Tíminn - 07.11.1976, Page 35
Sunnudagur 7. nóvember 1976
TÍMINN
35
Ásgeir Ásgeirsson:
6. grein
n
Bóndi minn, þitt bú..."
Milliþankar
Greinarhöfundur hefur um
nokkurn tima safnað heimildum
um islenzkan búnað, framtil
1900 sameiginlega um búnaö og
sjávarsókn, en eftir þau tima-
mót mestmegnis varðandi bún-
að.
Eins og allir vita höfum viö
eignazt, og reyndar eigum enn,
marga djarfhuga framsýnis-
menn um' búnað, suma bætta
aðraóbætta.eða ölli heldur mis-
skilda. Ég ætla mér ekki að fara
aö „dósera” að svo stöddu um
alla þessa frammámenn, en
langar þó aðeins að benda þeim
er kunna renna augum yfir
þessar llnur á, að hugsa svolítiö
til tveggja liðinna afburða-
manna og eiginkvenna þeirra.
Þau eldri voru Torfi Bjarnason
og Guölaug Zakariasardóttir en
þau yngri Thor Jensen og Marg-
rét Þorbjörg.
Torfi var alinn af bláfátækum
bónda, guöhræddum nokkuð
lesnum en litlum búmanni, og
greindri og hvetjandi mann-
þekkjara sem móöur. Fyrir til
stilli ýmissa frammámanna i
Húnavatnssýslu fer Torfi utan
vegna fyrirhugaðs „fyrirmynd-
arbús” er þeir hugðust láta
hann stýra. Þegar til kemur
heykjast stuðningsmenn hans á
öllum framkvæmdum, hann fer
suður til Borgarfjarðar með
styttu sina og stoð og tvær
komadætur, sezt þar á kosta-
jörð, skuldum vafinn, og hefst
handa um framkvæmdir. En
Adam var ekki lengi i paradis,
héraðsmönnum þótti hann full
aðfinnslusamur með fram-
kvæmdamóðnum, sem setti
stimpil á skussaskap þeirra.
Endirinn varð sá, að hann fer
þaðan eftir tvö ár, og kveður
sina vildarvini, lækninn, stór
bónda, yfirvaldiö og ekki slzt
húsfreyjuna að Ausu.
Marga undrar þá ákvöröun
Torfa að setjast að f Ólafsdal,
til að mynda þar átakasmiðju.
Ekki þykir mér ósennilegt að
með þessu hafi aðallega tvennt
vakað fyrir Torfa, fyrst það að
hann var þá farinn að sjá fram
til sérstaks búnaðarskóla' fyrir
Dala--ogStrandamenn aðallega
og svo I annan staö svona til aö
láta Húnvetninga sjá að „fyrir-
myndarbú” væri hægt að setja
upp víðar en á viölendum gras-
löndum. Atthagar og skyld-
menni hafa eitthvað dregiö
einnig.
Oftast hefur það verið svo, að
hann næðir kaldur og nistandi
að norðan, ekki frá mönnum,
heldur vegna landsetu okkar.
En nú skeður það einkenni-
lega, fljótlega eftir að Torfi
hafði komið á fót búnaðar- og
kennaraskóla, tekur til að anda
á hann að sunnan „iskaldur”
stormur, ekki frá pólnum heldur
frá mönnum. Sagan endar eins
og mörgum er kunnugt, skólinn
er lagður niður 1907.
Ég sagðihér að framan kenn-
araskóla, og meina ég það
vegna þeirra staðreynda, að um
50-60 nemendur Torfa stunduðu
jöfnum höndum jarðyrkjustörf
og barnauppfræðslu um land
allt, og margir þeirra lögðu
kennslu fyrir sig semævistarf,
jafnfætis Möðruvalla- og Flens-
borgarnemendum.
Torfi gat ekki unnið Grettis-
tak sitt, án stuðnings konu er
fæddi og mannþroskaði mikið á
aðra tylft eigin og annarra
barna.
Aðstoð þessa kunni Torfi vel
að meta, og viðurkenndi kinn-
roðalaust að Guðlaug. gæti búið
án hans, en hann ekki án henn-
ar.
Það er gott til þess aö vita að
undir stjórn Arna Jónssonar,
landnámsstjóra er stöðvuð eyði-
legging á merkisminjum, er fór
fram i Ólafsdal fyrir nokkrum
árum, að þvi er bezt verður séð
með „ráðuneytisleyfi”. — Nú
eru komin þar ungmenni, sem
aö þvi ég bezt veit virða það litla
af minjum sem enn eru á þess-
um merkilega brautryöjanda
staö.
Arið 1878, kom 15 ára gamall
danskur verzlunarlærlingur til
Borðeyrar. Thor Jensen hét
hann, og lagði sig fljótt fram um
að kynnast fólkinu er hann um-
gekkst og læra mál þess. Hann
hafði opið gestsauga fyrir þvi að
hér var viða þörf til úrbóta i
verzlunarháttum, útvegsmálum
og I búnaöarháttum.
Ekki minnkaði áhuginn' fyrir
umhyggju lands og lýðs eftir aö
hann hafði fundið hinn trygga og
mikilhæfa llfsförunaut.
