Tíminn - 07.11.1976, Síða 37

Tíminn - 07.11.1976, Síða 37
Sunnudagur 7. nóvember 1976 TÍMINN 37 Laugarneskirkja: Séra Jón Dalbú Hró- bjartsson messar Séra Jón Dalbú Hróbjartsson messar i Laugarneskirkju i dag klukkan 14. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson, skólaprestur, er fæddur i Reykja- vik 13. janúar 1947, sonur hjón- anna Hróbjartar Arnasonar, frá Ashóli, Holtum, stofnanda Burstagerðarinnar i Reykjavik, og Ingibjargar Þorsteinsdóttur frá Langholti i Flóa. Séra Jón tók stúdentspróf frá Verzlunarskóla Islands 1969 og lauk embættisprófi i guðfræði frá Háskóla Islands haustið 1973. Þegar að loknu embættisprófi fór hann utan til framhaldsnáms. Hann lagði stund á kennimann- lega guðfræði einn vetur í Osló, en hún fjallar um ýms hagnýt störf, prestsþjónustu svo sem marghátt- aða sálgæzlu, æskulýðsstarfsemi o.m.fl. Jafnframt kynntihann sér fjölþætt æskulýðsstarf meðal stú- denta og annarra skólanemenda. Sumarið eftir starfaði hann við sálgæzlustörf á heilsuhælinu Modum Bads Nervesanatorium en það er heimsþekkt stofnun, einkum fyrir sérstaka meðferð á fjölskylduvandamálum, en séra Jónstarfaði aðallega við þá deild stofnunarinnar. öll skólaár sin stundaði séra Jón tónlistarnám, fyrst i pianó- leik i Tónlistarskóla Reykjavikur, siðar i orgelleik hjá Ragnari Björnssyni, dómorganista, og loks i kirkjutónlist hjá dr. Róbert A. Ottósyni. Þá starfaði hann oft sem kirkjuorganisti, meðan hann stundaði nám i háskólanum. A námsárunum dvaldi hann einnig eitt sumar i Þýzkaiandi við orgel- nám og starfaði jafnframt i sumarbúðum fyrir unglinga þar. Frá 16 ára aldri hefur séra Jón tekið virkan þátt i barna- og ung- iingastarfi. Hann var eitt sumar sumarbúðastjóri i sumarbúðum þjóðkirkjunnar i Skálholti, starf- aði i sumarbúðum KFUM i Vatnaskógi, var fjögur ár for- maður Kristilegra skólasamtaka og formaður Kristilegs stúdenta- félags þrjú ár. Hann hefur tekið þátt i mörgum norrænum skóla- og stúdentamótum og verið ræðu- maður á sumum þeirra, auk þess sem hann hefur setið ráðstefnur erlendis um guðfræði og æsku- lýðsmál. Loks má geta þess, að hann var stjórnandi hins fjöl- menna norræna, kristilega stú- dentamóts, sem haldið var i Laugardalshöllinni i Reykjavik i ágúst i fyrrasumar. Hann á nú sæti i æskulýðsnefnd þjóðkirkj- unnar. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson er kvæntur Ingu Þóru Geirlaugs- dóttur.dótturhjónanna Geirlaugs Árnasonar og Sveinbjargar Arn- mundsdóttur frá Akranesi. Inga Þóra lauk stUdentsprófi frá Menntaskólanum i Reykjavik 1968 og kennaraprófi frá Kennaraskólanum 1969. HUn hef- ur stundað kennslu, fyrst i Ár- bæjarskóla og siðan i öldusels- skóla. Inga *óra hefur einnig stundað nám i tónlist við Tón- listarskóla Akraness. Meðan þau hjón dvöldu i Noregi, lagði hún stund á framhaldsnám fyrir kennara i kristnum fræðum. Þau hjón eiga tvo syni, Árna Geir, 5 ára, og Ingibjart 3ja ára. Úr fundarsamþykkt hjúkrunarfræðinga Heilsuverndarstöðvarinnar: Störf vanmetin og engum sérkröfum sinnt F.I. Reykjavík. — A fundi hjúkrunarfræðinga við Heilsu- verndarstöð Reykjavikur, sem haldinn var þann 20. okt. sl., er lýst megnri óánægju vegna Ur- skurðar kjaranefndar um sér- samninga Reykjavikurborgar og HjUkrunarfélags Islands, frá 22. sept. sl. Telur fundurinn kjaranefnd vanmeta mjög störf hjUkrunar- fræðinga um leið og ekkert tillit sé tekið til sérkrafna þeirra. I fundarsamþykktinni segir ennfremur, að Urskurður kjara- nefndar um hækkun um einn launaflokk, sem allar aðrar starfsstéttir fái, breyti engu um það vanmat, sem hjúkrunar- fræðingar hafi sætt i launum og sé þá mið tekið af öðrum stéttum, sem ábyrgðarminni störfum gegna hjá Reykjavfkurborg, eða minni menntunar sé krafizt af. Tilkynning Innkaupastjóra Nýkomið mikið úrval af Gjafavörum Leikföngum Búsáhöldum Snyrtivörum Heildverzlun Péturs Péturssonar Suðurgötu 14 SMItmm-GI 6 SÍMI 4454-4 Verðlækkun Vegna hagræðingar og betri aðstöðu í nýjum húsakynnum að Smiðju- vegi 6 hefur okkur tekist að lækka framleiðslukostnaðinn verulega: Bergamo Sófasettiö hefur nú lækkað í verði um kr. 53.000 Staðgreiðsluverð í dag kr. 186.000 — Bergamo er nýtízku sófasett í „Airliner” stíl. Traustbyggt, afburða þægilegt og fallegt. Meiri framleiðsla — betri vara — lægra verð Opið til kl. 19 föstud. kl. 12 laugard. ætlar þú út íkvöld? Þaö má njóta lífsins á ýmsan hátt. Rabba yflr glasi, dansa, fá sér í gogginn, hlusta á tónlist eða horfa á lífið. í Klúbbnum er að finna marga sali með ólíkum brag. Bar með klúbb stemmningu og lágværri músík, fjörugt Diskótek, danssal með hljómsveit og annan þar sem veitingar eru framreiddar. Þar er hægt að vera í næði eða hringiðu fjörsins eftir smekk,-eöa sitt á hvað eftir því sem andinn blæs í brjóst. Þú getur átt ánægjulegt kvöld í klúbbnum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.