Tíminn - 07.11.1976, Síða 6

Tíminn - 07.11.1976, Síða 6
6 TÍMINN Sunnudagur 7. nóvember 1976 ' wá Frá Vestmannaeyjum 1905 Ingólfur Davíðsson: Byggt og búið i47 í gamla daga Fuglarar i Eyjum Frá Vestmannaeyjum Herrarnir hjá Kárastööum 1919- Það er lif og fjör á hafnar- svæðinu i Vestmannaeyjum, þegar Lárus Gislason ljósmynd- ari tók þessa mynd 23/8. 1905. Gamalkunnugir munu kannast við bryggjur og báta, skútuna þrimöstruðu og kannski sumt fólkið. Margt er breytt frá þeim tima. önnur mynd — útg. Finsen og Johnson i Reykjavik — sýnir fengsæla fuglara i Eyjum. Þekkireinhver karlana? A kort- ið hefur einhver blessuð Anna ritað til Guddu vinkonu sinnar á dönsku, þann 14. nóvember 1905. Þriðja Vestmannaeyjakortið er frá „Stenders Forlag” og áletrun dönsk. Bátinn VE 92 munu einhverjir kannast við, og e.t.v. einnig skipið. A þetta kort ritar Ragnar Asgeirsson, siöar ráðunautur, til Hallgrims Hallgrimssonar, siðar bóka- varðar. Báðir voru viö nám i Danmörku, Ragnar i garðyrkju en Hallgrimur að ljúka námi i sagnfræði og bjó á Garði (Regensen) þegar þetta var rit- að, 22. nóvember 1918. Ragnar mun þá hafa lokið námi og verið garðyrkjukennari i Danmörku. Arið eftir hefur verið tekin mynd af tveimur herramönnum á Kárastöðum, þekkir einhver þá? Eða myndarlega sveitabæ- inn, hver er hann? úr þvi minnzt er á sveitabæ og kominn vetur eftir almanakinu vil ég spyrja, hvort einhver eigi og viljilána mér i þáttinn mynd af kindum á beit að vetrarlagi, helzt ef þær eru i krafstri. Lika mætti taka mynd þegar snjór er kominn. Út um allt land eru nú til menn sem taka myndir, og einhvers staðar er fé rekið til beitar. Hvaða bær er þetta?

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.