Ég ber ekki mikið skyn á út-
gerö en veit þó aö þaö sem Thor
Jensen geröi á þvl sviöi, hefur
orðiö.til að styðja að gjörbylt-
ingu, kannske ekki áfallalaust,
og ég hygg að það séuekkiimargir
sem geti mælt sig þar við miöað
við sömu aðstæður.
En það var fljótlega andað
köldu að Thor Jensen og ein
kennilegt var það, að þar var að
verki maður, er hafði hlotið
mest af sinni afgerandi mennt-
un hjá skyldfólki Thors, sem
blés hvað óbilgjarnast. Núna,
hálfri öld eftir að Thor Jensen
hóf glæsilega stórhuga bú-
rekstur á melum kringum
Reykjavlk, eru að rlsa upp
nokkrir ungir menn, sem óbeint
feta ifótspor hans, og er það vel.
Það ersorglegt til þess að vita
aðundirforystu manna,er töldu
sig vinna fyrir bændur og „sam-
vinnuandann”, var drepinn
niður viðleitni Thors til að sýna
hvað hægt væri að gera, i stað-
inn fyrir að gefa honum tima til
að aðlaga sig að „kerfinu”.
Ljótur blettur I sögu íslenzks
búnaðar það. En eilitil meinabót
er að melar Thors hafa um
nokkurt skeið verið notaðir til
þarflegra tilrauna undir stjórn
ungra visindamanna, og munu
eflaust gefa góða raun áður en
langt liður.
Mikið skelfing vorum viö
mörg börnin á stundum, á hinu
móðurlega heimili Margrétar
Þorbjargar. 1 ótal skipti var
komið út á eldhúströppurnar og
kallaö á hópinn sem var að
renna sér á sleða eða að mynda
snjókerlingar og karla á lóðinni
við Frikirkjuveg 11. öllum var
veitt súkkulaði, brauð, kleinur,
ástarpungar eöa nýbakaðir
klattar, — og fallegt var brosiö á
vörum húsbóndans þegar hann
leit yfir allan hópinn og renndi
viðurkennandi augum til konu
sinnar.
Ég vona að enginn er kann að
lesa þessa „milliþanka”, fyrtist
þó ég haldi fram með sama efni
og i fyrri greinum, en þaö
verður gert næst.
Reykjavik 4.11.1976,
Ásgeir Asgeirsson.
Upplýsingabeiðni
Af gefnu tilefni vil ég hér með
biðja þá er þekkja af eigin raun
eöa annarra, til notkunar á salti
I heyverkun, hvort heldur er I
vott eða þurrt, sendi mér stutta
lýsingu þar um.
Ásgeir Ásgeirsson
Pósthólf 5213
Reykjavík.
NYOG
LAUSN
Álplötur,
seltuvarðar, mec
innbrenndum litum.
Framleiddar af Nordisk
Aluminium %, Noregi.
Norsk gæðavara.
Nýtískulegt útlit og uppsetning auðveld.
Reynist vel við íslenskar aðstæður. Leitið nánari
upplýsinga og kynnið ykkur möguleikana.
INNKALJP HF
ÆGISGÖTU 7 REYKIAVIK. SÍMI 22000-PÓSTHÓLF 1012
TELEX 2025 SÖLUSTIÓRl: HEIMASÍMI 71400.
AUGLYSID I TIAAANUM
AAilli dranna 1974 og 1975
Verðhlutföll útflutnings og
innflutnings versnuðu um 21,7%
FJ-Reykjavik. Frá árinu 1974 til
1975 hækkaði verð innfluttrar
vöru um 72% en verðhækkun á
útflutningi okkar varð 34,7%
segir i nýútkomnum verzlunar-
skýrslum fyrir árið 1975. Inn-
flutningsmagnið minnkaði um
15% en i útflutningnum varö
7,9% aukning á vörumagni.-
Veröhlutföll útfluttrar vöru og
innflutnings breyttustum 21,7%
okkur i óhag.
Af útflutningsverðmæti ársins
1975 námu sjávarafurðir 37
milljöröum 338,9 milljónum
króna, iðnaðarvörur átta
milljörðum 53,3 milljörðum,
landbúnaðarafurðir einum
milljarði 374,1 milljón króna og
annar útflutningur nam 668,7
milljónum króna.
EÖSEÖEEEíslS[3[3[3[a|a[3[3[g[g[g[g[g[g[g[g[g[g[a[g[á[g[g
Underhaug
VOR-VINNUVÉLAR
Bendum sérstaklega á Troll
kartöflusáðvélar með áburðar-
kassa og nýju, sjálfvirku kartöflu-
sáðvélarnar fyrir spíraðar
kartöflur.
Vekjum einnig athygli á hinu fjöl-
breytta vöruváli frá Underhaug:
Traktor-tengirammar með tilheyr-
andi raðhreinsibúnaði. Eins-fræs-
sáðvél. Traktor-tengibúnaður til
yfirbreiðslu á plasti. Myndalistar
og verð hjá sölumönnum.
Bændur —
vinsamlega pantið
vorvinnutækin frá Underhaug tímanlega
til að tryggja örugga afgreiðslu í vor
Kaupfélögin
UM ALLTIAND
[g[g[g[g[g[g[g[g[g[g[g[g[g[g[g[á[g[g[g[g[g[g[g|g[g[g[g[g[gQ[g[á
Samband islenzkra samvinnutélaga
VÉLADEILD
Ármula 3 Reykjavik simi 38900
X
J