúber fékk Gullkindina sem versti útvarpsþátt- urinn og stjórnendur þáttarins tóku því ekkert sérstaklega illa. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.