Fréttablaðið - 28.11.2005, Qupperneq 64
28. nóvember 2005 MÁNUDAGUR28
Einhver allra skemmtilegasta verðlaunaafhending ársins fór fram á Ölveri á fimmtu-
dagskvöldið en þá var Gullkindin
afhent. Verðlaunin eru ætluð þeim
sem hafa staðið sig verst í íslensk-
um fjölmiðlum. Það eru Tvíhöfða-
bræðurnir Sigurjón Kjartansson
og Jón Gnarr sem eiga heiðurinn
af þessari hátíð en í ár var það
morgunþátturinn Capone á X-Fm
sem sá alfarið um að allt færi fram
samkvæmt settum reglum.
Alþjóð gafst þess kostur að
kjósa á heimasíðu útvarpsstöðvar-
innar en vægi atkvæða almúgans
hafði sextíu prósenta vægi til
móts við dómnefndina. Meðal
helstu sigurvegara má nefna að
útvarpsþátturinn Zúúber var val-
inn verstur í sínu fagi, Jón Ingi
Hákonarson, kynnir Bachelorsins,
var verstur allra sjónvarpsmanna
en þátturinn fékk Gullkindina
sem versti raunveruleikasjón-
varpsþátturinn.
Eiríki Jónssyni, blaðamanni á
DV og þáttastjórnanda hjá NFS,
voru afhent heiðursverðlaun Gull-
kindarinnar. „Ég lít á þetta sem
mikinn heiður,“ sagði Eiríkur
þegar hann var inntur eftir sínum
viðbrögðum. „Þetta eru verðlaun
sem eru veitt af þeim sem standa á
móti straumnum en eru ekki hluti
af kerfinu,“ segir hann ákveðinn.
„Um leið og fjölmiðlafólk tekur þátt
í leik samfélagsins og valdhafanna
þá eru þeir dauðir og ættu að snúa
sér að einhverju öðru,“ bætti hann
við og sagðist jafnframt taka á
móti öllum þeim verðlaunum sem
honum væru veitt.
- fgg
Enginn fór í fýlu á Gullkindinni
SILVÍA NÓTT Stóð sig með stakri prýði sem
kynnir Gullkindarinnar og var ekki feimin
við að sýna Eddustytturnar.
JING OG JANG Spurningaþáttur Popp TV var
valinn versti þátturinn í íslensku sjónvarpi
og bar sigurorð af Kvöldþætti Guðmundar
Steingrímssonar.
VIÐ ERUM EKKI SVO SLÆM Ritstjórn Hér og
nú tekur við Gullkindinni úr hendi Óttars
Proppé. Blaðið fékk titilinn „Versta blaðið“.
VERSTA LAGIÐ Brynjar Már, útvarpsmaður
á FM 957, fékk Gullkindina fyrir íslenska
útgáfu sína af lagi James Blunt, Þú ert
falleg.
ZÚÚBER LÉLEG Morgunþátturinn Zúúber
fékk Gullkindina sem versti útvarpsþátt-
urinn og stjórnendur þáttarins tóku því
ekkert sérstaklega illa.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI