Tíminn - 07.11.1976, Blaðsíða 36
36
TÍMINN
Sunnudagur 7. nóvember 1976
Hvað verður nýtt að lesa í vetur?
Jónas Arnason.
íslendingar i Vesturheimi,
land og fólk, Þorsteinn Matt-
hfasson skráBi. Þetta er allstór
bók um landnám Islendinga viB
Vinnipegvatn, auk fjölda per-
sónusagna landnema og afkom-
enda þeirra. ViB lestur þessarar
bókar verBum viB margs visari
um ótrúlega erfiBleika þar
vestra og dugnaB og þrautseigju
innflytjendanna, sem aldrei létu
bugast. Nærfellt eitt hundraB
myndir eru i bókinni.
Mörg eru geö guma. Agúst
Vigfússon segir frá samtiBar-
mönnum. Honum er einkar lag-
iö aö segja frá fólki, sem hann
hefur kynnzt á lifsleiöinni og er
óvenju næmur fyrir ýmsu þvi i
fari manna, sem öörum sést yf-
Óskar ABalsteinn.
ir. Einkum eru honum hugstæö-
ir þeirsem oröiö hafa utangarös
eöa ekki fariö alfaraleiöir I lifs-
háttum. En einnig slæöast inn I
frásagnir hans kjarnamenn og
andans jöfrar, svo sem Hanni-
bal, Siguröur i Holti og Steinn
Steinarr.
Margar ágætar myndir eru I
bókinni,oghefur Kristinn G. Jó-
hannsson, skólastjóri á Ólafs-
firöi, teiknað þær.
Veturnóttakyrrur eftir Jónas
Arnason, önnur prentun. Þetta
er þriðja bók Jónasar, sem hef-
ur veriðendurprentuð. Hún kom
fyrst út fyrir nltján árum, og
hefur verið ófáanleg um langt
skeið. Þvi má búast viö, aö hún
verði mörgum kærkomin nú.
Þorsteinn Matthiasson.
Jónas er og veröur alltaf Jónas,
og er alltaf skemmtilegur, og
still hans og frásagnarháttur
eru hans séreign. Margir telja
Veturnóttakyrrur beztu bók
hans.
Héraössaga Súgfiröinga,
Gunnar M. Magnúss, skráöi.
Ráögerter.aöþetta veröi fyrsta
bókin I flokki héraössagna Vest-
íjarða. Þetta er mikil bók aö
vöxtum og fróöleg mjög. Hún
fjallar um kjarnafólk I sérstæöu
umhverfi og viö sérstök lifsskil-
yröi. 1 bókinni eru á annað
hundraö myndir af fólki, skip-
um og byggð.
Vökuljóð fyrir allar, ljóðabók
eftir Óskar Aðalstein. Óskar
hefur áður gefiö út sextán bæk-
Gunnar M. Magnúss.
ur, en þetta er frumraun hans i
útgáfu ljóða, þótt hann hafi hins
vegar lengi haft ljóöagerö um
hönd. — Þetta er litil, snotur
bók, prýdd teikningum eftir
Gisla Sigurðsson.
Poseidonslysiö eftir Paul Calli-
co, Báröur Jakobsson þýddi.
Hópur fólks, æriö sundurleitur,
freistar þess að bjarga lifi sinu
viö þessar fjarstæöukenndu aö-
stæöur, þegar allt stendur á
höföi. Erfiðleikar þess eru ótrú-
legir, og margt óvænt hendir áö-
ur en lýkur. Sagan var kvik-
mynduð, og myndin hefur veriö
sýnd I Nýja Bió i Reykjavik.
Isadora eftir Erica Jong. A
frummálinu heitir bókin Fear of
Flying, en hér er hún látin bera
nafn stúlkunnar, sem söguna
segir. Óli Hermanns þýddi bók-
ina á islenzku. Hún er þekkt
viða um lönd, og hefur veriö
þýdd á fjölmargar tungur.
S.S foringinn heitir bók eftir
Sven Hazel. Hún fjallar aö
Agúst Vigfússon.
mestu um orrustuna viö Stalin-
grad, undanhaldiö þaöan, og
ótrúlegar mannraunir.
Hreinsanir Stormsveitanna eru
svo annar meginþáttur bókar-
innar. Eins og allar bækur Haz-
els er þessi mögnuö ádeila á
striösbrjálæöi og þann viöbjóö,
sem styrjöldum fylgir.
