Tíminn - 03.12.1976, Qupperneq 21

Tíminn - 03.12.1976, Qupperneq 21
Föstudagur 3. desember 1976 21 afti að halda" landsliðsþjálfari, láti landsliðið æfa ákveðin kerfi og þess vegna er erfitt að kalla á leikmenn heim, sem kunna ekki þau kerfi, sem landsliðið hefur verið að æfa. — Nú ef þetta heppnast og strákarnir standa sig vel i þeim landsleikjum sem framundan eru, þá sé ég enga ástæðu til aö kalla á „útlendingana”. — Hitt er svo annað mál, að það er mikill missir fyrir okkur, að geta ekki notaö leikmennina, sem leika með erlendum liðum — eins og þá Ólaf H. Jónsson, Axel Axelsson, Jón Hjaltalin, Gunnar Einarsson og Einar Magnússon. Ég tel, að aðeins einn leikmaður hér heima, standi þeim jafnfætis — það er Björgvin Björgvinsson. Punktar • Lennox frá keppni Gamia kempan Bobby Lennox hjá Celtic mun ekki leika meira með Celtic-liðinu á keppnistima- bilinu. Lennox fótbrotnaði, þegar Ceitic lék gegn Glasgow Rangers á Ibrox á dögunum. • Rússar hjá Leeds Itússar cru nú byrjaðirað leita til Englands, til að kynna sér knatt- spyrnu. Aiexander Sevidov, þjálf- ari Moscow Dynamo, ásamt túlki, eru nú hjá Leeds. Sevidov verður á Elland Road i tvær vikur, þar sem hann mun fylgjast með Leeds-liðinu á æfingum og í keppni. • Tibbott aftur með hjá Ipswich Les Tibbott, hinn ungi og efnilegi bakvörðurhjá Ipswich, sem hefur verið mikill hrakfallabáikur, er nú byrjaður aö leika með iiðinu aö nýju. Tibbott hefur leikið 2 leiki með Ipswich. Hann hefur fót- brotnaö á báðum fótum á þriggja ára kcppnisferli sinum hjá Ips- wich. • O'Farreli Ingólfur sagði að lokum, að Januz væri eflaust eftir að sjá „útlendingana” leika. — Ef hann sér þá, að hann getur ekki verið án þeirra, þá mun hann aö sjálf- sögðu nota þá i landslið sitt, sagði Ingólfur. ,/Viö höf um ekki efni á því, aö vera án „útlending- anna"." ÞORSTEINN BJÖRNSSON, fyrr- um landsliðsmarkvöröur úr Fram:— bað á tvímælalaust að kalla á „útlendingana” heim og láta þá leika með landsliðinu þá landsleiki sem veröa leiknir fyrir HM-keppnina. Við eigum þvi mið- ur ekki nógu góða leikmenn hér heima, sem eru á borö við Jón Hjaltalin, Olaf Jónsson, Axel Axelsson, Gunnar Einarsson og Einar Magnússon. — Við höfum ekki efni á þvi, að halda þessum leikmönnum fyrir utan landslið okkar. — Það er aöeins eitt vandamál i sambandi við „útlendingana”, það er hvort þeir geti fengið fri til að koma hingað heim og æft og leikið með landsliðinu um tima. En þaö hefur ekkert reynt á það, hvort þeir geti fengið sig lausa um tima til að koma heim og æfa. „Við þurfum á krafti þeirra að halda" BERGUR GUÐNASON, fyrrum landsliösmaður úr Val: — Það er engin spurning um þaö, — við þurfum á krafti „útlendinganna” að halda, ef við ætlum okkur að standa okkur i HM-keppninni i Austurriki. — Eftir aö hafa séð landsliðið leika gegn „pressuliöinu” á dög- unum, þá held ég að öllum hafi orðið ljóst, að við getum ekki ver- ið án þeirra Axels Axelssonar, Ólafs H. Jónssonar og Gunnars Einarssonar. t „pressuleiknum” kom það greinilega fram, að okk- ur vantar illilega mann, sem get- ur ógnað i hægra horninu — mann á borð við Gunnar Einarsson, sem getur skorað mörk úr horn- um, með langskotum, með gegn- umbrotum, og þar að auki gefið á linu. Ég myndi