Fréttablaðið - 28.11.2005, Blaðsíða 74
28. nóvember 2005 MÁNUDAGUR38
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
FÓTBOLTI Sóknarmaðurinn Teddy
Sheringham hefur biðlað til Roy
Keane að koma til West Ham
United. Keane liggur nú undir feldi
og skoðar möguleika sína eftir að
samningi hans við Manchester
United var rift en þessi fyrrum
fyrirliði United er á óskalista mar-
gra enskra úrvalsdeildarfélaga þó
talið sé líklegast að hann haldi
til Skotlands og gangi til liðs við
Glasgow Celtic.
„Hann á enn tvö mjög góð ár
eftir og ég tel að það yrðu mistök
ef hann færi úr úrvalsdeildinni.
Það kæmi mér á óvart ef hann
færi til Celtic, það yrði mikil sóun
á ótrúlegum hæfileikum því hann
er of góður fyrir skoska boltann.
Það væri frábært að fá hann hing-
að til West Ham. Hann er stór-
kostlegur fótboltamaður og yrði
félaginu mikill styrkur,“ sagði
Sheringham, sem greinilega hefur
mikið álit á Keane.
„Ég tel líklegt að hann fari til
einhvers liðs í efri helmingnum
og ef það rætist mun það verða
til þess að það lið kemst í Evrópu-
keppni. Ef eitthvert lið í botnbar-
áttunni fær hann þá mun það félag
örugglega bjarga sér frá falli,“
sagði Sheringham en Alan Par-
dew, knattspyrnustjóri Hamrana,
hefur sjálfur lýst því yfir að hann
vilji fá Keane í sínar raðir. - egm
Teddy Sheringham vill fá reynslubolta á miðjuna hjá West Ham:
Sheringham vill Keane
ROY KEANE Keane er gríðarlega eftirsóttur
þessa dagana en fjöldi liða vill fá hann í
sínar raðir.
HANDBOLTI Ísland var með und-
irtökin frá byrjun leiks og náði
snemma fimm marka forskoti, í
hálfleik var staðan 17-13. Í seinni
hálfleik var allt á sömu nótunum
og sex marka sigur var staðreynd
í leikslok. „Við erum sáttir við
að vinna tvo leiki af þremur en
klúðruðum þessu sjálfir í Mos-
fellsbænum á laugardag. Helst
hefðum við viljað vinna þá alla.
Það er góð barátta í liðinu og allir
eru að fórna sér, sama hver er
inni á. Maður tekur eftir því að
það er alltaf að koma meira sjálfs-
traust í liðið, strákarnir virðast
hafa mjög gaman af því sem þeir
eru að gera,“ sagði Bergsveinn
Bergsveinsson, aðstoðarþjálfari
Íslands, í leikslok.
Snorri Steinn Guðjónsson
hefur átt skínandi leiki og var
hann markahæstur íslenska liðs-
ins í gær með tíu mörk, þar af
komu sex úr vítaköstum. Guðjón
Valur Sigurðsson og Einar Hólm-
geirsson skoruðu sex mörk hvor.
Birkir Ívar Guðmundsson fann
sig vel í markinu en hann lék nær
allan leikinn og varði átján skot.
„Mannskapurinn er eðlilega orð-
inn nokkuð þreyttur enda var
þetta síðasti leikur okkar í þriggja
leikja syrpu. Það bitnaði aðeins á
gæðum leiksins en við sýndum
góða baráttu og þetta var bara
mjög öruggt allan tímann. Ég var
að finna mig ágætlega og vörnin
var fín fyrir framan mig,“ sagði
Birkir Ívar. „Þessir leikir voru
mikilvægir fyrir þjálfarann til
að prófa ýmsa leikmenn og einnig
var mikilvægt fyrir okkur að hitt-
ast og stilla saman strengi.“
Varnarleikur norska liðsins var
ekki upp á marga fiska í leiknum
í gær og þá voru lykilmenn eins
og markvörðurinn Steinar Ege
og Kenneth Klev ekki að finna
sig en sá síðarnefndi var aðeins
skugginn af þeirri frammistöðu
sem hann sýndi í jafnteflisleikn-
um á laugardag. „Norska liðið
olli mér nokkrum vonbrigðum, ég
reiknaði með þeim sterkari. Eftir
leikinn gegn þeim í Póllandi átti
ég von á þeim betri. En við erum
á fínu skriði, það er góður hraði
í liðinu og við þurfum að byggja
ofan á það þegar við komum aftur
saman í janúar. Sjálfir erum við
þó ekkert að byggja neinar skýja-
borgir og tökum bara einn leik
fyrir í einu,“ sagði Bergsveinn
Bergsveinsson.
elvar@frettabladid.is
Sigurinn aldrei í hættu
Þriðji og síðasti vináttulandsleikur Íslands og Noregs fór fram í Hafnarfirði í
gær og hafði Ísland sigur, 32-26.
HANDBOLTI „Það vantaði talsvert
marga í mitt lið, ég er með marga
leikmenn sem leika á Spáni,
Þýskalandi og Danmörku. Það
voru að minnsta kosti sex leik-
menn sem eiga fast sæti í hópn-
um sem gátu ekki spilað þessa
leiki og þar á meðal eru nokkrir
lykilmenn,“ sagði Gunnar Pett-
ersen, þjálfari norska liðsins,
sem var allt annað en sáttur við
varnarleikinn hjá sínum mönn-
um.
„Vörnin hjá okkur var hræðileg
og ég er mjög ósáttur við hana
í þessum leikjum. Við vorum að
fá allt of mörg mörk á okkur. Það
eru þó ýmsir nokkuð jákvæðir
punktar og þar get ég til dæmis
nefnt sóknarleikinn hjá okkur í
öðrum leiknum,“ sagði Gunnar
en sá leikur endaði með jafntefli
33-33 þar sem góður lokasprett-
ur Noregs kom í veg fyrir sigur
íslenska liðsins. Í fyrsta leiknum
á föstudag vann íslenska liðið
stórsigur í Vestmannaeyjum
með níu marka mun og vann svo
með sex marka mun í gær.
„Ég tel að íslenska liðið sé lík-
legt til afreka á heimsmeistara-
mótinu í Sviss. Þetta er hörkulið
og maður verður að taka það með
inn í dæmið að það vantaði sterka
leikmenn eins og til dæmis Ólaf
Stefánsson. Þeir sækja hratt og
við áttum í miklum vandræðum
með þá,“ sagði Gunnar Petter-
sen. - egm
Gunnar Pettersen, þjálfari Noregs, var ósáttur við varnarleik sinna manna:
Ísland gæti náð langt í Sviss
SNORRI STEINN GUÐJÓNSSON Snorri Steinn lék frábærlega í leikjunum gegn Norðmönnum og er orðinn einn af bestu leikmönnum sem
Ísland á í dag.
PATREKUR Í KRÖPPUM DANSI Patrekur
Jóhannesson spilaði sinn síðasta landsleik
fyrir Íslands hönd í gær. Það þurfti þrjá
Norðmenn til þess að stöðva hann hér.