Tíminn - 04.12.1976, Blaðsíða 10
10
Laugardagur 4. desember 1976
Laugardagur 4. desember 1976
11
Næringarþörf og ofdt
Næringarþörf og ofát
Ýmsir hafa áhyggjur af þvi,
aö innan tiðar veröi mannfjöldi
heimsins meiri en svo að með
nokkru móti verði unnt að full-
nægja næringarþörfum ibú-
anna. Or öðrum áttum eru uppi
staðhæfingar, sem fullyröa ein-
dregiö, að svo mikið sé af óyrktu
landi, þar sem uppskera megi
firnin öll af næringarefnum til
fæðufanga, að jafnvel verði unnt
að afla nægilegs viðurværis
handa 15 milljörðum manna, en
nú eru ibúar heimsins aöeins 4
milljarðar. Mjög er liklegt að
þetta sé bæði satt og rétt. Við-
lendar eyðimerkur má gera að
gózenlöndum og á stórum land-
svæðum er eftirtekja korns aö-
eins brot af þvi, sem gerist i
þeim löndum, sem bUmenning
er mest þróuö.
Sem dæmi um það má geta
þess, aö i Hollandi, Belgiu og
Danmörk er kornuppskera af
hverri flatareiningu lands um
það bil 5 sinnum meiri en á við-
lendum kornyrkjusvæðum
stjórþjóöanna að meðaltali.
Sultur eða ofát
1 sjónvarpinu okkar var fyrir
skömmu rætt um næringarþörf
okkar tslendinga og þess getið,
að i'slenzkir karlmenn þyngist
að meðaltali um 5 kg hver að
vetrinum. Þetta getur svo sem
vel verið, en þaö er vist ekkert
einstakt á okkar landi, það ger-
istviðar, eins og myndin sýnir,
sem fylgir grein þessari. Þetta
er auðvitaö engin bót i máli fyr-
ir okkur, og þess má minnast
um leið, að á sama tima sveltur
fólk i öðrum löndum og álfum og
hér á landi hefur fólk dáið úr ó-
feiti fyrrum þóttnú sé öldinönn-
ur.
Varla mun nokkur hafa tölu á
hve margir liða sult og seyru á
okkar timum, þótt heilar þjóðir
séu ofnæröar. Það er talað um
og að þvi unnið á breiðum vett-
vangi meðal þjóðanna að
framleiða handa sveltandi þjóð-
um, en það er bara ekki nóg að
framleiða, fæöuföngin verða að
komast til fólksins, en flutning-
ur milli heimshlutanna kosta
jafnanmiklu meira en sveltandi
fólk hefurefni á að greiða, jafn-
vel þótt fæðan sé afgreidd án
endurgjalds af hálfu framleið-
enda.
Fleiri nærast en fólkið
Þvi er ekki að neita, að fleiri
þurfa næringu en fólkið eitt. Sú
eftirtekja til næringar, sem
fengin er i sjó og á landi, er ekki
öll við hæfi fólksins, Búfé er haft
til þess að breyta trénisrfkri
eftirtekju i fæðuföng, sem
mannsmaginn getur melt. En
ýmsar tegundir jarðargróðurs
eru jafn góðar handa mönnum
og skepnum og hvoru tveggja
nærast af þeim i rikum mæli.
Prófessor D.A. Iiartmann,
Cornell University i USA, hefur
bent á, að i Bandarikjum Ame-
riku séu um 45 milljónir hunda
og 26 milljónir kata, er éta ná-
kvæmlega sams konar fæðu og
þá, sem, fólkið nærist af.
I Bandarikjum Ameriku verð-
ur selt á almennum markaði
næsta ár fóður handa hundum
og köttum fyrir svo sem 360
milljarða islenzkra króna. Pró-
fessor Hartmann telur það vert
til umhugsunar, að aðeinshund-
arnir i USA eti árlega matvæli,
sem annarsgætu nært31 milljón
manna.
Svo segir Bauernblatt
Þýzka búnaðarblaðið Bauern-
blatt, hefur nýlega haft þessi
efni til meðferðar og telur, að
ofát Þjóöverja sé nú á dögum
svo umfangsmikiö, að óhæfa sé.
A meðfylgjandi mynd, sem þar
fylgdi, er sýnt, að karlmenn á
aldrinum 36-50 ára nærast af
3783 hitaeiningum daglega, en
þeir þurfi aðeins 2.600. Kven-
fólkiö er ekki eins kröfufrekt.
