Tíminn - 17.11.1976, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.11.1976, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 17. nóvember 1976 TiMINN 3 „Ekki hægt að sjá hvort hámarki er náð, eða hvort fíkniefnasmygl eykst enn... — en við höfum aldrei lent í annarri eins hrinu og þeirri sem nú stendur yfir", segir Ásgeir Friðjónsson, dómari HV-Reykjavik. — Við höfum raunar alltaf viljað fara varlega f að draga áiyktanir af þeim málum, sem við höfum með höndum á hverjum tfma, en ég hygg þó að það sé alveg ljóst, af þeim mátum sem dunið hafa á okkur undanfarna mánuði, að við höfum aidrei lent i annarri eins hrinu. Hins vegar vil ég ekki spá um það hvort við erum nú á há- tindi fikniefnaöldunnar, eða hvort þetta á enn eftir að aukast hjá okkur, sagði Ásgeir Friðjónsson, dómari hjá Fikniefnadóm - stóinum, f viðtaii við Timann I gær. — Það hefur greinilega oröiö sú breyting á, sagði Asgeir ennirem-' ur, að nú ber meira en áður á þvi að menn leggi peninga i fikniefni og smygli þeim hingað til lands til sölu einvörðungu, — af hreinni gróðafikn. Aður var meira um að neytendur legðu saman i pott og sendu eftir fikniefnunum Ut. Þetta er svipuð þróun og verið hefur í öðrum löndum. — Til þessa hefur þyngsti dómur, sem kveðinn hefur verið upp i fikniefnamáli verið eins árs fang- elsi, auk fjársekta. Ásgeir var að þvi spurður, hvort bUast mætti við þyngri dómum vegna þeirra mála, sem komið hafa upp að undanförnu. — JU, vissulega má búast við þvi. Hins vegar situr enginn viö aðdæma hjá okkur nú, þviaö allir eru i þvi að rannsaka mál þau sem til afgreiðslu eru. Það er geysileg vinna að komast inn i keðjur af þvi tagi, sem komizt hefur upp um undan- farið, og jafnvel enn meiri vinna að ganga frá rannsókn málanna, þvi það þarf að rannsaka hlut margra aðila að hverju máli. Auðvitað vaknar sú spurning, hve mikill hluti heildar-innflutn- ings á fikniefnum það er, sem við komum höndum yfir, sagði As- geir að lokum. Viö vonumst auö- vitað til þess aö það sé stór hluti, en höfum þó ekki mjög ljósa vitn- eskju þar um. Hinu erum viö aftur fegnir, aö þau efni, sem komizt hefur upp um smygl á undanfarið, eru Cannabis-efni, og til dæmis ofskynjunarlyfið LSD hefur ekki komiö fyrir i okkar bókum i mjög langan tima. Efni eins og heróin höfum við ekki orð- ið varir við, þaö er, að við höfum ekkert sannanlegt dæmi um dreifingu þess hér, þótt orðrómur komist á kreik þar um öðru hverju. Ráðstefna um fjármál sveitarfélaga var sett að Hótel Sögu I gær. Við setningu ráðstefn- unnar flutti Geir Hallgrimsson forsætisráðherra ávarp, en efni ráöstefnunnar skiptist I tvo meginfiokka. Annars vegar gerð fjárhagsáætlunar komandi árs, en hins vegar áætlana- gerð tii lengri tfma. Ráöstefnuna sitja nær 200 manns vfðs vegar að af landinu. SAMNINGAVIÐRÆÐUR VIÐ FOR- SÆTISRÁÐHERRA VEGNA ÓBIL- GIRNI FJÁRMÁLARÁÐUNEYTISINS MÓ-Reykjavik — Við erum mjög óánægðir með það, að sumir ráðamenn fást ekki tii að gera upp skuldbindingar, sem stofnað var til samkvæmt lögum, sem