Tíminn - 07.11.1976, Qupperneq 28
28
TÍMINN
Sunnudagur 7. nóvember 1976
Háteigssókn:
Samsæti til
heiðursséra Jóni
og konu hans
Séra Jón borvarðsson sóknar-
prestur Háteigskirkju kvaddi
söfnuð sinn við hátiðlega guðs-
þjónustu sunnudaginn 31. okt. s.l.
eftir 24 ára gifturikt starf. Hann
verður sjötugur miðvikudaginn
10. nóv. n.k. 1 tilefni þessa hefur
sóknarnefnd og Kvenfélag
Háteigssóknar ákveðið að gang-
ast fyrir samsæti presthjónunum
til heiðurs.
Samsætið verður haldið i Súlna-
sal Hótel Sögu á afmælisdaginn.
Verið
Hafið
Chubb Fire
slökkvitæki ávalit við
hendina.
Vatnstæki
kolsýrutæki
dufttæki
slönguhjól
slönguvagnar
eldvarnarteppi
Munið:
A morgun
getur verið of seint
að fá sér slökkvi-
tæki
f
Olatur Gíslason
& Co. h.f.
Sundoborg Reykjavík
Sími 84-800
Flateyri viö önundarfjörð — þaöan er yfir Breiðadalsheiði, einn af hærri fjallvegum landsins, að fara til Isafjaröar, og innansveitar
er oft mjög snjóþungt.
Kristinn Snæland sveitarstjóri:
Kúabúskapur og vegir
Sú ánægjulega þróun er hér, aö
bæjum i byggð virðist ætla að
fjölga, en sl. sumar voru hafnar
endurbætur að Hesti og Kirkju-
bóli I Korpudal. Báðar jarðirnar
hafa verið i eyði, en nú er föl-
skylda þegar flutt að Kirkjubóli
og er þar unniö að endurbótum á
fbúöarhúsi og útihúsum. Vænta
menn þess, að einnig verði fljót-
lega farið að búa að Hesti, en
þar þarf algcrlega að byggja
útihús.
Óhætt er að vera bjartsýnn
um framtið búskapar hér
vestra, enda eru margir ungir
menn um hverja jörð sem losn-
ar. Vandamál eru þó mörg, og
má nefna sem dæmi, að frá
Vifilsmýrum flutti ungur bóndi
sl. vor austur i Fljótshlið og
mun ástæðan hafa verið sú, að
hann treysti sér ekki til að
stunda áhugastarf sitt, kúa-
búskap, við þærsamgöngur sem
hér eru, en á veturna verða
mjólkurframleiðendur að flytja
mjólkina á dráttarvél að
bryggju i Holti, en þangað er
hún sótt af djúpbátnum Fagra-
nesi. Svo ótryggar eru þær sam-
göngur, að það kemur í veg fyrir
að stór kúabú séu rekin hér og
einnig hrekur þetta ástand i
brott þá, sem stórhuga eru i
þeim efnum. bá hamlar enn-
fremur, — og þaö geigvænlega,
— fjárskortur lánastofnana
landbúnaðarins og hefur það
orðið duglegum ungum mönn-
um i landbúnaði hér í friðinum
og nágrenni mikill fjötur um fót.
Er hastarlegt, að fjárskortur
til uppbyggingar skuli koma i
veg fyrir að ungir menn á þvi
svæði, sem kallast má óska-
svæði mjólkurframleiðslu á
Vestfjörðum geti orðið við ósk
þéttbýlisins hérum næga mjólk.
Vissulega eru slæmar innan-
sveitarsamgöngur snarþáttur i
þessu,enda hafa nú Vestfirðing-
ar markað þá stefnu með sam-
þykkt á fjórðungsþingi i
Reykjanesi sl. haust, að í vega-
málum skuli fyrst leggja
áherzlu á tengingu innan sveit-
anna, þannig að sæmilega verði
vetrarfært.
Sú ágæta hugmynd nýkomin
fram á Alþingi, að leggja mal-
bik á alla þjóðvegi, er góðra
gjalda verð, en svo mikið átak
er eftir, til þess eins að gera
vegi hér vestra vatnsfria (mjög
viða eru vegir hér enn þannig að
lækir eru farnir á vaði), að ekki
sétalað um snjólétta, að slikt tal
fær næsta litinn hljómgrunn.
Gallinn er sá, að vandamál
þeirra, sem búa við hina lélegu
smá vegarspotta hingað og
þangað um landið, er ekki eins
samanþjappað og i heild áber-
andi og t.d. slæmur vegur yfir
Holtavörðuheiði. bá fáu daga á
vetri hverjum sem hún lokast,
stynur allt Norðurland og Vest-
firðingar i Strandasýslu. bó eru
tæki við heiðina, ávallt til að-
stoðar og opna hana reglulega.
1 Valþjófsdal i önundarfirði
eru 5 bæir i byggð, frá þeim að
mjólkurbryggjunni i Holtieru 5-
7 km, til Flateyrar um 30 km.
