Tíminn - 07.11.1976, Page 5

Tíminn - 07.11.1976, Page 5
Sunnudagur 7. nóvember 1976 TÍMINN 5 Hér koma myndir, sem beðiö hefur verið eftir! Myndirnar sýna sem sagt fyrsta kvikmyndakoss Biöncu Jagger. Vonandi tekst þessi frumraun Biöncu á hvita tjaldinu vel. Ekki ætti mótleikari hennar að hafa letjandi áhrif á tilþrifin, en hann er Georges Donn, aðaldansari við Bejer ballaettinn. Dýrt spaug Það var á föstuinngangi sl. vor í Nurn- berg og hátföahöldin I fullum gangi. Kunigunde (Gustl) Herbst, 39 ára gömul sölukona var meö hrokaöan sölupallinn sinn af ávöxtum og græn- meti á torginu. Þá bar þar aö Emil Heubusch, yfirlögregluþjón, sem skip- aöi henni (kurteislega, segir hann) aö flytja sölupallinn (vegna hátföahald- anna). Þá svaraöi Gustl Herbst: — Þú átt ekki aö ákveöa þaö. Þá svaraöi lögr.þjónninn eilitið æstari: Ég frábiö mér aö þér þúiö mig. Viö erum ekki gift. Þá svaraöi frúin: — Þig heföi ég ekki viljað, ekki einu sinni gefins! Og svo segja sumir, aö hún hafi bætt viö: — Viö þig segi ég þú ef ég vil. Enginn getur bannaö mér þaö. En seinna gat hún ekki munaö þaö. En hún mundi, aö lögregluþjónninn sagöi eitthvaö á þá leiö, aö hann myndi gefa Gustl (rass-) skell. Þaö aftur á móti mundi hann ekki. Sföan fór sölukonan heim til sin i þeirri trú, aö samtal þetta heföl veriö ósköp eölilegt. En yfirlögreglu- þjónninn var svo mógaður, aö hann kæröi til yfirmanns sfns, sem aftur varö mógaöur vegna þess, aö undir- maöur hans haföi veriö mógaður. t sameiningu sendu þeir ákæru á sölu- konuna skv. einhverjum paragröffum. Til varnar dugöi Kunigunde lftiö aö halda þvi fram, aö hún þéraöi aðeins ógeðfellt fólk (auövitaö þéraöi hún dómarann). En dómarinn kynnti sér málið i botn, og þegar hann frétti um einbýlishúsið hennar, Mercedes 380 og vörubfiinn undir kálflutninginn, þá hreyföi hún engum mótbárum meir. En áöur en hún móttók dóminn, sem hljóðaði upp á 2250 marka sekt, lagði Kunigunde inn kvörtun. Þaö haföi áöur boriö góöan árangur i svipuðu tilfelli. Henni haföi heppnazt aö sanna kæru á lögregluþjón, sem lét pakka inn körf- um meö ávöxtum og káli án þess aö borga fyrir. Lögr.þjónninn, sem neit- aöi þessu, var sektaöur um 900 mörk fyrir falskan framburö. Kunigunde var áöur dæmd i 4ra mánaöa fangelsi, skilorösbundiö, vegna meiöyröa. Hún haföi sagt viö lögregluþjón: „Svfn” eöa nánar tiltekið: „Þér þarna, svin”. Og hér er mynd af Kunigunde Herbst og söluboröinu hennar. MORGUN KAFFINU — Hver fer með peninga fyrir- tækisins i bankann núna?

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.