Tíminn - 17.11.1976, Page 16

Tíminn - 17.11.1976, Page 16
16 TÍMINN MiOvikudagur 17. nóvember 1976 Ný sending skyrtur og buxur herrapeysur Munið 10% afsláttar- kortin gilda til 10. desember DOMUS Loug°vegí91 HEIMBblS STfmsim Eigum takmarkað upplag af Heimilis-Tímanum frá byrjun. Seljum kaupendum Tímans og nýjum kaupendum ein- stök blöð eða heila árganga meðan birgðir endast. Athugið! Aðeins örfá eintök af sumum blöðunum. Aðstoðum þá, sem vilja láta binda inn blaðið. Hafið samband við af- greiðsluna í Aðalstræti 7. Síminn er 1-23-23. Þátttakendur á námskeiOinu: Magnús Eiriksson, K.A. Selfossi, Pétur Hermannsson, S.t.S. Reykjavik, Siguröur A. Sigurösson, S.t.S. Reykjavík, Jón Sigurösson, K.Þ. Húsavik, Siguröur B. Guöbrandsson, K.B. Borgarnesi, Ólafur Jóhannsson K.S. Sauöárkróki, örn Einarsson, K.R. Hvolsvelli og Jónas Sigurösson K.R. Hvolsvelii. — A myndina vantar tvo þátttakendur, Gunnar Aöalsteinsson, K.B. Borgarnesi, og Pál Magnússon, K.E.A. Akureyri. og frænám á Hvanneyri Fóður skeið Dagana 8.-10. nóvember var haldiö námskeiö á Bænda- skólanum Hvanneyri um sölu og meöferð á sáö- og fóöur- vöru. Námskeið þetta var haldiö aötilhlutan Bændaskól- ans á Hvanneyri og Innflutn- ingsdeildar StS. Þetta mun vera i fyrsta sinn, sem slikt námskeið er haldið til að auka þekkingu þeirra,sem verzla með þessar vörutegundir. Þátttakendur voru alls 10 aðilar frá 7 kaup- félögum. Leiðbeinendur voru kennarará Hvanneyri, en all- an undirbúning námsins ann- aðist Magnús óskarsson. Það er augljóst, að fræösla með þessu fyrirkomulagi er mjög til bóta, bæði fyrir sölu- aðila i þessum vörutegundum og bændur sjálfa, enda leita þeir oft ráða hjá kaupfélögun- um um þessi efni. Með hliðsjón af þessu, og þvi hversu vel tókst til i þessu til- felli, má gera ráð fyrir þvi, að um áframhald á þessum nám- skeiðum verði að ræða. Úr leikritinu. Taliö f.v. Peter Flynn (Sigurgeir Scheving) Jack Clitheroe (Guömundur P. As- geirsson) Nóra (Anna Þóra Einarsdóttir) og Covey (Bergur J. Þóröarson) Ijósmynd Guömundur Sigfússon. Leikfélag Vestmannaeyinga sýnir Plóg og stjörnur frumsamin revía á svið eftir dramótin Mó-Reykjavik — Leikfélag Vestmannaeyja frumsýndi „Plóg og stjörnur” eftir Sean O’Casey á laugardagskvöldiö var. Húsfyllir var á sýningunni og leikendum og leikstjóra var mjög vel tekið. Leikstjóri er Magnús Axelsson, en með nokkur helztu hlutverk fara Guömundur P. Asgeirsson, Anna Þóra Einarsdóttir, Sigur- geir Scheving, Bergur J. Þórð- arson og Unnur Guðjónsdóttir. Alls taka um þrjátiu manns þátt i sýningunni. Magnús Axelsson leikstjóri er ráðinn hjá Leikfélagi Vest- mannaeyja fram yfir áramót, og næsta verkefni, sem félagið setur á sviö, verður barnaleik- rit, en eftir áramótin geta Vest- mannaeyingar séö nýtt frum- samið verk á sviði leikhússins. Þar er um reviu að ræða, sem verið er aö semja um lifið I Eyjum og verður þaö bæði i tali og tónum. Að sögn eru margir listamenn, sem þar munu eiga hlut að máli, og efniviður i slfka reviu er talinn nægur fyrir hendi. AugSýsið í Tímanum

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.