i gildi voru til siðustu áramóta, og voru vegna sameiginlegra verk- efna rikis og sveitarfélaga, sagði Páll Lindal form. Sambands ís- lenzkra sveitarféiaga m.a.,þegar hann setti ráöstefnu sambandsins um fjármál sveitarfélaga. Formaðurinn sagði, að á öllum fundum sveitarstjórnamanna með fjármálaráðherra um breytingu á verkefnaskiptum milli rikis og sveitarfélaga hefði þvi sjónar- miði sveitarstjórnarmanna jafn- an verið haldið fram, að sveitar- félögin myndu aldrei af fúsum vilja gefa rikinu eftir þessar inn- eignir sinar. En skörin er farin að færast upp i bekkinn, þegar starfsmenn fjármálaráðuneytis- ins, sem alls ekki voru viðstaddir fundi okkar með fulltrúum rikis- ins, menn, sem ég þekki ekki einu sinni i sjón, sagði formaðurinn, eru farnir að halda þvi fram i greinargerðum, að við höfum með einhverjum hætti fallizt á að þessar kröfur sveitarfélaganna verði felldar niður. Mig brestur alveg skilning á hver tilgangurinn er með sh'ku, enda er okkur ljós- ara, en þessum ágætu mönnum, að við gátum ekki með nokkru mótiafsalað einu einasta sveitar- félagi nokkrum minnsta rétti i þessu sambandi, hvað þá öllum 224 sveitarfélögunum i einu lagi. A ráðstefnunni kom mjög greiniiega fram óánægja sveitar- sijornarmanna með samskipti við rikisvaldið, og þó sérstaklega fjármálaráðuneytið vegna van- skila á lögboðnum greiðslum til ýmissa sameiginlegra verkefna. Einn ræðumanna kvað nauðsyn bera til að koma á menningar- legri og manneskjulegri sam- skiptum milli ráðuneytis og sveitarstjórna. Páll Lindal sagði, aö það væru þrjár leiöir til úrbóta á þessum samskiptum. I fyrsta lagi yrði að reyna samningaleiðina og væri þegar hafnar viðræður við for- sætisráðherra. Ef samningar næðust ekki yrði að leita til ai- þingis, en þrautalendingin yröi siðan að leita til dómstóla, ef við- unandi árangur næðist ekki á annan hátt. I setningarræðu formannsins kom fram, að nokkuð hefur áunn- izt i þá átt á undanförnum árum, að gera verkskiptingu milli rikis og sveitarfélaga einfaldari, en áður var. T.d. hefði náðst áfangi, þegar rikissjóður tók að sér alla löggæzlu 1972. Þá hefur nokkuð dregið úr skattlagningu sveitar- félaganna, vegna almannatrygg- inga, þótt ekki sé það skref stigið til fulls. Hins vegar var mikið vixlspor stigið i þeim efnum, þeg- ar rikisvaldið tók að seilast inn á tekjustofna sveitarfélaganna, Ut- svörin, á siðasta ári. Vonaði for- maðurinn að sú hrösun yrði ekki fordæmi, heldur einsdæmi. f Loðnubátar halda — eftir langvarandi brælu gébé-Rvik. Eftir mikla brælu á loðnumiðunum fyrir vestan iand aö undanförnu, virðist ioks sem veöur sé að lægja, og í gær- morgun fóru allir loönubátarnir út á miðin, svo og leitarskipiö Skarðsvik. — Bátarnir hafa að undanförnu legið i höfnum og beðið þess aö veöur batnaði, og vonandi tekst þeim aö finna loðnu og veiða i nótt, sagði Andrés Finnbogason hjá Loðnu- nefnd I gær. Alls eru það átta bátar sem á miðin stunda loðnuveiðar eins og er: Helga II, Helga Guðmunds- dóttir, Asberg, SUlan, Gisli