Fréttablaðið - 28.11.2005, Síða 78

Fréttablaðið - 28.11.2005, Síða 78
 28. nóvember 2005 MÁNUDAGUR42 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Nú er tími jólabjórsins upprunninn og íslenskir sem erlendir bjórframleiðendur að stilla fram jólaöli ársins. Í Danmörku er rótgróin hefð fyrir jólabjór og mikið um dýrðir honum tengt. Rithöfundur- inn Jón Kalman Stefánsson bjó þrjú ár í Danaveldi og kynntist þeirri stemningu vel. „Þá kynntist ég þessari hátíð sem Danir kunna að búa til í kringum jóla- bjórinn. Maður fór út í búð snemma morguns og þá var búið að koma upp borði og hella jólabjór til hálfs í glösin. Síðan fóru Danir að slæðast kátir inn í búðina til að smjatta á bjórnum og velta fyrir sér hvort hann væri betri í ár en árið áður og rifja upp minningar frá því í fyrra. Þessi stemning hreif mig mjög og ég sá strax að þetta snerist um eitthvað allt annað og meira en það eitt að drekka bjór,“ segir Jón Kalman, sem nú teflir fram skáldsögunni Sumarljós, og svo kemur nóttin. „Fyrir Dani eru allir dagar eins þegar kemur að bjór og því er þessi hátíð ekki endilega stíluð inn á helgi. Þetta var kannski á miðvikudagsmorgni og ekki verið að hella í neinar fingurbjargir heldur stór glös. Þótt Danir fyndu ekki á sér ranglaði Íslendingurinn út eftir smakkið og keypti náttúrlega helmingi meira en annars í búðinni,“ segir Jón Kalman hlæjandi, en af dönskum jólabjór hefur hann mest dálæti á Tuborg. „Stemmingin nær hámarki þegar grænt ljós er sett á dreifingu jólabjórsins og tankbílar keyra frá verksmiðjunum til að dreifa húfum, merkjum og öðrum varningi tengdum bjórnum meðal fólksins. Þessu fylgir heilmikil tilhlökkun hjá Dönum, þetta er þeirra karnival og margir sem vakna sérstaklega til að fá sér bjór,“ segir Jón Kalman sem sjálfur sér til þess að eiga smávegis af dönskum og líka íslenskum jólabjór til samanburðar á aðventunni. „Íslenski jólabjórinn er fyrirtak en hefur ekki hitt mig í hjartastað eins og sá danski, sem ég er nú tilfinningalega bundinn, eða öllu heldur stemningunni í kringum hann. Danir eru sérfræðingar í að búa til hátíð í kringum það sem þeir framleiða og gera að miklu meira en öli eða varningi.“ SÉRFRÆÐINGURINN JÓN KALMAN STEFÁNSSON FÉLL FYRIR DANSKRI JÓLABJÓRSSTEMMNINGU Koma jólabjórsins er karnival Dana LÁRÉTT 2 betl 6 guð 8 ýlfur 9 bókstafur 11 ber- ist til 12 kryddblanda 14 hestur 16 tímabil 17 nægilega 18 galdrastafur 20 á fæti 21 skynsemi. LÓÐRÉTT 1 afl 3 ung 4 hvítingi 5 fálm 7 mergð 10 þrír eins 13 þjófnaður 15 blóðormur 16 tímabils 19 ónefndur. LAUSN Harpa Einarsdóttir fatahönnuður gerði góða ferð á Future Design- base sýninguna sem haldin var í Stokkhólmi nýverið. „Þetta var mjög glæsilegt og hún haldin í City Hall,“ segir hún en Harpa deildi bás með hár- og förðunar- stofunni Supernova sem síðar tók þátt í tískusýningu með henni. „Þarna var eiginlega allt á milli himins og jarðar, innanhúshönn- un, lífstíll og tíska,“ útskýrir hún. „Þetta var allt mjög vel skipu- lagt og það voru matarboð og partí hvert einasta kvöld,“ segir Harpa, sem þarna gafst kærkom- ið tækifæri á að kynnast fólki. Harpa komst meðal annars í samband við aðila frá London sem vildu auglýsa fötin hennar auk þess sem tískublað vildi nota fötin í myndaþátt. „Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að komast út fyrir landsteinana og fá þar innblástur auk þess sem svona ferðir víkka út sjóndeildarhring- inn,“ segir hún en hönnun hennar vakti töluverða athygli og fékk mjög góða umfjöllun. Þá var Vala Matt einnig mætt frá lífsstíls- þættinum Veggfóðri og verður væntanlega sýnt frá þættinum á mánudaginn. Harpa segist sjálf hafa reynt að vera vakandi fyrir því sem var að gerast í kringum hana og hún hafi meðal annars sótt fyrirlest- ur hjá Lauru Bowing sem er mjög framarlega í hönnun á smáhlut- um. „Ég hef fylgst mjög vel með henni í gegnum tíðina og það var mjög gaman að hitta hana.