Tíminn - 07.11.1976, Side 19

Tíminn - 07.11.1976, Side 19
Sunnudagur 7. nóvember 1976 lÍMtWl 19 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur GisIason.Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðal- stræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — auglýsinga- simi 19523. Verð i lausasölu kr. 60.00. Askriftargjald kr. 1.100.00 á mánuði. Blaöaprenth.f. Evangelistar norðurhjarans Afurðasölulögin voru upphaflega sett á kreppu- árunum. Þau voru sannkallað bjargráð i þeim þrengingum, sem þá gengu yfir þjóðina. Eigi að sið- ur urðu um þau harðar deilur, og var þar mjólkur- striðið, sem nú er fyrir löngu orðið feimnismál margra, frægast fyrirbæri. Þetta var á þeim tim- um, er Alþýðuflokkurinn var og hét, og það var at- fylgi hans og staðfestu að þakka, að afurðasölulögin voru ekki brotin á bak aftur með afleiðingum, sem torvelt er að meta, hve þungbærar hefðu orðið. Nú eru þeir liðsoddar Alþýðuflokksins, sem svo óhvikulir reyndust á þessum árum, ýmist fallnir i valinn eða komnir á grafarbakkann. Með nýjum herrum komu nýir siðir, og nú um langt skeið hefur það verið kenning forsprakka Alþýðuflokksins, að það ætti að „fækka bændum” — orðalag, bem leiðir hugann að minknum og veiðibjöllustofninum. Þetta viðhorf hefur i seinni tið hlotið meira en litinn stuðn- ing meðal nokkurs hluta Sjálfstæðismanna, og hef- ur öðru siðdegisblaðinu verið beitt röggsamlega i þágu þessa málefnis svo sem alkunna er. Fagnaðárboðskapur þess um útlendu gæðaostana hefur verið ánýjaður viðlika titt og undirstöðubeztu ritningarstaðir i stólræðum bibliufastra presta. Stöku sinnum slær þó út i fyrir þessum evangelistum norðurhjarans. Frægt varð á sinni tið, að þáverandi formaður Alþýðuflokksins girntist fleiri gærur til sútunar og sölu á útlendum markaði, þótt hann vildi fækka sauðfénu. Fávisum sálum i sveit og kaupstað gekk nokkurn veginn jafnilla að koma þessu tvennu heim og saman og þeirri kenn- ingu, að bezta aðferðin til þess að halda sjálfstæðinu væri að fórna þvi. Hefur ekki enn fengizt ráðning á þessari gátu. Aftur á móti hefur ný furða bætzt við. Einn regnþrunginn haustdag, þegar Esja skautaði hvitri hettu, kom upp úr dúrnum, þegar farið var að grina i Alþýðublaðið, að á þeim bæ fikjast menn ekki að- eins eftir sem flestum gærum af sem fæstu fé, held- ur er landbúnaður á íslandi nokkurs virði fyrir þær sakir, „að ekki viljum við hausalausir vera”. Það er jafnvel talað i sömu andránni um að „efla beri islenzkan landbúnað”, svo að sviðin hverfi ekki af matborðinu, og jafnvel flestir taldir þvi sammála, „hvað sem öllu öðru liður”. Vonandi fará að fæðast tvihöfða lömb, sem takast má að halda tórunni i. Ekki er kunnugt, að sú deild evangelistanna, sem mest rómar útlendu ostana og hefur yfir Dag- blaðinu að ráða, hafi lagt neitt til þeirra mála, hversu fá skal fleiri gærur af færra fé, og þaðan af siður, ef gærunum eiga að fylgja fleiri hausar að sviða. Kannski stöndum við andspænis þvi fyrir- bæri, að trúflokkum hættir til þess að klofna, svo sem sagan vitnar um. En það er auðvitað þeirra mál. Aftur á móti er það mál alþjóðar, að geip þessara fugla verði af virt af flestum eins og það á skilið, landbúnaðurinn verði framvegis sem hingað til þess megnugur að skila góðri fæðu á borð landsmanna, hvort heldur er mjólkurkyns eða kjöts, og þúsundir manna i fjölda kauptúna og kaupstaða geti haft lif- vænlega atvinnu við sem fjölbreyttastan iðnað i tengslum við framleiðsluna úr sveitunum. Þar eru sameiginlegir hagsmunir fólks hvort heldur það býr i húsum, sem standa fleiri eða færri saman. J.H. ERLENT YFIRLIT Tunney féll fyrir sjötugum prófessor Söguleg kosningaúrslit í Kaliforníu Það gerðist i þingkosning- unum i Bandarikjunum á þriðjudaginn var, að ekki færri en átta öldungdeildar- menn féllu af þeim 25, sem sóttu um endurkjör, en átta höfðu dregið sig sjálfviljug- lega i hlé. I flestum tilfellum áttuþeir,sem féllu, i höggi viö sér yngri og sóknharðari menn. Undantekning frá þess- ari reglu gerðist þó i Kali- forniu. Þar vann sjötugur maður sigur i keppni við einn af efnilegri forustumönnum demókrata, sem átti orðið glæsilegan feril að baki, þótt hann væri ekki nema 42 ára gamall. Sá, sem ósigur beið, var John V. Tunney, sem náöi kosningu til öldungadeildar- innar 1974, eftir að hafa átt sæti i fulltrúadeild þingsins