Tíminn - 07.11.1976, Page 15
Sunnudagur 7. nóvember 1976
TÍMINN
15
Dr. Edward Schantz. Hann telur, aö orsök sjúkdómsins geti hafa
verið banvænt eitur, sem sett var í brúsa og úöað um ráöstefnu-
salina.
Sjúkdómurinn, sem herjaði
á þótttakendur á ráðstefnu
fyrrv. hermanna, morð?
Færustu sérfræðingar telja, að svo hafi verið og að banvænt eitur hafi verið notað
MENN rekur eflaust minni til
þess, er undarleg veiki kom upp
á ráðstefnu fyrrverandi her-
manna i Filadelfiu i sumar, og
lagði að velli tuttugu og niu
manns. Var strax talið, að um
virussjúkdóm væri að ræða, en
visindamenn áttu i erfiðleikum
með að greina, hvaða innflú-
ensutegund þetta væri. Við nán-
ari rannsóknir þykir hins vegar
ýmislegt benda til, að ekki
hafi verið um neina innflúensu
að ræða, heldur morð, — að ein-
hver miskunnarlaus morðingi
hafi byrlað mönnum banvænt
eitur. Þetta eru óhugnanlegar
upplýsingar, en margir helztu
sérfræðingar Bandaríkjanna
telja, að þetta sé möguleiki.
Dr. Edward Schantz, heims-
frægur lífefnafræðingur er einn
þeirra, sem aðhyllast þessa
skoðun. Hann segir, að einkenni
„sjúkdómsins” séu ótrúlega lík
einkennum, sem stafa af völd-
um ricins, banvæns eiturs, sem
unnið er úr castor baunum.
Hann telur, að morðingjarnir
hafi látið efnið í úðunarbrúsa og
átt þannig hægt með að beita þvi
gegn hermönnunum. Schantz
vann að rannsóknum á ricini við
FT. Detrick-stofnunina, sem er
rikisstofnun, þar sem llfefna-
fræðilegar rannsóknir eru gerð-
ar I þágu hernaðar, og er hann
einn helzti sérfræðingur Banda-
rikjamanna á sviði eiturefna,
hann er t.d. maðurinn, sem
fyfstur varð til að einangra eit-
ur skelfisks, sem er bráðdrep-
andi. Ricin er ekki náttúrulegt
efni og hlýtur þvi einhver utan-
aðkomandi að hafa komið með
það, segir hann. Allir á ráð-
stefnunni gætu hafa tekið það
inn, en sumir voru næmari fyrir
þvi en aðrir, og dóu.
Annar kunnur eiturefnasér-
fræðingur, dr. Ralp Fogleman,
er einnig sannfærður um, að
hermönnunum hafi verið byrlað
banvænt eitur, t.d. ricin. — Allt,
sem ég veit um þennan sjúkdóm
er, að hann var ekki smitandi.
Hann virtist svo undarlega af-
markaður, að sterkar likur eru
á að ekki hafi allt verið með
felldu. Hugsunin um, að um ó-
dæðisverk hafi veriö að ræða, er
skelfing, segir hann.
Sjúkdómurinn lagðist á eitt
hundrað sjötiu og nlu manns,
sem mættu á ráðstefnu fyrrver-
andi hermanna i Fíladelflu slö-
astliðinn júll, og drap tuttugu og
nfu þeirra. Vlsindamenn rann-
sökuðu allar mögulegar orsakir
hans, en stóðu alveg ráöþrota.
Tvö aðaleinkenni „her-
mannasjúkdómsins” voru
skemmdir I lungnavefjunum og
mjög hár hiti. Þetta eru einnig
einkenni ricineitrunar, sagði
dr. Schantz. Hann bætti þvi víð,
að á meðan hann vann við FT.
Detriek-stofnunina, hafði ricin
verið rannsakað þar með tilliti
til þess hvort hægt væri að
nota það sem vopn. „Einkennin,
sem við sáum á tilraunadýrun-
um, sem við notuðum við rann-
sóknirnar, voru þau sömu og
komu fram hjá fórnardýrum
„hermannasjúkdómsins”. Ric-
in er eitraðasta efni, sem við
þekkjum I dag, og magn, sem
ekki. er stærra en tltuprjóns-
haus, nægir til að drepa fimmtíu
mýs.
Þeir,sem stóðu að rannsókn á
sjúkdómnum, ættu að hafa tekið
það með I reikninginn, að um
ricin I loftblöndu gæti verið að
ræða. Ef morðingjarnir bættu
möluðu ricini I úðunarbrúsa,
hefðu þeir I höndunum afar á-
hrifarlkt morðtæki. Ekki væri ó-
liklegt, að þeir hefðu látið það I
brúsa með venjulegu loftræsti-
efni og siðan sprautað þvl um öll
herbergin.
Vlsindamenn við Communi-
cable Diseases Center I Atlanta
rannsökuðu möguleikana á þvl,
að hermennirnir þjáðust af ricin
eitrun. En þeir sögðust hafa af-
skrifað þann möguleika, vegna
þess að ricin, sem væri tekið I
mat eða drykk, myndi valda
miklu meiri truflun I innyflum
heldur en raun varð hjá fórnar-
lömbunum,sem urðu aftur fyrir
miklum lungnaskemmdum. En
dr. Schantz sagði, að hann teldi,
að skoðun CDC gæti ekki staöizt.
Það, að skemmdirnár urðu að-
eins I lungunum, er nákvæm-
lega það, sem hann myndi sjálf-
ur búast við að gerðist, ef fólk
andaði ricini að sér, þvl þá væri
það afmarkað við lungun. Væri
það hins vegar tekið I mat eða
drykk, væri öðru máli að gegna
og myndi það þá valda bæði
lungnaskemmdum og truflun-
um I öðrum llffærum.