Sýningarstúlkan heitir ný bók
eftir Denise Robins. Valg. B.
Guðmundsdóttir þýddi. íslenzk-
ar konur þekkja oröiö mætavel
Denise Robins, og hverju sem
fram fer um jafnrétti kynjanna,
þá er þessi bók fyrst og fremst
gefin út konum til ánægju og
eignar.
Söngvareftir Gisla Kristjáns-
son,«undhallarstjóra á Isafiröi,
er gefin út af höfundi, en er til
dreifingar hjá Ægisútgáfunni.
Gisli er sjálfmenntaður tónlist-
armaöur. Þarna birtast eftir
hann nærfellt fjörutiu lóg á nót-
um við ljóö eftir ýmsa höfunda,
meðal annars hann sjálfan, en
hann er hagorður i bezta lagi.
Bækur frá
Ægisútgáfunni
© Hólmavík
sóknir leiöi I ljós, aö nærtækari
varmi er ekki viö Hólmavlk.
Hvernig er gatnageröin fjár-
mörgnuö?
— Það er gert til dæmis meö
þvi að leggja á gatnagerðargjöld,
eins og önnur sveitarfélög hafa
gert. Þá fengum viö fjármuni af
þéttbýlisvegafé og svo er lánsfé.
Útsvör og aöstööugjöld nema um
18 milljónum króna á ári hjá
hreppnum, svo á þvi má sjá, aö
þetta er ekki svo litið átak aö
hrinda þessari gatnagerö i fram-
kvæmd og ljúka við hana.
Hvaö meö byggingafram-
kvæmdir á staönum?
— Byggingaframkvæmdir hafa
veriö litlar á Hólmavik.
Astæöan er liklega fyrst og
fremst sú, að hér rikir atvinnu-
leysi vissan hluta ársins, eöa frá
þvi i marz á vorin, þegar rækju-
vertið lýkur og fram 1 byrjun júli,
þegar handfæraveiðar hefjast'.
Brýnasta verkefnið er þvi aö
skapa hér næga vinnu allan
ársins hring, en ég sé ekki, aö þaö
verði gert nema meö utanaökom-
andi aöstoð I einhverju formi. Við
hljótum fyrr eöa siöar aö leita
sömu úrræöa og aörir, eöa önnur
byggöarlög, sem leita úrræöa til
eflingar atvinnu, en þaö er aö fá
skuttogara hingaö, sem getur séö
fiskvinnslunni fyrir bolfiski,
þ.e.a.s. hér og á Drangsnesi, þar
sem ástandið er svipaö, eöa
a.m.k. ekki betra. Hraöfrystihús-,
iö þar brann nú, sem kunnugt er,
en þar er nú veriö að reisa nýtt
hraðfrystihús, sem væntanlega
tekur til starfa fyrir næsta haust
ef allt gengur samkvæmt áætlun.
Samgöngur og
fólksf jöldi
Hvaö um mannfjölda?
Strandasýsla hefur oröið hart
fyrir baröinu á svonefndum fólks-
flótta. Hér hefur veriö stööug
fólksfækkun á seinustu tveim
áratugum. Að visu fækkaöi fólki
ekki á Hólmavik á seinasta ári, en
alls búa rúmlega 1200 manns i
sýslunni, og ég tel, að atvinnuá-
standiö sé aöalorsökin fyrir
þessu. Þótt Strandamenn unni
sinu byggðarlagi ekki siöur en
aörir, þá rekur aö þvi, aö menn
gefast upp, ef engin þörf er fyrir
starfskrafta þeirra jafnvel
mánuöum saman.
— Hvaö meö samgöngur?
— Hingaö flúga Vængir tvisvar
i viku og Guömundur Jónasson
fer tvær ferðir hingaö i viku á
sumrin og einu sinni I viku aö
vetrarlagi. Vegurinn frá Brú i
Hrútafirði er oröinn mjög þokka-
legur og er betri en hann var til
aksturs að vetrarlagi. Honum er
haldiö opnum a.m.k. einu sinni i
viku aö vetrarlagi.
Vilja veg yfir
Steingrímsf jarðar- og
Þorskafjaröarheiöar
— Menn hafa þó ýmsar hug-
myndir i vegagerð og beinast þær
einkum aö þvi að fá tryggara
vegasamband við önnur byggöar-
lög á Vestfjöröum, en sem kunn-
ugt er þá tilheyrum viö Vestfjörö-
um eöa Vestfjarðakjördæmi, þótt
landfræðilega eöa samgöngulega
séum við frekar, enn sem komiö
er, tengdir Húnvetningum.
