Tíminn - 07.11.1976, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 7. nóvember 1976
AAORGUN-
i
KAFFINU
— Hvers vegna færft þú þcr ekki
heldur hnetubrjót?
— Ég er ckki aö kvarta, en ég vil
fá að vita hvcr kemur með mjólk-
ina.
— Þú hetdur að ég sé hræöilegur,
en bíddu þar til þú sérð konuna
mina.
Hættu að súpa hveljur og segðu
niér hvað er um að vera þarna
niðri?
Hitch-
cock
leik-
konurnar
Hmn frægi leikstjón Alfred Hitchcock hefur leik-
stýrt mörgum frægum leikurum af báðum kynjum.
Myndirhans hafa yfirleitt „slegið I gegn”, og marg-
ir ó-, eða lftt-þekktir leikarar hafa unnið sér frægð
undir leikstjórn hans. Uppáhaldsleikkona hans fyrr
og siðar er Grace Kelly, núverandi furstafrú I
Monaco, og hann heldur enn sambandi við hana, þó
aö hún hafi ekki fengizt við kvikmyndaleik I mörg
ár. — Hún er hálf-Irsk og hálf-þýzk, en útlitiö er
enskt. útkoman úr þessari blöndu er mjög góð, og
samvinnuþlðari leikkonu hefi ég ekki þekkt. Hann
eignar sér heiðurinn af þvi að hafa gert Ingrid
Bergman að kyntákni, en þegar hún kom fyrst til
Hollywood þótti hún ekki Hkleg til afreka sem sllk.
Þótti hún hafa of stirðbusalegt fas og vera alltof
hávaxin. Hún átti erfitt með að sleppa fram af sér
beizlinu Ileik i ástaratriðum, en Hitchcock tókst að
fá hana til þess með þeim árangri, að hún fékk á sig
stimpil sem kyntákn. 1 einni mynd sinni hjálpaði
hann Joan Fontaine við að leika mjög vel heppnað
grátatriði með þvl að Iöðrunga hana — að hennar
beiöni, eftir að hún var orðin uppiskroppa með tár
eftir margar endurtökur á þessu atriði. Ekki hefur
honum alltaf tekizt vel til með leikkonur þær sem
hann hefur unnið með. Ein þeirra er Julie Andrews,
sem hann segir hafa verið mistök aö nota I hryll-
ingsmynd, þar eð áhorfendur hafi stöðugt vænzt
þess að fá að heyra hana syngja. A myndunum má
sjá Hitchcock og þær leikkonur sem hefur verið
minnzt á.