Tíminn - 07.11.1976, Page 29

Tíminn - 07.11.1976, Page 29
Sunnudagur 7. nóvember 1976 TÍMINN 29 Foreldra og styrktarfélag heyrnardaufra Góður órangur d dratugs starfsferli Tiu ár i sögu félags er ekki langur timi, þó er þaö svo, aö Foreldra og styrktarfélag heyrnardaufra sem nú litur yfir farinn veg aö loknum 10 fyrstu starfsárunum, getur aö ýmsu leyti veriö ánægt meö árangur starfsins. Verður nú stiklaö á nokkrum helztu atriðunum: A fyrsta ári var hafizt handa um aö afla upplýsinga um mál- efni heyrnarlausra á Islandi til aö kynna þau mál fyrir almenn- ingi. — Var fyrir tilstuðlan fé- lagsins haldiö útvarpserindi af Brandi Jónssyni skólastjóra Heyrnleysingjaskólans. Þá voru birtar greinar um þessi mál I timaritinu Menntamál og HeimiliogSkóli. Ennfremurgaf félagiö út bækling sem Herdis Haraldsdóttir heyrnleysingja- kennari gerði fyrir félagið og ber hann heitið: Agrip af þróunarsögu heyrnleysingja- kennslunnar og hugleiðingar um vandamál heyrnarlausra barna. Hefur þessum bæklingi veriö dreift viöa, meðal annars I nokkrum skólum. Þegar félagiö var stofnað 1966 var bygging nýs Heyrn- leysingjaskóla orðin mjög aö- kallandi og vann félagiö ötul- lega að þvi, ásamt skólastjóran- um, aö hrinda þvi máli i fram- kvæmd. Félagiö átti fulltrúa I byggingarnefnd skólans. Kennsluhúsnæöiö er nú fullbúið og allt hiö vandaöasta. Félagiö hefur lagt nokkuð af mörkum árlega til kaupa á tómstunda- og iþróttatækjum til skólans. A vegum félagsins hefur verið unnið að gerð orðabókar, sem einkum á aö vera sniöin viö þarfir heyrnadaufra. Hefur félagið fengiö nokkurn styrk frá rikinu til þessa. Er þaö mál nú á lokastigi. Félagiö átti íulltrúa I nefnd, sem skipuð var af menntamála- ráöuneytinu til aö fjalla um skipulag kennslu heyrnar- daufra. Nefndin sendi frá sér nokkrar álitsgerðir til ráöu- neytisins, og hefur lokiö störf- um. Strax á þriðja ári félagsins opnaði félagiö skrifstofu og hef- ur smám saman aukiö starf- semi sina meö þvi aö nú um rúmlega eins og hálfs árs skeið hefur félagið rekiö þjónustu viö félagsmenn sina og heyrn- leysingja. Hefur þessi þjónusta mælzt mjög vel fyrir og hafa heyrnar- lausir notfært sér hana i æ rikari mæli. Erhér um aö ræöa félags- ráðgjafastörf i þágu heyrnleys- ingja, sem vissulega var brýn nauðsyn á. A 5. starfsári félagsins efndi það til ráöstefnu meö heyrnar- daufu fólki viöa aö af landinu. Fengust þar upplýsingar um hagi þess og afkomu. Þetta var liöur i þeirri viöleitni félagsins að efla kynni viö heyrnardauft fólk. A þessum árum hefur félagiö fengiö marga fyrirlesara, bæöi Islenzka og erlenda, enda er einn þáttur i starfi félagsins sá að fræða félagsmenn um mál er snerta heyrnardaufa. Hin siöari ár hefur starf félagsins i auknum mæli beinzt aö þvi aö auka samskipti viö Féiag heyrnarlausra. Hefur samstarfsnefnd veriö stofnuö sérstaklega I þvi skyni, og hefur þessi nefnd haft forgöngu um aö Félag heyrnarlausra er nú full- gildur aöili aö Noröurlandaráöi heyrnarlausra og var siöasti fundur ráösins haldinn i Reykjavik 15.-17. október siðastliðinn. 