i sex ár. Sá, sem varð sigurveg- ari, var S.I. Hayakawa, fyrr- verandi rektor háskólans í San Francisco. Fyrir tveimur ár- um hefði þaö þótt furðulegur spádómur, að Tunney ætti eftir að falla fyrir Hayakawa, en þó sýndu skoðanakannanir þá niður- stöðu, að Tunney myndi sigra Ronald Reagan með yfir- burðum, ef þeir leiddu saman hesta sina i Kaliforniu. Tunney heföi hlotið 52% at- kvæðanna, ef kosið hefði verið þá, en Reagan sem þá var og er, langvinsælasti leiðtogi repúblikana i Kaliforniu, alls 39%. Það þótti öruggt þá og raunar allt fram á siðasta vor, að Tunney ætti auðvelda endurkosningu. FERILL þeirra Tunneys og Hayakawa er á margan hátt ólikur. Tunney er sonurhnefa- leikakappans fræga, Gene Tunneys, sem eitt sinn var heimsmeistari. Hann lauk laganámi frá Yale 1956 og stundaði siöan framhaldsnám við lagaháskólann i Virginia, þarsem Ted Kennedy var her- bergisfélagi hans i tvö ár. Sið- an hefur verið mikil vinátta milli þeirra. Tunney kom fyrst til Kaliforniu 1958 til að vinna fyrir John F. Kennedy. Hann tók sér siðan bólfestu þar sem lögfræðingur hjá flughernum. Arið 1964sótti hann um kjör til fulltrúadeildarinnar og náði kosningu. Hann var endurkos- inn tvisvar sinnum, en 1970 bauð hann sig fram til öldungadeildarinnar gegn George Murphy, sem hafði sigrað glæsilega i næstu kosningum á undan, enda ná- inn félagi Reagans og hafði áður verið leikari eins og hann. Tunney gat sér gott orð i öldungadeildinni fyrstu ár sin þar, en þótti heldur slá slöku við siðari árin. Þó var hann talinn viss um endurkjör, unz Tom Hayden ákvað að keppa við hann i prófkjörinu. Tom Hayden vann sér mikið frægðarorð sem einn helzti leiðtogi stúdentahreyfingar- innar gegn Vietnam-styrjöld- inni og var hann þá jafnframt einn helzti forustumaður rót- tækustu aflanna i flokki demókrata. Hann giftist siöar leikkonunni Jane Fonda og studdi hún hann i prófkjörinu. Hayden deildi mjög hart á Tunney fyrir ýmsan ódugnaö og reyndist nú sem fyrr mjög , snjall áróðursmaður. Tunney bar samt sigur af hólmi. Hayden náði hins vegar betri árangri en spáð hafði verið. Hann fékk 1.2 milljónir at- kvæða, en Tunney 1.7 millj. Seja má, aöTunney hafialdrei náð sér eftir árásir Haydens i sambandi við prófkjörið, enda notuðu repúblikanar sér þær óspart i sjálfri kosningabar- áttunni. HAYAKAWA er fæddur i Kanada, kominn af japönsk- um foreldrum. Hann flutti til Bandarikjanna 1929 að loknu námi i málvisindum. Hann fékk fljótt prófessorsstöðu og hefur verið eftirsóttur kennari við ýmsa háskóla. Jafnframt kennslunni hefur hann samiö ýmis fræðirit, sem hafa hlotið mikla viðurkenningu. Hann gekk fljótlega i flokk demó- krata eftir aö hann kom til Bandarikjanna og var um skeið i róttækari armi hans og skrifaði þá talsvert af blaöa- greinum i þeim anda. Þegar stúdentar tóku að gerast mjög uppivöðslusamir i háskólum á siðari hluta sjöunda áratugs- ins, snerist Hayakawa mjög eindregið gegn þeim. t rlkis- stjórakosningunum i Kali- forniu 1956 hafði Hayakawa unnið gegn Reagan, en eigi aö siöur skipaði Reagan hann þó rektor eða framkvæindastjón viö háskólann i San FranGÍsco, þar sem uppivaðsla stúdenta var hvað mest. Hayakawa gekk svo hart fram i þvi aö bæla óeirðirstúdenta niður, að hann varö frægur um öll Bandarikin, enda bar hin röggsama stjórn hans fullan árangur. Hayakawa varð hins vegar fyrir hörðum ádeilum róttækra demókrata og sagði hann þvi skilið við flokk demó- krata 1973. Næsta ár reyndi hann að komast i framboð fyr- ir repúblikana við kosningar til öldungadeildarinnar, en tapaði i prófkjörinu. Hins veg- ar sigraði hann i prófkjörinu nú, en það stafaði af þvi, að tveir frjálslyndir repúblik- anar kepptu við hann og skiptu á milli sin rúmlega 60% af at- kvæðamagninu. Annar þeirra var Robert Finch, sem um skeið var heilbrigðismálaráö- herra hjá Nixon, en hafði ekki lynt við hann. 1 kosningabar- áttunni þótti Hayakawa heldur aðsópslitill ræðu- maður, en hann þótti svara vel spurningum, enda lét hann spyrja sig spjörunum úr. Hann vildi ekki kannast við þaö, að hann væri mjög i- haldssamur, þótt hann vildi halda uppi lögum og reglum. Sigur hans byggöist m.a. á þvi, að róttækustu fylgismenn Haydens kusu ekki Tunney. Þaö má þvi segja, að hin óvæga keppni i prófkosning- unni hafi orðið Tunney mest að falli. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.