Fréttablaðið - 28.11.2005, Qupperneq 67
www.lyfja.is
- Lifið heil
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
2
95
05
09
/2
00
5
Líttu eftir húðinni!
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni -
Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði -
Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi -
Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
FEDTCREME®
• Á þurra og sprungna húð
• Inniheldur ekki ilm- eða litarefni
REPAIR®
• Á mjög þurra og illa farna húð
• Inniheldur ekki rotvarnar-,
ilm- eða litarefni
Fjölskylda og vinir Bítilsins
fyrrverandi John Lennon hafa
tjáð sig í tímaritinu Radio Times
um kynni sín af honum í tilefni
þess að 25 ár eru liðin frá dauða
hans.
Keith Richards úr Rolling Sto-
nes segir að Lennon hafi verið
frábær náungi. „Einhverra hluta
vegna fannst honum hann alltaf
þurfa að skemmta sér meira en
ég,“ sagði Richards. „Það er nokk-
uð sem er mjög erfitt að gera, sér-
staklega í þá daga.“
Cynthia Lennon, fyrrum eig-
inkona Lennons, segir að hann
hafi aldrei losnað við sársaukann
sem hann varð fyrir á æskuárum
sínum er hann missti móður sína.
Hún segir að sársaukinn hafi átt
stóran þátt í tónlistarsköpun hans
og árásargirni. „Hvort sem fólk
vill viðurkenna það eða ekki var
John stundum ofbeldisfullur og
árásargjarn,“ sagði hún. „Hann
hætti aldrei að skapa. Hann var
alltaf að leita að einhverju nýju og
reyndi að finna sjálfan sig í því.“
Lennon var skotinn til bana
fyrir utan heimili sitt í New York
þann 8. desember árið 1980, fer-
tugur að aldri. ■
Skemmti sér meira
en Richards
JOHN LENNON Bítillinn fyrrverandi var
myrtur í New York fyrir 25 árum.
Sjónvarpsþátturinn Alias, sem
hefur verið sýndur í Ríkissjón-
varpinu undanfarin ár, mun hætta
göngu sinni í Bandaríkjunum í maí
á næsta ári þegar fimmtu þátta-
röðinni lýkur.
Engin ástæða hefur verið gefin
fyrir ákvörðuninni en áhorf á
þáttinn hefur dvínað töluvert að
undanförnu vestanhafs. Aðalleik-
konan Jennifer Garner er ófrísk
um þessar mundir og því hafa
menn einnig spurt sig hvort vænt-
anlegt móðurhlutverk hafi haft
áhrif á endalok þáttarins.
Garner hefur hlotið fjórar
tilnefningar til Emmy-verðlaun-
anna í röð fyrir hlutverk sitt sem
ofurnjósnarinn Sydney Bristow,
sem dulbýr sig jafnan áður en hún
berst við vondu karlana víða um
heim. Vegna þess hve persónan
þykir öflug fékk bandaríska leyni-
þjónustan, CIA, Garner til að leika
í myndbandi sem hvetur fólk til að
ganga til liðs við samtökin. ■
Alias lýkur göngu sinni
ALIAS Jennifer Garner fer með hlutverk ofurnjósnarans Sydney Bristow í Alias.
Þann 16. janúar á næsta ári kemur
út DVD-mynddiskurinn Pulse
með Pink Floyd. Þar er sýnt frá
síðustu tónleikaferð sveitarinnar
um heiminn sem var farin 1994.
Diskurinn er tvöfaldur, þar sem
aðalmyndefnið er fjórtán tónleik-
ar í Earls Court í London. Einnig
eru þar myndir sem teknar voru
baksviðs og aukaefni sem ekki
hefur sést áður.
Pink Floyd átti frábæra end-
urkomu á Live 8 tónleikunum í
sumar og svo gæti farið að hún
gerði meira saman á næstunni
og þá með forsprakkann Roger
Waters innanborðs. ■
Pulse kemur
í janúar
DAVID GILMOUR Gítarleikarinn Gilmour
og félagar í Pink Floyd gefa út DVD-
mynddiskinn Pulse á næsta ári.
[ TÓNLIST ]
UMJFÖLLUN
Það verður aldrei tekið af Kate
Bush að hún er sérvitrari en and-
skotinn. Lætur ekkert í sér heyra í
tólf ár, og snýr svo aftur með tvö-
falda plötu þar sem hún opnar hlið-
ið að heila sínum upp á gátt. Trúið
mér, þar er stundum undarlega
hluti að finna.
Til dæmis er hér að finna lag
tileinkað pí, stærðfræðifastanum
óendanlega sem m.a. er notaður
til að reikna út ummál hrings.
Texti lagsins er eitthvað á þessa
leið; „3.1416...“ og svo framvegis.
Stuttu eftir það kemur sex mín-
útna ástaróður til uppþvottavélar.
Fuglasöngur hljómar í gegnum
alla seinni plötuna, og hér og þar
má heyra Kate reyna að herma
nákvæmlega eftir söng fuglanna.
Mjög undarlegt.
Engu að síður verður það bara
að viðurkennast að Kate Bush er
stórkostlegur listamaður. Hún er
með frábæra rödd, semur ótrú-
leg lög og virðist enn hafa hjart-
að á réttum stað. Hún gerir litlar
sem engar tilraunir hér til þess
að skapa plötu sem útvarpsmenn
á Bylgjunni myndu raðnauðga
þangað til eyru hlustenda dyttu
af. Hún gæti það vel, við vitum
það af fyrri verkum. Við heyrum
það líka á þessari plötu, sum lögin
eru ótrúlega grípandi og hefðu
hæglega getað verið útsett sem
sætari popplög. Hún þarf þess
bara ekki, og hefur engan áhuga á
því að reyna að þóknast einhverj-
um ímynduðum meirihluta. Hún
fylgir bara eigin innri áttavita og
þrammar sinn veg eins forvitin
og Lísa í Undralandi. Fyrir vikið
fáum við fáránlega sterk lög á borð
við How to Be Invisible og Sunset.
Mér finnst ótrúlega gaman að
heyra í Kate aftur, og hennar hefur
verið saknað. Ég ber líka virðingu
fyrir því að hún hafi ákveðið að
halda sig til hlés öll þessi ár ef
henni hefur ekki fundist hún hafa
neitt að segja. Betra að bíða, safna
upp efni, ná áttum almennilega og
skila frá sér jafn góðri plötu og
Aerial er. Plata sem er þess verð-
ug að fylgja á eftir þeim meistara-
verkum sem frá henni hafa komið.
Birgir Örn Steinarsson
12 árum seinna
KATE BUSH:
Aerial
Niðurstaða: Fyrsta plata Kate Bush í tólf ár í
senn undarleg, athyglisverð og stórfín. Kate
veit líka að maður á ekki að rjúfa þögnina
nema að maður geti bætt hana. Hún er svo
sannarlega velkomin aftur.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI