Tíminn - 03.12.1976, Side 7

Tíminn - 03.12.1976, Side 7
Föstudagur 3. desember 1976 7 aukakosningar um þingsæti hans. Möltubúar hafa enga varaþingmenn heldur, en geyma kjörseðlana og telja þá að nýju næsta valkost á þeim, ef sæti verður autt. Enn fremur kemur til greina, að framboð sé tvöfalt og feli i sér varamann auk sjálfs fram- bjóðandans. Loks kemur til greina, að varamaður sé sá samflokksmaður, sem næstur gengur að atkvæðum i kosn- ingunni, enda þótt slikt sé reyndar ekki i fullu samræmi við persónulegt kjör. Full þörf róttækra um- bóta Eins og þegar hefur komið fram, er það eitt viðfangsefni að ákveða hvaða kosningaaðferð skuli fylgt, en annað að skipta landinu i kjördæmi og ákvarða vægi atkvæðanna i einstökum landshlutum, hvort alls staðar skuli jafn mörg atkvæði standa að baki hverjum þingmanni eða hvort misjöfn aðstaða þegnanna skal að nokkru leyti jöfnuð með mismunandi vægi atkvæðis. Höfuðmáli skiptir, að menn geri sér grein fyrir þessu og geti hug leitt kosti persónukjörs með valkostum út af fyrir sig. Reyndar liggur það fyrir, að kjördæmaskiptingin og vægi at kvæða eru megindeiluefnin, þegar menn rökræða þessi mál. Um hitt er miklu minna og sjaldnar deilt, að taka beri upp persónuiegt kjör, sem tryggi réttláta og hlutfallslega skipt- ingu þingsætanna milli stjórn- málaflokkanna i landinu. Persónukjör með valkostum stenzt fyllilega hvort sem kjör- dæmi eru stærri eða minni, hvort sem þau hafa öll jafnmörg þingsæti eða ekki. Um þessi efni verður aö setja almennar regl- ur, sem gilda um land allt og geta staðizt um tiltölulega lang- an tima. Slikar grundvallar- reglur verða að fela þetta i sér: almenna reglu um vægi at- kvæða, hvort það á að vera hið sama eða þvi sem næst um land allt, eða hvort eitt- hvert svigrúm á að vera eftir þvi hvort menn búa nær eða fjær miöstöövum valdsins i landinu og þá hve mikiö þetta svigrúm á að vera. Núverandi kerfi hefur enga slika reglu og hefur þróunin stöðugt verið sú aö auka á misvægi atkvæða eftir þvi hvar menn eru bú- settir. almenna reglu um það hve mörg þingsæti hvert kjör- dæmi skuli kjósa, hvort öll ' kjördæmin skuli hafa sömu þingsætatölu eða ekki og þá hver misnunurinn geti orðið. Ákvöröun um þetta atriði hlýtur að ráðast af þvi hvert svigrúm verður ákveðið um vægi atkvæðanna. almenna reglu um fjölda og mörk kjördæma, hvort þeim skuli ekki breyta, en ef svo má, þá meö hverjum hætti. ákvæði um endurskoðun samkvæmt þessum grund- vallarreglum með einhverju tilteknu millibili. Danir og tr- ar gera þannig ráð fyrir endurskoöun a.m.k. á tólf ára timabili. Sennilega væri heppilegast, að nefnd skipuð af Hæstarétti sæi um slika endurskoðun. Hjá þvi getur tæplega farið, að horfið verði frá núverandi kerfi innan mjög langs tima. Þegar að þvi kemur, er nauð- synlegt, að ekki verði staðar numið við takmarkaðar lagfær- ingar eða hrófatildur. A þessu sviði, eins og svo mörgum öðr- um, er full þörf róttækra um- bóta. Framsóknarmenn hafa áður orðið að sæta þvi að vera settir hjá, þegar þessi málefni hafa verið til umræðu og á- kvörðunar. Það er á okkar valdi sjálfra, að svo verði ekki einu sinni enn. ÞÝZK GRAFÍK Frábær sýning á Kjarvalsstöðum Ein elzta grein myndlistar er grafikin, eða myndir, sem unnt er að fjölfalda. t>ó að þessi listgrein eigi sér aldalanga hefð meðal erlendra þjóða, þá er hún tiltölulega ung list- grein hér á landi, bund- in þessari öld. Segja má, að grafisk myndlist sé eftir nokkra lægð að ná sér verulega á strik. Efnt hefur ver- ið til sérstakrar yfirlitssýningar á grafik, grafiskar sýningar hafa verið haldnar, bæði einka- sýningar og samsýningar, og fáeinar og mjög góðar grafik- sýningar hafa borizt frá útlönd- um. Má þar nefna sýningu i bókasafni Bandarikjamanna, kinversku sýninguna á Kjarvalsstöðum og nokkrar fleiri. Byrjað er að leigja út graffskar myndir i bókasöfnum. Það má þvi segja, að grafikin sé i talsverðri sókn. Við skoðun á yfirlitssýning- unni á islenzkri grafik á Kjarvalsstöðum kom i ljós, að svo til allir islenzkir mynd- listarmenn, sem nokkuð kveður að, hafa gert grafiskar myndir. Flestir hafa þó aðeins stundaö grafikina sem nokkurs konar „aukabúgrein”, og hafa þar af leiðandi ekki náð mjög langt, tæknilega séð a.m.k. Þetta veröur þeim mun augljósara eftir þvi sem betri hlutir koma upp á yfirborðið og þá mestan part frá útlöndum, þótt vitan- lega sé hægt að nefna fáein isíenzk nöfn, sem tengjast góðri og stundum frábærri tækni. Þó virðist undirrituðum sem innlend grafik standi einkum að baki þeirri beztu