taka Viggó Sig- urðsson út fyrir Gunnar. Viggó er að visu framtiðarmaður, en hans timi er ekki kominn. Þá myndi ég taka Agúst Svavarsson út fyrir Axel Axelsson og Þórarinn Ragn- arsson út fyrir Ólaf H. Jónsson. Þegar þessar breytingar hafa verið gerðar á landsliðinu, erum við komnir með svipað lið og vann yfirburðasigur (28:15) gegn HILMAR BJÖRNSSON Frökkum i HM-keppninni 1973. Ólafur og Björgvin Björgvinsson væru þá aðalógnvaldarnir á lin- unni og þeir Geir Hallsteinsson og Axel póstarnir fyrir utan. Ég var nokkuð óhress yfir þvi, hvað þeir Viöar Simonarson og Geir voru látnir leika mikiö sam- an fyrir utan i „pressuleiknum”. Þeir eiga alls ekki heima saman i uppstillingu, þar sem þeir gæla mikið viö knöttinn. Þeir eru tvi- mælalaust báðir landsliðsmenn, en þeir eru hreinlega ekki notaðir rétt — þeir eiga aö hvila til skipt- is. — Ef árangur á að nást, þá get- um við ekki verið án þeirra Gunn- ars, Axels og Ólafs. Ég geri mér fyllilega grein fyrir þvi, að það sé erfitt með samæfingar, þar sem þeir eru erlendis. En þar sem þessir leikmenn eru allir leik- menn á heimsmælikvarða og með mikla reynslu, þá eiga þeir ekki að þurfa nema 3-4 æfingar meö landsliðinu, til að átta sig á hlut- unum. Og það ætti enginn leik- maður að þurfa að vera óhress yfir þvi að þurfa að vikja úr landsliðinu, fyrir þessa leikmenn. — Að lokum vil ég geta þess, að mér er óskiljanlegt, til hvers við erum að fá hingað þjálfara, sem er talinn einn af þremur beztu handknattleiksþjálfurum heims, en fær siðan engu að ráða sjálfur um landslið sitt. Það er ekki hægt aö loka augunum fyrir þvi, að gömlu „brýnin” Karl Benediktsson og Birgir Björns- son, sem hafa fengið fjölmörg tækifæri i gegnum árin til að spreyta sig með landsliðið, — með misjöfnum árangri, — ráðskast að mestu með landsliðið. Það er algjörlega ófært. Januzi á að fá að sjá okkar beztu menn, sem leika erlendis, i keppni, og fá siðan að vega og meta, hvort hann vilji nota þá. —SOS Brasilíumenn eignast... nýjan Pele Brasiliumenn liafa eignast nýjan Pele, þar sem er hinn stórefnilegi knattspyrnu- inaður Zico. Zico átti snilidarieik, þegar Brasiliu- menn unnu sigur (2:0) á Rússum i vináttulandsieik, sem fór fram i Rió de Janeiro. Brasiliumenn áttu : erfiö- leikum með að finna ieiöina aö marki Rússa — það var ekki fyrr en undir lok leiks- ins, að þeim tókst að rjúfa varnarmúr Rússanna og skora tvö mörk á siöustu 11 minútum leiksins. Fyrst skoraði Falcao og siðan skoraði Zico stórglæsilegt mark. Þetta var annar leikur Rússa, sem eru á keppnis- feröalagi um S-Ameri'ku. Rússarhöfðu áður gert jafn- tefli (0:0) gegn Argentinu i Búenos Aires. —SOS • • • Erfiður róður hjó Fram- stúlkunum — íEvrópu keppninni i handknattleik Þaö veröur erfiður róöur hjá Fram-stúlkunum, þegar þær mæta júgóslavneska liöinu Radniki I Evrópu- keppni mcistaraliöa i k ven nah andkna ttlci k i Laugardalshöllinni á sunnu- dagskvöldið. Júgóslavarnir koma hingaö meö sitt sterk- asta liö, þar af 7 stúlkur sem léku meö landsliöi Júgóslava á Olympiuleikunum, en þar hlaut laiulsliöið gulliö. Fram-liöiö mætir Radniki á sunnudagskvöldið, strax á cftir forleik, sem veröur á milli landsliösins og „pressuliösins”, sem hefst kl. 20.00. Parkes stöðvaði