1 júlimánuöi siöastliönum var haldið norrænt æskulýösmót fyrir heyrnarlausa aö Reykholti I Borgarfirði. Mótiö tókst sér- staklega vel og voru þátttak- endur 137, en þaö er fjöl- mennasta mót, sem haldiö hefur veriö af þessu tagi. Greinar I timaritum heyrnar- lausra á Norðurlöndum benda til, að almenn ánægja hafi veriö með mótið. Fimm aldraöir heyrn- leysingjar sóttu ráöstefnu I Finnlandi siðastliöiö sumar, og er nú ákveöið aö næsta ráö- stefna fyrir aldraöa heyrnleys- ingja verði halain hér á landi næsta sumar. Ennfremur fóru 2 piltar til Noregs á námskeið i félagsmál- um heyrnarlausra i ágústmán- uði siðastliðnum. Þá tóku 5 is- lenzkir heyrnleysingjar þátt I skákmótum erlendis á siöast- liðnu sumri. Má af þessu sjá aö fslenzkir heyrnleysingjar taka nú I æ rik- ari mæli þátt i norrænu sam- starfi og hefur þaö vikkaö sjón- deildarhring þeirra. Þessi þátttaka byggist á þvi, að heyrnarlausir nota sitt eigiö mál, táknmálið, sem gerir þaö aö verkum, aö þeir skilja auö- veldlega^hvorn annan þó þeir séu af ólfku þjóöerni. Sumarið 1975 gengust félögin fyrir 5 daga námskeiöi i tákn- máli fyrir almenning I Norræna húsinu. Sóttu þaö um 80 manns. Vorið 1976 var gefin út i fjöl- rituöu formi bókin Táknmál, en hún er teiknuö af islenzkum pilti, og I henni eru 1388 tákn. Hefur bók þessi vakið verö- skuldaöa athygli bæöi hér á landi og erlendis. M.a. var hennar getið I sérstökum þætti I danska sjónvarpinu. Siöar I vetur veröur haldiö námskeiö fyrir almenning I táknmáli. Gerö hefur veriö skýrsla af dönskum heyrnleysingjaráö- gjafa um stöðu heyrnleysingja á Islandi. Af henni má ráöa, aö brýn nauðsyn er á aö starfandi sé félagsráðgjafi fyrir heyrnar- lausa hér á landi eins og tiðkast I öörum löndum. Allt starf félagsmanna er sjálfboöavinna, en þó fer ekki hjá þvi, aö nokkurt fé þarf til starfseminnar. Drýgsta tekju- lind félagsins hefur veriö bazar, sem félagskonur gangast fyrir á hverju hausti. Er þetta veiga- mikill þáttur i félagsstarfinu. Nú hin siöari ár hefur félagiö gengizt fyrir happdrætti i sam- vinnu við Félag heyrnarlausra, auk þess hefur félagiö notiö nokkurra styrkja frá hinu opin- bera. Minningarkort félagsins fást I Bókaverzlun Isafoldar, Austur- stræti. Foreldra og styrktafélag heyrnardaufra er aöili aö Or- yrkjabandalagi Islands. A aðalfundi félagsins, sem haldinn var 2. október siöastliö- inn, rikti mikill einhugur og voru margar samþykktir gerö- ar varðandi starf félagsins, stööu þess og stefnu. Skrifstofa félagsins er nú aö Hátúni 10A simi 13240 og er hún opin fyrir hádegi. (Frá Foreldra- og styrktarfé- lagi heyrnardaufra.) Þetta er eitt af mörgum fallegum sófasettum, sem þér getið skoðað i verzlun okkar. OC ALFA-LAVAL Bændur — Athugið Eigum fyrirliggjandi til afgreiðslu nú þegar örfá ALFA-LAVAL RÖRMJALTAKERFI með öllum bezta fáanlega úfbúnaði. Viljum benda á, að 50% stofnlán fæst út á mjaltakerfi. Gerið góð kaup og hafið samband við okkur nú þegar. Næsta sending kemur ekki fyrr en eftir áramót og munu þau kerfi verða dýrari vegna hækkunar erlendis. Hafið þvi samband strax! \ Samband islenzkra samvinnutelaga VÉLADEILD Armula 3 Reykjavik simi 38900

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.