erlendu, hvað tækninni sjálfri viðkem- ur.Menn hafa ekki haft tima, tækifæri eða fé til þess að setja sig inn i þessa flóknu listgrein, sem stundum heyrir frekar undir lyfjafræði og efnagerð, fremur en myndlist, þótt auðvit- að sé myndin sjálf hið endan- lega markmið. Til þess að vinna góöa grafik, þarf margvisleg efni og sér- staka aðstöðu. Tækit fyrir grafik eru dýr, t.d. kostar góö meðalstórpressa álika og fimm manna bifreið hefur mér verið tjáð, svo það er meira en aö segja hlutina. Þýzk grafik á vorum dögum. Margir telja að Þjóðverjar séu meðal þeirra þjóða i Evrópu, sem hvað lengst hafa náð i grafiskri myndgerð, og þá sér á parti i tækninni. Nöfn eins og Martin Schongauerog Albert Diirer koma einhvern veginn ósjálfráttupp i hugann, og siðan koma þúsund nöfn og maður kann þó aðeins fá, sem þá fyrir hreina tilviljun hafa festst i minni, en fjölefli þýzkra grafik- listamanna er slikt, að það er orðið að visindagreinfyrir löngu að skilja þaö allt og skilgreina. Nú hefur enn rekið á fjörur islenzkra listunnenda, þvi að félagiö Germania hefur fengiö hingað til lands einhverja þá beztu sýningu á grafik, sem hér hefur veriö hengd upp. Þeir nefna sýningu þessa Þýzk grafik á vorum dögum og þar sýna rúmlega 30 listamenn eitt hundrað myndir. Þaðer Institut fúr Auslandsbeziehungen I Stuttgart, sem" leggur sýning- una til, en að sögn Daviðs Ólafs- sonar, seðlabankastjóra tók það tvöár að fá þessa eftirsóttu sýn- ingu hingað til lands. Sýningunni fylgir vönduð sýn- ingarskrá, þar sem gerð er grein fyrir hverjum einstökum myndlistarmanni og lærð rit- gerð fylgir um þýzka grafik eftir Tomas Grochowaik, sem er, ef ég man rétt, forstjóri rikislistasafns i Rinarlöndum, og stórt nafn i umræöu og list- fræði. Meðal listamanna, sem þarna eru með verk, eru sumir heims- frægir fyrir vinnu sina, eins og t.d. Horst Antes og Paul Wunderlich. Um þann siðarnefnda má t.d. segja, að haft er fyrir satt, að séria af myndum hans, sem oft eru i rúmlega 100 eintökum, seljist fyrir milljónatugi. (1. stk. á 120.000 kr.). Frá þessu er aðeins sagt til þess aö lýsa þvi á veraldlegan hátt, að hér er um mikla dýrgripi að ræða. Þótt hér hafi aðeins verið nefnd tvö nöfn, hefi ég það eftir sérfróðum manni, að þarna sé saman kominn mjög góður kjarni af þýzkri grafik, eins og hún gerist bezt á vorum dögum. Margir fleiri eftirtektarverðir listamenn sýna þarna, sem hafa vald á nær óskiljanlegri tækni, og má þar nefna Wolf Vostell sem sýnir sáldprent af nýstár- legri gerð, þar sem m.a. muliö gler er notað i myndimar og Diter Krieg sem liklega er furðulegastur allra i tækni. Hann myndi teljast til súmara hér á landi og hvet ég þá sér- staklega til þess að skoða verk hans á sýningunni, en framúr- stefnulistaverk hér á landi eru stundum mjög vond frá tækni- legu sjónarmiði. Þá munu margir kannast viö nöfn eins og Horst Janessen og Heinz Mack, sem þykja mjög góðir listamenn og Ruppret Geiger.sem sifellt klifar á hinu sama. Sýning sem allir ættu að sjá. Það má deila endalaust um það hvort þetta þversnið af þýzkri grafik sé endilega þaö eina og sannasta, þvi að góðir graffkerar skipta þúsundum. Frakkar máluðu, en Þjóðverjar unnu að grafik, segja listfræð- ingarnir okkur, og telja sig finna geðslagið eða þjóðar- sálina þar. Um það verður ekki fjallað hér, aðalatriðið er, að hérer á ferðinni einhver bezta grafiksýning sem hingað til lands hefur komið. Félagiö Germania hefur oft staðið fyrir ýmsum uppákom- um, en það er félag áhuga- manna um Þýzkaland og Island sameiginlega. Þetta seinasta framlag félagsins til menn- ingarmála á tslandi verður seint fullmetið. Það kom i hlut Braga Asgeirs- sonar, listmálara að setja sýn- inguna upp og hefur honum far- izt það vel úr hendi. Hann fer þarna rétta leið, og það fór vel á þvi, að einn af okk- ar beztu grafikerum skyldi þarna hafður með i ráðum en Bragi Asgeirsson hefur sem kunnugter verið einn duglegasti baráttumaður fyrir islenzkri grafik á seinustu áratugum. Jónas Guömundsson Útboð óskaðereftir tilboðum i rafskautskatla (gufu) 350 kw og 700 kw. Gögn fást afhent á verkfræðistofu Guð- mundar G. Þórarinssonar, Skipholti 1. Jörðin Eskifjarðarsel i Eskifirði er til sölu ef viðunandi tilboð fæst. Skipti á ibúð i Reykjavik koma til greina. Árni Halldórsson hrl. Egilsstöðum, simi 1313. I Heimsfrægar Ijósasamlokur 6 og 12 v. 7" og 5 3/4" Bílaperur — fjölbreytt úrval Sendum gegn póstkröfu urr> allt land. ARMULA 7 - SIMI 84450 AUGLÝSIÐ í TIMANUM

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.