Fréttablaðið - 28.11.2005, Side 68
32 28. nóvember 2005 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Daníel í Grindavík?
Nokkur úrvalsdeildarfélög hafa mikinn
áhuga á að fá Daníel Hjaltason í sínar
raðir en hann er á förum frá Víkingi
eins og kunnugt er. Grindavík er meðal
þessara liða en ekki er talið ólíklegt að
Daníel elti Sigurð Jónsson á Suðurnesin.
FÓTBOLTI Erlingur Kristjánsson, sem
gerði garðinn frægan með knatt-
spyrnu- og handknattleiksliði KA,
segir það vera áhyggjuefni fyrir
íþróttastarfið á Norðurlandi hversu
illa hefur gengið hjá knattspyrnu-
félögunum í landshlutanum að halda
úti metnaðarfullu starfi. „Því miður
hefur liðunum ekki gengið nægi-
lega vel að undanförnu. Það er erf-
itt að halda úti kjarna af leikmönn-
um í leikmannahópum félaganna.
Það virðast vera meiri peningar í
umferð á höfuðborgarsvæðinu og
þess vegna leita góðu leikmennirnir
þangað.“
Erlingur vonast til þess að bætt
aðstaða muni skila betri leikmönn-
um í framtíðinni. „Það tekur nú
alltaf tíma að verða góður í fótbolta
og bætt æfingastaða gerir menn í
sjálfu sér ekki að góðum leikmönn-
um. En hún hjálpar til við að halda
úti metnaðarfullu starfi.“
Unglingastarfið hjá handknatt-
leiksdeild KA hefur alltaf gengið
vel og er Erlingur viss um að hægt
sé að læra sitthvað að því. „Það
koma alltaf ungir leikmenn upp í
meistaraflokkinn hjá KA á hverju
ári og þannig verður það að vera,
svo liðið geti haldist gott.“ - mh
Fjögur lið af Norðurlandi féllu um deild á Íslandsmótinu í knattspyrnu í sumar:
Unglingastarfið mikilvægast af öllu
> Guðfinnur í 2. deildina
Guðfinnur Þórir Ómarsson er að öllum
líkindum á leið í 2. deildina þar sem
hann hyggst leika með ÍR í Breiðholtinu
á næsta tímabili. Guðfinnur kemur úr
herbúðum Þróttar en hann kom aðeins
við sögu í sjö leikjum með félaginu í
Landsbankadeildinni í sumar. Hann er
sókndjarfur leikmaður sem á eftir að
styrkja lið ÍR mikið en
hann hefur þegar
leikið tvo æfinga-
leiki með félaginu
og skorað í þeim
báðum.
Ólafsfirðingurinn Heiðar Gunnólfsson,
sem verið hefur fyrirliði sameinaðs liðs
Leifturs/Dalvíkur undanfarin ár, segir
Ólafsfirðingana eiga mun meiri samleið
með Siglfirðingum heldur en Dalvíking-
um og því hafi það legið beinast við að
hefja samstarf við KS á íþróttasviðinu,
en Leiftur og KS munu senda sameig-
inlegt lið til keppni á næstu árum. „Það
er mikill hugur í okkur leikmönnum
fyrir þetta samstarf gegn KS. Við eigum
miklu meiri samleið með Siglfirðinum
heldur en Dalvíkingum. Dalvíkingar vilja
sækja meira til Akureyrar heldur en
hingað til Ólafsfjarðar.“
Æfingar sameinaðs liðs munu fara
fram á bæði Ólafsfirði og Siglufirði, en
svo verða tvær sameiginlegar æfingar í
hverri viku. „Ég held að þetta sé mikið
gæfuspor fyrir bæði félög hvað fótbolt-
ann varðar. Það er einfaldara að halda
þessu samstarfi úti heldur en við Dalvík,
þó það hafi á margan hátt gengið ágæt-
lega. Aðstaðan yfir sumartímann er frá-
bær á Ólafsfirði og hún er einnig ágæt
á Siglufirði.“
Kristján Hauksson, sem situr í stjórn
knattspyrnudeildar nýstofnaðs félags,
bindur miklar vonir við þetta samstarf.
„Við teljum þetta mjög spennandi verk-
efni fyrir bæði bæjarfélögin. Við ætlum
okkur að halda í ungu strákana okkar og
byggja upp gott lið á þessum strákum.
Það er engin spurning að þetta kemur
til með að hjálpa til við að styrkja inn-
viði beggja félaganna til lengri tíma. Við
stefnum á það að komast upp um deild
og í fremstu röð.“
HEIÐAR GUNNÓLFSSON FYRIRLIÐI KS: LEIFTUR: SAMEINING FÉLAGANNA GÆFUSPOR
Eigum meiri samleið með Siglfirðingum
FÓTBOLTI ÍBV er í leikmanna-
leit en liðið mun í vikunni leika
æfingaleik við 1. deildarlið Leikni
í Reykjavík. Eyjamenn hafa sýnt
áhuga á að fá Óskar Snæ Vignis-
son frá Hvöt á Blönduósi og boðið
leikmanninum að leika með ÍBV í
leiknum. Óskar er 22 ára örvfættur
leikmaður sem getur leikið á miðj-
unni og í fremstu víglínu en hann
skoraði fimmtán mörk í þeim fjór-
tán leikjum sem hann spilaði fyrir
Hvöt í 3. deildinni í sumar. Hann
hefur að undanförnu verið að æfa
með Leikni en mun líklega leika
gegn félaginu í leiknum sem fram
fer á morgun. Ef Óskar ákveður að
ganga til liðs við ÍBV verður hann
annar leikmaðurinn sem félagið
fær til sín eftir að síðasta tímabili
lauk en hinn er miðjumaðurinn
Arilíus Marteinsson sem kom frá
Selfossi. - egm
Eyjamenn leita liðstyrks:
Skoða Óskar á
morgun
FÓTBOLTI „Ég var í aðgerð á
fimmtudaginn og það mun ekk-
ert gerast fyrr en ég hef gengist
undir læknisskoðun hér heima,“
sagði sóknarmaðurinn Þórarinn
Brynjar Kristjánsson í samtali við
Fréttablaðið en ekki er enn komið
í ljós hvar hann mun leika.
Þórarinn var með Þrótti í sumar
en ljóst er að hann verður ekki
áfram hjá félaginu og hafa nokkur
úrvalsdeildarfélög áhuga. „Ég von-
ast eftir því að það fari eitthvað að
skýrast í þessari viku,“ sagði Þór-
arinn en hann lék sextán leiki með
Þrótti í Landsbankadeildinni þetta
tímabil og skoraði tvö mörk eftir
að hafa gengið til liðs við félagið
frá Aberdeen í Skotlandi. Suður-
nesjaliðin Grindavík og Keflavík
hafa bæði verið í viðræðum við
hann en hann er uppalinn í Kefla-
vík og lék með liðinu í fyrrasumar
en þá var hann á skotskónum. - egm
Þórarinn Kristjánsson:
Biðstaða vegna
meiðsla
ÞÓRARINN KRISTJÁNSSON Þórarinn náði
sér ekki á strik í sumar.
GUÐLAUGUR BALDURSSON Guðlaugur
leitar sífellt eftir leikmönnum.