Dr. Wayland J. Hays, prófess-
or I eiturefnafræði við Vander-
bilt læknaskólann staðfesti, að
ricin gæti orsakað hættulega
sjúkdóma I öndunarfærunum
alveg á sama hátt og gerðist hjá
hermönnunum. Og eiturefna-
sérfræðingur CDC, dr. Renate
Kimbrough viðurkennir, að enn
sé ekki vitað hvaða áhrif ricinið
hefði ef þvl væri andað að sér,
það væri órannsakað mál. Þá
hefur CDC viðurkennt að hafa
beðið Pentagon um upplýsingar
um möguleg örveruvopn, sem
gæti hafa verið beitt gegn ráð-
stefnumönnum.
Ef eitrið var ricin, þá hefur ó-
dæðismaðurinn ekki átt I nein-
um erfiöleikum með að útvega
sér það. Hver sem hefur ein-
hverja þekkingu á efnafræði og
hefur aðgang að tilraunastofu,
hefur auðveldlega getað unnið
það úr castor baunum, segir dr.
Kenneth Lampe, prófessor I
lyfjafræði viö háskólann I
Miami. Castor baunin vex sem
illgresi alls staðar I Suðurrlkj-
unum, Hún vex I bakgorðum,
ræsum og meira aö segja á um-
ferðareyjum.
Það er ekki mögulegt, að her-
mennirnir hafi verið sýktir af
einhverju framleiddu úr castor
baunum, t.d. laxeroliu, þvl að
þær vörur innihalda ekki ricin,
eftir þvl sem John Hayes, full-
trúi National Lead Industries,
sem er aðaldreifingaraðili vara
framleiddum úr castor baunum
I Bandarlkjunum, segir.
Ricin er prótein, sem brotnar
niður I skaðlaus efni, þegar það
er hitað. Það situr ekki eftir i
vefjum fórnardýranna og getur
eiturskammtur farið I gegnum
likamann á sólarhring eða
minna án þess að skilja eftir
merki um sig. Þetta gerir það
líka að verkum, að það getur
orðið erfitt, eða með öllu ó-
mögulegt, að fullsanna, að ricin
hafi verið orsök dauða mann-
anna 29. Þegar við upphaf rann-
sóknarinnar var langmest á-
herzla lögð á það að leita að vir-
usi! og var mikið af vefjarsýn-
um eyðilagt við það. Það vannst
þvi enginn timi til að leita að
eiturefnum. Ef blóð og þvagsýni
hefðu verið tekin strax og fryst,
væri hægt að rannsaka þau nú,
en nauðsynlegum sýnum til
eiturefnarannsókna var aldrei
safnað. Eiturefni brotna mjög
fljóttniður i blóðinu, og þótt þau
hefðu verið fyrir hendi I vöðvun-
um, væri óliklegt, að þau væru
það enn. Þrátt fyrir þetta, telja
flestir sérfræðingar nú, að um
eitrun hafi verið að ræða, og
byggja þá skoðun sina á þeim
breytingum, sem áttu sér stað I
lungum sjúklinganna og þvi
hve sóttin varði skamman tfma
og herjaði á afmarkaðan hóp.
Skipuð hefur verið þingnefnd
til að vinna að rannsóknum á
dauða hermannanna, og átti
hún að hefja störf fyrir u.þ.b.
mánuði. „Það verður að ganga
úr skugga um það, hvort grunur
um samsæri eigi við rök að
styðjast”! segir Matthew Ron-
aldo, þingmaður repúblikana-
flokksins og meðlimur I nefnd-
inni. „Of mikið er I húfi til að
láta hjá llða opinbera, nákvæma
rannsókn”.
(JB þýddi og endursagði)
Einfalt
lánakerfi
Tvöfaldir
möguleikar
Sparilánakerfi Landsbank-
ansveitir yðurrétttil lántöku
á einfaldan og þægilegan
hátt.
Taflan hér fyrir neðan
sýnir greinilega hvernig
reglubundinn sparnaður
hjóna getur til dæmis
skapað fjölskyldunni rösk-
lega eina milljón króna í ráð-
stöfunarfé eftir umsaminn tíma.
SPARIFJÁRSÖFNUN TENGD RÉTTI TIL LÁNTÖKU
Sparnaður Mánaóarleg Sparnaður i Landsbankinn Ráðstöfunarfé Mánaðarleg Þér endurgr.
yðar eftir innborgun lok tímabils lánaryður yðar 1) endurgreiðsla Landsbankanum
5.000 60.000 60.000 123.000 5.472
12 mánuði 6.500 78.000 78.000 161.000 7.114 á 12 mánuðum
8.000 96.000 96.000 198.000 8.756
5.000 90.000 135.000 233.000 6.052
18 mánuði 6.500 ‘ 117.000 176.000 303.000 7.890 á 27 mánuðum
8.000 144.000 216.000 373.000 9.683
5.000 120.000 240.000 374.000 6.925
24 mánuði 6.500 156.000 312.000 486.000 9.003 á 48mánuðum
8.000 192.000 384.000 598.000 11.080
1) I fjárhæöum þessum er reiknað með 13% vöxtum af innlögðu fé, svo og kostnaði
vegna lántöku. Tölur þessar geta breytst miðað við hvenær sparnaður hefst Vaxtakjör sparnaðar og láns eru háð vaxtaákvörðun Seðlabanka íslands á hverjum
tíma.
r LANDSBANKINN
Sparilán til viðbótar