Arni, Hrafn, Kap og Eldborg. Auk þess er Skarðsvikin viö loönuleit á miðunum Ut af Vest- fjörðum. ávíðavangi Lýðræðissinnarnir i Hvöt sigruðu t framhaldi af frásögn af aðalfundi sjálfstæðisk venna- félagsins Hvatar, er rétt að geta þess, að það olli mikilli ólgu á fundinum, þegar Auður Auðuns, fyrrverandi alþingis- maður, sem var formaður uppstillingarnefndar, geröi til- lögu um Bessi Jóhannsdóttur fyrir hönd meirihiuta uppstill- ingarnefndar, en gerði ekki minnstu grein fyrir tillögu minnihlutans. Kristin Magnúsdóttir sá sig þess vegna knúna til ab fara i ræðustól og gcra grein fyrir lillögu sinni um Jóninu Þor- finnsdóttur. óneitanlega eru vinnubrögð meirihlutans ólýðræðisleg. Og má þvi segja, að lýðræðissinn- arnir i Hvöt hafi orðið ofan á, þar sem Jónina var kjörin for- maður. Hámarkshraði i þéttbýli aukinn? Fyrr i þessari viku mælti Jón Skaftason alþm. fyrir lagubreytingu á umferðarlög- unum. Leggur þingmaðurinn það til, að hámarkshraði bif- reiðu í þéttbýli verði aukinn úr 45 km á klst. i 50 km á klst. Þegar Jón Skaftason mælti fyrir þessari tillögu sinni sagði hann m.a., að tiðni umferðar- slysa af völdum bifreiða væri áreiöanlega meiri hér á landi en viðast annars staðar miðað við fóiksfjölda og tölu öku- tækja. Sagöi liann, að fyrir þessari miklu slysatiöni væru ýmsar orsakir. M.a. nefndi hann, að umferðarreglur, sem væru þannig úr garði gerðar, að þær væru sifellt brotnar af stórum bópi bifreiðastjóra, væru til þess fallnar að skapa virðingarleysi fyrir umferðar- lögunum. „Reglan um 45 km braða i þétlhýli tclst að tninu viti til slikra reglna”, sagöi þingmaðurinn. Þrjár ástæður i franisögu- ■ ræðu sinni w nefndi Jón ? Skaftas. þrjár | aðrar ástæður f fyrir þvi að h a n n t e I d i timabært að hækka nokkuö ákvæði uin h á m a r k s - hraða i þéttbýli. 1 fyrsta lagi hefðu miklar umbætur veriö unnar i gatnagerð i þéttbýli. Þar sem áður befðu lcgið hol- óttir moldar- eða malarvegir væri nú að finna götur með varanlegu slitlagi á. Aksturs- skilyröi hefðu þvi breytzt injiig til hatnaöar. Siðan sagöi Jón Skaftaspn: . ,,l öðru lagi vil ég benda á það, að nú hin siöari árin hefur öryggisbúnaður bifreiða orðið nokkru fullkomnari en áður var, þannig að bifreiöir geta nú stöövast á styttri vegalengd cn áöur var. Auk þt“ss er ntér tjáð, af kunnáttu- mönnum um bifreiðar, að hin tiða giraskipting, sem nauðsynleg er, ckki sizt á hin- unt minni bifreiðum, sent i notkun eru I landinu, þegar ekki er ekið hraðar en 45 kin, valdi nokkrunt erfiðleikum á bifreiðinni og geti valdiö óeðli- iegu sliti. i þriðja lagi vil ég benda á það. aö nú hefur það færzt mjögf vöxt í löndum hins vest- ræna heims, að samræmdar hafa verið uinferðarreglur og þá ekki sizt um háinarkshraða bifreiða. Það er núorðið æ al- gengara, að menn feröist i eigin bifreiöum unt mörg lönd og reynslan hefur sýnt, að það hefur valdið vaiuiræðum ef untferöarreglur eru mjög frá- brugðuar frá einu landinu til annars.” —a.þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.