Tíminn - 07.11.1976, Síða 10

Tíminn - 07.11.1976, Síða 10
10 TÍMINN Sunnudagur 7. nóvember 1976 Kaupfélag Steingríms- fjarðar, Hólmavík Talað við Jón E. Alfreðsson, kaupfélagsstjóra Kaupfélag Steingrlmsfjaröar hefur aöala&setur sitt á Hólmavik en verzlunarsvæði þess nær þó viðar. Kaupfélag Steingrimsfjaröar gegnir mikilvægu hlutverki fyrir Strandir, þvi að það er eini at- vinnuveitandinn á Hólmavik og rekur einnig atvinnurekstur á Drangsnesi, þ.e. hraöfrystihús, en auk þess rekur það sláturhús á Hólmavik. Við hittum að máli kaupfélags- stjórann, Jón E. Alfreðsson, sem er 36 ára. Hann hefur veitt kaup- félaginu forstöðu siðan áriö 1968, en hefur unniö hjá kaupfélaginu siðan áriö 1961, eða frá þvi hann var um tvitugt. Jón kaupfélagsstjóri er ættaöur af Ströndum, eða frá Stóra- Fjarðarhorni i Fellshreppi, en þar bjuggu foreldrar hans, en fluttist siðan að Kollafjarðarnesi um fermingu. Jón E. Alfreðsson hafði þetta að segja um kaup- félagiö sögu þess og starfsemi. Rætt við Jón Alfreðsson kaupfélagsstjóra — Kaupfélag Steingrlmsfjaröar eroröið æöi gamalt finnst manni, en þaö var stofnað i desember ár- iö 1898 og hét þá Verzlunarfélag Steingrimsf jaröar, og það hét þaö fyrstu áratugina, en nafninu var þá breytt i Kaupfélag Steingrims- fjaröar. Félagssvæði okkar er Kaldrananeshreppur, Hróbergs- hreppur, Hólmavikurhreppur, Kirkjubólshreppur og Fells- hreppur, sem þó er ekki nema að hluta, þvi önnur kaupfélög eru beggja megin við okkur. Kaupfélag Steingrimsfjaröar hefur aðalstöövar sinar. á Hólmavik, og við rekum verzlun, sláturhús, frystihús og fiski- mjölsverksmiöju, rækjuvinnsla er einnig stunduö i frystihúsun- um. Þá rekum viö einnig útibú á Drangsnesi, þ.e. verzlun og frystihús var rekiö til skamms tima, en það brann sem kunnugt er á þessu ári og er nú verið aö reisa þar nýtt hús i staðinn. Landbúnaður i Stranda- sýslu — Nú, segja má að það sé ein- kenni á uppbyggingu þessa kaup- félags að þaö sinnir þjónustu við sjávarútveg og landbúnaö. Hér eru svo til eingöngu Jón E. Alfreösson, kaupfélagsstjóri: — Þaö liggur við að ég getiséö það f bókhaldinu hverjir verka I vot- hey. Geta sunnlenzkír bændur lært votheysgerð af Strandamönnum? Þeir þurrka ekki hey (sumir) og eru með vænsta fé landsins stundaður sauðfjárbúskapur, en litilsháttar er þó flutt af mjólk til Hvammstanga, þar sem er mjólkurstöð og við fáum okkar mjólk þaöan til sölu á félagssvæð- inu. — Þaö er einkenni búskaparins hér, aö bændur eru yfirleitt ekki með stór bú, stila fremur upp á miklar afuröir. — Þaö er algengt hér um slóðir, að bændur séu ekki meö nema svona 150-300 kindur á bú, en hér er milli 70 og 80% tvilembt. Ég Hluti rækjuflotans viö bryggju á Hólmavik, ásamt einu af skipum skipadeildar StS. hefi ekki reiknað meðalvigtina i sláturhúsinu núna, en hún er sjálfsagt á 17. kilóiö, og það þykir mjög gott, þvi aö meöaldilkþungi yfir landið er ekki nema um það bil 14 kiló. Þessar miklu afuröir hafa vakið athygli meöal bænda viða um land, eða útkoma búanna hér. Þaö sem er megineinkenni á búskap hér er það, hve hin mikla votheysgerö hefur skilað góðum árangri. Þaö liggur við að ég geti rakið hér I bókhaldinu I kaupfé- laginu á reikningum bændanna hverjir stunda votheysgerð og hverjir ekki. Svo miklu munar á útkomunni. Þessi þróun er ekki alveg ný. Til aö mynda var faöir minn löngu hættur að þurrka hey þegar ég var i sveit, nema kannski eitt- hvert litilræði öðru hverju fyrir kýrnar. — Telur þú að leysa mætti t.d. vandamál sunnlenzkra bænda meö aukinni votheysgerö? — Það er nú kannski ekki mitt mál að segja til um það, en ég vil þófullyrða, að of mikil þröngsýni hefur riktviða, og menn hafa ekki notaö sér möguleika votheys- gerðar sem vert væri. — Semsagt, einkennin hér eru fremur litil bú en afuröamikil. Hvað eru margir bændur á féla gssvæðinu? — Þeir eru milli 50 og 60 talsins. — Hvað er slátraö miklu hjá ykkur og hvernig er aðstaöan til slátrunar?

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.