Samkvæmt þeirri háðung,
þeirri heilögu kú, sem kallast
snjómokstursreglur Vegagerð-
ar rikisins, skal aldrei moka
snjó af veginum úr Valþjófsdal
aö mjólkurbryggju. baðan i átt
til Flateyrar er siöan um 5 km
kafli, sem fellur undir sömu
reglu, aldrei skal moka! Vegur
þessi er viða mjög lágur og
alveg niðurgrafinn. Við
mjólkurbryggjuna i Holti er
flugvöllur, sem eins og bryggj-
an þjónar önfirðingum og að
hluta Dýrfirðingum. 1 Holti er
barnaskóli sveitarinnar, þar er
prestsetur og þar býr
hjúkrunarkona, sem starfar við
Heilsugæslustöð á Flateyri. Við
þénnan vegarspotta, 10-12 km,
erusiðan nokkur býli enn ótalin.
1 þá heild, sem tengist flug-
vellinum i Holti og mjólkur-
bryggjunni má svo taka Flat-
eyri og býli i önundarfirði, önn-
ur en áður eru nefnd, auk þess
unglinga- og gagnfræðaskólann
að Núpi i Dýrafirði og sveitir
norðan Dýrafjarðar. Loks má
nefna tengingu bingeyrar og
sveitanna sunnan Dýrafjarðar
við norðursvæðið, en það er t.d.
læknisþjónusta á báða bóga
eftir atvikum, þjónustustarf-
semi margs konar og verzlun.
Mjög brýnt er að ákvörðun
verði tekin um brúargerð á
Dýrafjörð og önundarfjörð.
Sérstaklega þarf að benda á og
itreka það álit heimamanna, að
brú á Dýrafjörð er eina varan-
lega lausnin i samgöngum Dýr-
firðinga. Allt fé og fyrirhöfn við
vegum Dýrafjarðarbotn verður
einungis til að tefja byggingu
þeirrar brúar, sem koma mun á
Dýrafjörð og þá hefur þvi verið
kastað á glæ. Nokkur stórvirki
þarf að vinna i samgöngumál-
um á Vestfjörðum, m.a. Dýra-
fjarðarbrú, brú á önundarfjörð,
og betri veg i Súgandafjörð,
göng i Breiðadalsheiði. Tryggja
þarf öryggi vegfarenda um Ós-
hliðarveg, nýjan veg suður úr
Djúpi, vinna þarf að tengingu
Strandsýslu vestur og öruggri
tengingu Barðastrandarsýslu
suður. bessi stórvirki, og jafn-
framt góðir vetrarvegir innan-
sveitar, eru þvilik verkefni, að
a.m.k. I min eyru hljómar tal
um malbik á alla þjóðvegi hálf
hjákátlega eins og sakir standa.
Sé aftur vikið að innan-
sveitarmálum kemur að þvi
sem erfiðast hefur verið i sam-
göngumálunum, en það er kúa-
búskapur Vegagerðarinnar.
Vegagerð rikisins rekur bú
með einni kú, sem mun svipuð
og gerist i Indlandi, sem sé kýr-
in er heilög og við henni má ekki
hrófla, þar að auki hlýtur hdn að
vera geld eða allavega vel i
sveit sett, þvi ekki virðist vera
vandi að koma frá henni mjólk-
inni.
Snjómokstursreglur Vega-
gerðarinnar eru ,,hin heilaga
kýr”. Ár eftir ár hefur verið
hamrað á þvi, að snjómoksturs-
reglum verði breytt, en ekkert,
bókstaflega ekkert, hefur verið
komið til móts við óskir heima-
manna i þessu efni.
bað þarf mikinn kjark, áræði
dugnað og bjartsýni til að hefja
búskap við slikar aðstæður. bað
fjarstæðukennda i þessu öllu er
þó, að snjór er hreinsaður af
flugvellinum þrisvar i viku
(vegna áætlunarflugsins), þó
svo vegurinn sé aðeins
hreinsaðuraðhluta vikulega, að
hluta mánaðarlega og að hluta
aldrei allan veturinn.
Vissulega er um tvær ríkis-
stofnanir að ræða, en þær heyra
þó báðar undir sama ráðuneyti.
begar haustar að og snjór sezt i
fjöll, spyr maður: Hefur ekki
Vegagerðin slátrað kúnni?
Sovéskir kynningardagar AAÍR 1976
Armeníukvöld
Tónleikar og danssýning i bjóöleikhúsinu mánudaginn 8.
nóv. kl. 20.
Einleikur á selló, planó og þjóðleg armensk hljóöfæri.
Einsöngur og þjóðdansasýning.
Siðasta tækifæri til að hlýöa á og sjá listflutning hinna frá-
bæru listamanna frá Armenfu.
Aðgöngumiðasala i bjóðleikhúsinu. Miöaverö kr. 800 og
400.
MIR
Auglýsið í Tímanum
meXÍlKALKSTEINN
Vmsar þykktir
Margir litir
Fúgufyllir úr
sama efni
BVGGCR H*
1Í4K#
Grensdsvegi 12 — Simi 1-72-20