“ Hönnuðurinn segir föt sín vera blöndu af sixtís-stílnum og pönki en hún hafi ekki mikið verið að framleiða sína hönnun. „Ég hef aðallega fengist við bún- ingahönnun fyrir auglýsingar enda eru peningarnir þar,“ segir hún og hlær. „Ég ætla annars að reyna að koma einhverju í fram- leiðslu og stefni að því að opna heimasíðu á næstunni þar sem fólk getur lagt inn pöntun fyrir allt nema jakkaföt,“ útskýrir hún og skellir upp úr. freyrgigja@frettabladid.is HARPA EINARSDÓTTIR: SLÓ Í GEGN Í STOKKHÓLMI Hannar ekki jakkaföt HARPA EINARSDÓTTIR Föt Hörpu vöktu mikla athygli á Future Designbase sýningunni í Stokkhólmi en þau eru blanda af sixtís og pönki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HRÓSIÐ... ...fá Bárður og Birta fyrir að gera nýtt jóladagatal sem nefnist Töfrakúlan. Annan desember kemur út ein veg- legasta Rolling Stones-bók sem gefin hefur verið út hér á landi. Birgir Baldursson hefur veg og vanda af þýðingu hennar en bókina prýða 150 ljósmyndir frá rúmlega fjörutíu ára ferli sveitarinnar. „Þetta er viðtals- bók við þá og því fyrsta bókin sem byggð er á frásögn þeirra,“ segir Tómas Hermannsson hjá bókaútgáf- unni Sögur. „Það eru nokkrir aðilar sem taka þessi viðtöl en þau eru tekin upp á tveggja ára tímabili,“ útskýrir hann og aðdáendur sveitar- innar, sem eru fjölmargir hér landi, komast varla nær þeim. Í bókinni er einnig að finna nákvæma skrá yfir allar plötur Rolling Stones og segir Tómas að hún spanni feril þeirra frá upphafi. Þarna má finna ógleymanlegar sögur af þeim félögum sem hafa marga fjöruna sopið. „Charlie Watts rot- aði Mick Jagger einu sinni og Keith Richards ætlaði að henda söngvar- anum út um gluggan. Richards hætti við þegar hann uppgötvaði að Jagger var í giftingarfötunum hans,“ segir Tómas og hlær. Aðspurður hvort hann sé for- fallinn Stones-aðdáandi segir hann svo ekki vera. „Allavega ekkert í líkingu við það sem sýslumaðurinn á Selfossi er,“ segir Tómas og hlær. Hann sé í þessu vegna þess að hann hafi gaman af þessum bókmennt- um. Tómas gefur einnig út bókina Sögur Tómasar frænda og stefnir á enn frekari landvinninga í þessum efnum. „Það er um að gera að byrja á stærstu hljómsveit heims og bókin hefur að geyma allt sem þú þarft að vita um Rolling Stones,“ segir Tómas, sem er bjartsýnn á framhaldið. TÓMAS HERMANNSSON Hefur mikinn áhuga á bókmenntum sem tengjast tónlist og gefur út bók um Rolling Stones sem er væntanleg í byrjun desember. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. Allt sem þú þarft að vita um Rolling Stones LÁRÉTT: 2 snap, 6 ra, 8 ýla, 9 err, 11 bt, 12 karrí, 14 gráni, 16 ár, 17 nóg, 18 rún, 20 il, 21 sinn. LÓÐRÉTT: 1 þrek, 3 ný, 4 albínói, 5 pat, 7 aragrúi, 10 rrr, 13 rán, 15 igla, 16 árs, 19 nn. FRÉTTIR AF FÓLKI Dagur hundsins fór ekki framhjá íbúum miðbæjarins og ekki hægt að segja annað en þessi ágangur ferfætlinganna hafi farið misvel í fólk. Íbúar við Laugaveginn tóku þessari innrás misvel enda sem betur fer ekki á hverjum degi sem her ferfætlinga fær að spássera um á einni helstu verslunar- götu landsins. Hundaeigendur létu það þó ekki á sig fá og löbbuðu stoltir og beinir í baki um miðbæinn með allt frá litlum krúttlegum veskjahundum upp í risastóra varðhunda sem líktust heldur hrossum en hundum. Það heyrðist í kvartandi dömum sem fannst ómögulegt að geta ekki sprangað um miðbæinn án þess að horfa niður fyrir sig, það er nefnilega ekki sérlega sjarmerandi að renna í hundaskít í miðbænum. Sumir kvörtuðu líka undan furðulegri angan sem sveif yfir bænum og voru menn sammála um að lyktin ætti ekkert skylt við aðventuna eða jólin. Skýringin kom þó fljótlega í ljós því ekki er hægt að viðra heilan hundaher nema þeir fái að gera þarfir sínar. Því var þó ekki að leyna að ferfætlingar í öllum stærðum og gerðum eiga stóran aðdá- endahóp enda var mikið fjölmenni í miðborginni. Það sást til dæmis til Steingríms Ólafs- sonar arka um göturnar með hvítan poodle- hund í bandi. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Ofurtala 1 5 7 16 37 4 5 11 19 27 32 21 44 47 5 0 0 7 7 9 5 5 1 9 26. 11. 2005 23. 11. 2005 Þrefaldur 1. vinningur næsta laugardag Einfaldur 1. vinningur næsta miðvikudag Fyrsti vinningur gekk ekki út. Fyrsti vinningur gekk ekki út. 36 � � � � � � � � � � 1x13 lottó á mánudögum 27.11.2005 17:44 Page 1

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.