Arsenal — þegar hann varði vítaspyrnu fró Alan Ball og Q.P.R. mætir Aston Villa i undanúrslitum deildarbikarkeppninnar PHIL PARKES... hinn snjalli markvöröur Q.P.R. til Torguay Frank O’Farrell, fyrrum fram- kvæmdastjóri Leicester og Man- chester United, hefur nú tekið við framkvæmdastjórastöðunni hjá Torquay, cn O'Farrel, sem hefur verið landsliösþjálfari Iran aö undanförnu, var einmitt fram- kvæmdastjóri félagsins, áður en hann fór til Leicester. # Kaiserslaut- ern sektað Kaiserslautern hefur veriö dæmt i 8 þús. v-þýzkra marka sekt (600 þús. islenzkar) fyrir ólætin, sem uröu á leikvelli liðsins sl. laugar- dag, þegar áhorfendur köstuðu bjórflöskum — og dósurn i leik- menn Dusseldorf. Dómari leiks- ins þurfti að flauta leikinn af, þegar 15 min. voru til leiksloka, vegna láta á áhorfendapöllunum. Þá var 1. FC Kaiserslautern einn- ig dæmdur leikurinn tapaður, en félagið var (0:1) undir, þegar flautað var til leiksloka. Markvörðurinn PhilParkes var hetja Queens Park Rangers á Loftus Road, þegar Q.P.R. vann sigur (2:1) yfir Arsenal i ensku deildarbikarkeppninni og tryggöi sér rétt til að leika i undanúrslit- unum. Parkes varöi á stórglæsi- legan hátt vitaspyrnu frá Alan Ball á þýöingariniklu augnabliki. Arsenal hafði leikinn i hendi sér, þegar Parkes tók til sinna ráða. Frank Stepleton haföi skor- að (0:1) fyrir Arsenal á 37. min- útu, eða aðeins þremur minútum áður en Ball misnotaði vita- spyrnuna. Ball skaut mjög góöu skoti að marki Q.P.R., og virtist knötturinn hafna örugglega i net- inu - en á siöustu stundu kastaði Parkes sér og tókst að verja á stórglæsilegan hátt. Arsenal-liðiö lamaðist við þetta — þvi að aöeins tveimur minútum siöar mátti Jimmy Rimmer hiröa knöttinn i netinu hjá sér, eftir skot frá Don Masson. Davið Webb, sem skorar ávallt þýðingarmikil mörk — tryggði Q.P.R. siöan sigur (2:1) i siðari hálfleiknum. Urslit i 8-liða úrslitum ensku deildarbikarkeppninnar, urðu þessi: Aston Villa - Millwall.....2:0 Derby - Bolton.............1:2 Man.United-Everton.........0:3 Q.P.R.-Arsenal.............2:1 Manchester United er greinilega i miklum öldudal - enn einu sinni fékk liöið slæman skell á heimavelli sinum, Old Trafford, þar sem 57 þús. áhorfendur voru. Andi King skoraði 2 mörk fyrir Everton, en Martin Dobson 1. Everton-liðið réði algjörlega gangi leiksins og leikmenn þess sköpuðu oft mikinn usla i afar lélegri vörn United-liðsins, sem saknar nú illilega fyrirliðans Martins Buchan. Derby-liöið á ekki heldur góða daga, og var sigur Bolton á Base- ball Ground fyllilega veröskuld- aður. Charlie George skoraöi fyrsta mark leiksins úr vita- spyrnu. Bolton jafnaði (1:1) siðan, þegar Rod Thomas sendi knöttinn i eigið mark - fast skot hrökk af honum og i net Derby. Willi Morgan, fyrrum fyrirliði Burnley og Manchester United, skoraði siðan' sigurmark Bolton 12 minútum fyrir leikslok. Neil Whatmore átti þá hörkuskot i slá — knötturinn krökk þaðan til Morgan, sem skoraði örugglega. Cris Nicoll og Brian Little skoruðu mörk Aston Villa gegn Millwail á Villa Park. Undanúrslitin: Q.P.R. mætir Aston Villa I undanúrslitunum og Everton mætir Bolton. Leikiö verður bæöi heims og heiman. __gos

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.