Viö teljum, aö ef unnt væri aö
gera veg upp áSteiigrlmsfjarðar-
heiöi og yfir á Þorskafjaröar-
heiöi. Þessi vegur yröi ekki kostn-
aöarsöm framkvæmd, þvi þetta
er aöeins um 10 km leiö og myndi
stytta leiöina til Reykjavikur til
muna og tryggja visst nauösyn-
legt samband við Vestfiröi.
Viö teljum hér, að ávinningur
yröi aö þessari vegagerö fyrir
Vestfiröinga, þvi suöurleiöin
stæöi bifreiðum opin miklu lengur
en núna er.
Vegir i Strandasýslu eru öröug-
ir. Bilfært er um 120 km noröur
frá Hólmavik, eða i ’Arneshrepp,
og um 120 km eru i Brú I Hrúta-
firöi frá Hólmavik. Þetta er þvi
langur vegur. Feröamanna-
straumur er talsveröur á sumrin,
Stjórnunarfélag Austurlands
gengst fyrir námskeiöi um arð-
semi og áætlanagerö 13. og 14.
nóvember n.k. I Valaskjálf á
Egilsstöðum. Tilgangur nám-
skeiösins er aö veita stjórnendum
fyrirtækja á Austurlandi aögengi-
lega og hagnýta þekkingu til
beinna nota I daglegu starfi
þeirra.
Leiöbeinandi verður Eggert
Ag. Sverrisson viöskiptafræöing-
ur hjá Hagvangi hf., Reykjavik,
en þaö fyrirtæki hefur veriö ráö-
gjafarfyrirtæki margra aust-
firskra fyrirtækja og fjóröungs-
sambandsins aö auki. A nám-
skeiöinu veröur fjallaö um fram-
legöarhugtakiö, arösemisathug-
anir, verömyndun, verölagningu,
notkun bókhalds sem stjórntækis
o.fl.
I tengslum viö námskeiöiö
veröur haldinn aöalfundur félags-
þvi það þykir fagurt á Ströndum.
Hvað með samstarf sveitarfé-
laga i grennd viö Hólmavik?
— Samstarf er mi.kið milli
sveitarstjórna á Hólmavik og i
Kaldrananeshreppi. Sami aöili er
þar meö atvinnumálin, og þvi er
mikiö samstarf nauösynlegt milli
staöanna, t.d. Drangsness og
Hólmavikur. Þá er nokkurt sam-
starf lika við Kirkjubólshrepp,
við rekum t.d. sameiginlegan
skóla.
Vilji á samstarfi er fyrir hendi
og sambúö milli sveitarfélaga er
góö, sagöi Jón Kristinn, sveitar-
stjóri aö lokum.
ins, þar sem Friörik Sophusson
framkvæmdastjóri Stjórnunar-
félags Islands mun gera grein
fyrir starfssemi félagsins. Núver-
andi formaöur SFA er Magnús
Einarsson fulltrúi hjá Kaupfélagi
Héraösbúa, Egilsstööum.
Rússajeppi
árg. 1965
með Perkins díeselvél
til sölu. Nýlegar góðar
blæjur.
Ragnar Jónsson bif-
vélavirki
Borgarnesi, sími 93-
7178.
Kaupfélagsstjóri
Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag
Stykkishólms er laust til umsóknar.
Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf, sendist for-
manni félagsins Kristni B. Gislasyni
Stykkishólmi eða Baldvini Einarssyni
starfsmannastjóra Sambandsins fyrir 20:
þ.m.
Kaupfélag Stykkishólms.
Rafveita Hafnarfjarðar
óskar að róða lokunar-
og innheimtumann
karl eða konu.
Laun samkvæmt launaflokki B-7.
Leggja þarf til bifreið við starfið gegn
greiðslu. Starfið er laust nú þegar.
Umsóknarfrestur er til 9. nóvember n.k.
Umsóknum skal skila á sérstökum
umsóknareyðublöðum til rafveitustjóra,
sem veitir nánari upplýsingar um starfið.
Rafveita Hafnarfjarðar.
Stjórnunarfélag Austurlands
Nómskeið um
arðsemi og
óætlanagerð