Fréttablaðið - 28.11.2005, Qupperneq 66
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Idol þetta og Idol hitt. Sæmileg-
asta sjónvarpsefni sem fjölskyld-
an sameinast um að horfa á á
föstudagskvöldum. Frábært. Einn
vinnur. Hinir sitja eftir með sárt
ennið en sá í öðru sætinu eygir
von um að slá líka í gegn. Það gerði
Jón Sigurðsson. Það er þó enginn
gulltryggður í þessum bransa. Það
veit fyrsta Idol-stjarna landsins.
Aðrir verða horfast í augu við þá
bláköldu staðreynd að þeir áttu
ekki heima í þessum bransa. Stað-
reyndirnar tala sínu máli: Ef þú
hefur ekki slegið í gegn án Idols
og nærð því ekki í Idol þá er þetta
búið spil. Nema þú heitir William
Hung. Það eru á hinn bóginn allt-
af einhverjir viðskiptakarlar sem
halda að það sé hægt að græða
endalaust á Idol og þeim keppend-
um sem hafa fengið sínar fimmtán
mínútur af frægð á skjánum.
Það læddist að mér illur grunur
þegar ég frétti af hljómsveit-
inni Heitar lummur. Samansafn
Idol-keppenda sem vill láta hinn
langþráða draum rætast: Að
hafa atvinnu af því að syngja og
skemmta. Þetta varð allt að veru-
leika þegar blessaður diskurinn
fór í spilarann. Hefst á hörmu-
legum flutningi á Disco frisco og
í kjölfarið fylgir hvert stórslysið
af fætur öðru. Á köflum varð ég
pirraður yfir lélegum útgáfum
á annars góðum íslenskum slög-
urum. Lummurnar eru skástar
þegar þær syngja allar saman í
kór en fæstar þeirra hafa burði í
einsönginn. Hvorug söngkvenn-
anna hefur sérstaklega heillandi
rödd og Helgi Þór Arason var
aldrei nema meðalgóður söngvari
í sinni keppni og hefur nákvæm-
lega ekkert í svona útgáfu að gera.
Kalli Bjarni sigraði á sínum tíma
en hefur einhvern veginn glatað
sínum sjarma. Heitar lummur
eru tímasóun og peningaeyðsla
og gott dæmi um það þegar blóð-
mjólka á vinsæl fyrirbæri eins og
Idol-stjörnuleit.
Freyr Gígja Gunnarsson
Lummuleg tímasóun
HEITAR LUMMUR
HEITAR LUMMUR
Niðurstaða: Diskurinn er tímaeyðsla og
peningasóun. Með fullri virðingu fyrir því sem
er gert í framhaldsskólum þá minnir þetta á
hljóðversútgáfu af söngvakeppni þeirra.
Kántrístjarnan Tim McGraw,
Green Day, Destiny´s Child og
Black Eyed Peas hlutu tvenn
verðlaun hver á Bandarísku tón-
listarverðlaununum sem voru
haldin í fyrrakvöld.
Söngkonan Mariah Carey,
sem var tilnefnd til fernra verð-
launa, vann aðeins í flokknum
besti kvenkyns listamaðurinn í
sálar- og R&B tónlist.
Athygli vakti hversu mörg
stór nöfn létu ekki sjá sig á
hátíðinni, þar á meðal Green
Day, Black Eyed Peas, Eminem,
Kelly Clarkson og 50 Cent.
Mörg tónlistaratriði voru
flutt þetta kvöld. Meðal annars
sungu Cyndi Lauper og Sarah
McLachlan saman hið vinsæla
lag Lauper frá níunda áratugn-
um, Time After Time, auk þess
sem Gwen Stefani og rapparinn
Pharrell tóku lagið saman. Rokk-
ararnir í The Rolling Stones lok-
uðu kvöldinu síðan með tveimur
lögum.
The Massacre með 50 Cent
var valin besta rap/hip hop plat-
an og Missy Elliott var valin
besti kvenkyns listamaðurinn
í sama flokki, annað árið í röð.
„Ég þakka Guði því hann er
innblásturinn að öllu því sem
ég geri,“ sagði Elliott. Hún til-
einkaði verðlaunin söngkonunni
Aaliyah sem fórst í flugslysi
árið 2001.
Will Smith var valinn besti
karlkyns listamaðurinn í popp/
rokk flokki. Bar hann þar sigur-
orð af Rob Thomas og 50 Cent. ■
Bandarísku tónlistar-
verðlaunin afhent
TIM MCGRAW Kántrísöngvarinn vinsæli vann tvenn verðlaun á Bandarísku tónlistarverð-
laununum.
Leikarinn Tom Cruise segir að
unnusta sín Katie Holmes þurfi
ekki að vera alveg hljóðlát á
meðan hún eignast þeirra fyrsta
barn. Hún þarf samt að passa sig
á að hafa ekki hátt.
Samkvæmt vísindatrú Cruise
mega konur ekki hafa hátt þegar
þær eignast börn því það skaðar
geðheilsu bæði móðurinnar og
barnsins og veitir þeim minna
öryggi fyrir framtíðina. „Það er
nauðsynlegt að hafa eins mikla
þögn og hægt er. Einhver mis-
skilningur hefur verið uppi um
að konan megi ekki gefa frá sér
neitt hljóð, en það er ekki satt.