Þar nærist konan aö meöaltali
daglega af 3004 hitaeiningum en
hún þarf 2.200.
Umframátið þar i landi, þ.e.
næringareyðsla fram yfir þörf,
væri betur komin handa svelt-
andi fólki i öðrum löndum, en
hverjir vilja og geta flutt fæð-
una þangað, sem hennar virki-
lega er þörf?
Þannig geta vist margir spurt,
en þegar hér er tekið dæmi af
bara einu landi þá má um leið
fullyrða, að það er ekkert sér-
stakt i umræddri ofneyzluröð.
Svo má náttúrlega bæta þvi við,
að vissar búfjártegundir eru,
nærðar af fæðuefnum, er fólk-
iö getur neytt sem daglegrar
næringar. Má þar i fyrstu röð
nefna svinin, sem að visu eru
ekki frekari á orku en aðrar
skepnur, er breyta einni tegund
fæðuefna i aðra. En við að
breyta korni i flesk fer þó mikil
orka tilspillis. Hittersvo annað
mál, að fólkið vill fá flesk og
ekki kornmeti eingöngu, að
minnsta kosti þeir, sem telja sig
hafa efni á þvi. Og svo má bæta
þvi við, að i köldum heimshlut-
um er orkuþörf, meö búfjáraf-
urðir að nokkru i fæðunni, nauð-
synleg.
Hinu er ekki að neita, að með
þvi einu að neyta hæfilegs
magns fæðu á hverjum tima,
mundi afgangs i ýmsum löndum
mikil næring, er hægt væri að
miðla sveltandi þióðum, sem
varla eöa ekki hafa tök á að afla
viðurværis. Það er svo annað
mál, að ýmsar þeirra þjóða
væru betur komnar með þvi að
læra starfsaðferðir, og fá i
hendur þá tækni og tæki, sem
búmenningarþjóðir hafa til-
einkað sér, þvi áð vfða um heim_
skortir hvorki land né góöviöri
heldur kunnáttu til þess að
yrkja jörð og uppskera jarðar-
gróður til viöurværis.
Rétt þegar ofanskráð er að
fara i prentun, berst mér i hend-
ur eftirfarandi, sem fellur beint
að þessu máli og skráð stendur i
danska timaritinu Landsbladet
um aðferð til aukinnar mann-
eldisvöru.
Ef við hagræddum hálmi okk-
ar að efnis- og eðlisfræðilegum
leiðum og notuðum hann svo
sem fóður handa kúm og kvig-
um landsins, svo sem 6-700
fóðureiningar handa hverjum.
grip árlega, þá væri hægt að sá
korni i þeim mun stærra land-
*■ svæði og brauðfæða meö þvi
korni svo sem 5-6 milljónir
manna. Svo segir i skýrslu frá
tilraunum okkar i búfjárrækt.
Ennfremur er sannreynt, að
unnt er að minnka magn pró-
teins ikálfafóðri, þannig, að við
framleiðslu 100.000 tonna af
kálfakjöti megi spara 20.000
tonn af próteini, svo að soya-
mjöl geti að verulegu leyti kom-
ið i stað undanrennu i fóðri kálf-
anna.
DIE KALORIEN-SONDEN
Kalorfennt«na«
|«T«a;2200
ÍOttóchlich vorzohrt
3Q04lUlgrjgn
Krtoriw
Obst
aGemuse
Kartoffeln
Alkohol'
Backwaren
uNahrmittel
uSuOworen
Í*Alteraqiuppe3fl-50 JahreV f
Þessi mynd frá Bauernblatt sýnir hvernig hitaeiningarnar eru fengnar í fæðu þjóðverja. Efst er ávextir
og gærnmeti (Obs und Gemuse) þá kartöflur, áfengi, mjöl og brauð, kjöt og pylsur. smjör og feiti, sykur
og sætindi, mjólk, og neðst ýmislegt. A svörtu súlunum er hitaeiningafjöldinn, karlar t.v. konur t.h.
Skautaglaumur áAAelavelli
Tímamyndir
Róbert
4 ! k/Æk ' 1
m mSSé ií.'7 1 .
" % M .->■ | "' ‘ f } $Ö
i sfyjw* --M 1 i , «l|jL r wH
W
i : 1 . u m t:
í Wl —«...
§Ms 1