Það er fáránlegt,“ sagði Cruise
í viðtali við bandaríska spjall-
þáttastjórnandann Barböru
Walters. „Konan á að vera róleg
og má ekki hafa hátt. Ég vil að
Katie hafi það eins náðugt og
mögulegt er á meðan hún geng-
ur í gegnum það sem hún verð-
ur að ganga í gegnum. Ég verð
henni að sjálfsögðu til halds og
trausts,“ sagði hann. ■
Katie má ekki hafa
hátt við barnsburð
FRÉTTIR AF FÓLKI
Leikkonan unga Elisha Cuthbert, sem lék
meðal annars hlutverk
dóttur Jacks Bauer í
hinum vinsælu þáttum
24, sem sýndir voru
á stöð 2 við mikl-
ar vinsældir, hefur
tilkynnt að hún og
kærasti hennar, Trace Ayala,
ætli ekki að flýta sér í
hnapphelduna. Ayala og
Cuthbert, sem trúlofuðu
sig á síðasta ári, hafa sagt að
nógur tími sé fyrir brúðkaup.
,,Hvorugt okkar vill ana út í
giftingu eins fljótt og auðið er.
Það sem gerist gerist bara,“
sagði Cuthbert.
Angelina Jolie og Brad Pitt eyddu þakkargjörðarhátíðinni í Pakistan
um þessar mundir. Jolie, sem hefur
unnið fyrir Sameinuðu Þjóðirnar sem
sérstakur sendiherra síðan í ágúst 2001,
ferðaðist til bæjarins Balakot, sem er
í norðvesturhluta Pakistans. Þar tók
hún þátt í að hjálpa starfsmönnum
SÞ að afhenta hjálpargögn til nauð-
staddra íbúa svæðisins.
Pakistan varð illa úti
í jarðskjálfta sem
dundi yfir landið
fyrr á árinu þar
sem um 73.000
manns létust og
þrjár milljónir
misstu heimili sín.
Gríneikarinn frábæri Ricky Gervais er að sögn enska götublaðsins The Sun, með
einstaklega slæman matarsmekk. Vinnu-
félagi og meðhöfundur hans til margra
ára, Stephen Merchant, segir Ricky
vera gjörsamlega vonlausan
þegar kemur að því að velja
eða borða mat. ,,Hann
hefur borðsiði á við fimm
ára krakka. Alltaf þegar
við förum eitthvað að
fá okkur að borða sest
hann við borðið og les
matseðil með frábærum
mat en vill síðan ekki
panta neitt. Venjulega
endum við þá yfirleitt á
skyndibitastað“ segir Merch-
ant, alls ekki sáttur.
Fyrrverandi Baywatch-bomban Pamela Ander-
son hefur nýlega hljóðritað dúett með
engum öðrum en kanadíska söngv-
aranum Bryan Adams.
Lagið sem um ræðir er
gamalt lag Bryans sem
hann söng áður með
kryddpíunni Mel C, að
nafni Baby When You’re
Gone. Pamela mun
syngja þann hluta
lagsins sem Mel
hafði áður sungið
í fyrri útgáfu þess.
Lagið mun koma út
á næsta ári á nýrri
plötu Bryan Adams
sem enn hefur ekki
hlotið nafn.
HOLMES OG CRUISE
Leikaraparið á von
á sínu fyrsta barni á
næsta ári.
�����������
�� �������
���������
�������� ���
������
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 10.40 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 B.i. 16 ára
Sýnd í Lúxus kl. 5, 8 og 10.40
Sýnd kl. 5 og 8 B.i. 16 ára
���
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.20
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY
ROSE ER ÓHUGNANLEGRA
EN NOKKUÐ SEM ÞÚ
GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
���
- HJ MBL
Þau eru góðu vondu gæjarnir
Frá höfundi Buffy the Vampire Slayer.
Ótrúlegar brellur og svöl átakaatriði.
���
- SK DV
���
- topp5.is
Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 5.40 , 8 og 10.20 B.i. 12 ára
���
-L.I.B. Topp5.is
���
- SV MBL
SÍMI 551 9000
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14 ára
���
“Frábær kvikmynd, áhugaverðari og fyndnari en flestar
þær sem boðið hefur verið upp á undanfarið”
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Þetta var hið fullkomna frí þangað
til þau fundu fjársjóðinn!
Sjóðheit spennumynd með
ofurtöffaranum Paul Walker og
hinni stórglæsilegu Jessicu Alba.
���
„Nokkurs konar Beðmál í Borginni í
innihaldsríkari kantinum.“
„...leynir víða á sér og er rómantísk
gamanmynd í vandaðri kantinum.“
- HJ MBL
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY
ROSE ER ÓHUGNANLEGRA
EN NOKKUÐ SEM ÞÚ
GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
���
- SK DV
���
- topp5.is
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
���
-L.I.B. Topp5.is
���
- SV MBL