Tíminn - 11.12.1976, Blaðsíða 1

Tíminn - 11.12.1976, Blaðsíða 1
. , ignamat margfaldast með 4,5 — 6,5 — Sjó bls. 3 'ÆHGIRP Áætrunarstaðir: Bildudalur-Blönduós-Búðardalui Flateyri-Gjögur-Hólmavík Hvammstangi-Rif-Reykhólar Sigluf jörður-Stykkishólmur Súgandaf jörður Sjúkra- og leiguflug um allt land Simar: 2-60-60 oq 2 60-66 ■ w ■ ii i ui t3 281. tölublað — Laugardagur 11. desember—60. árgangur ; : •f Wm BARÐA BRYNJUR LANDVELAR HF Siöumúla 21 — Sími 8-44-43 B Einar Agústsson, utanríkisráðherra í Brussel: Mun mótmæla ummælum Gundelachs kröftuglega MÖ-Reykjavík — Ég mun mótmæla þessum ummælum Gundelachs mjög kröftuglega við hann i kvöld, enda eru þau algerlega úr lausu lofti gripin, sagði Ein- ar Ágústsson utan- rikisráðherra í viðtali við Tímann í gær. Þá var Einar staddur í Brussel, en i gærkvöld átti hann að sitja boð hjá Tómasi Á. Tómas- syni sendiherra ásamt Gundelach og fjöl- mörgum öðrum sendi- herrum og starfs- mönnum efnahags- bandalagsrikjanna. Ég mun skýra Gundelach frá þvi, að svona hugarórar — og segja honum að þau séu ekki til þess fallin að auka líkurnar á því að við göngum til einhvers samkomulags og óskhyggja, sem fram koma í þessum ummælum hans, séu ekki tii þess fallin að auka likurnar á, að ts- lendingar gangi til nokkurs konar samkomulags við GBE um fiskveiðimái. t þeim viðræöum, sem fram hafa farið, hafa aidrei neinar tölur verið nefndar hvorki um skipafjölda né aflamagn, og þvi fer hann þarna með algerlega stað- lausa stafi. Þá tók utanríkisráðherra fram, að hann hefði ekki hitt neina menn frá Efnahags- bandalaginu hingað til i sinni ferð, en sem fyrr segir átti hann að hitta Gundelach i gærkvöldi. Leitaði aðstoðar „Gæzlunnar" og var gripinn með ólögleg veiðarfæri F.I. Reykjavik. — Málinu lauk með réttarsátt skömmu fyrir kl. 18.00 og var belgiska skip- stjóranum gert skylt að greiða 210 þús. kr. sekt auk greiðslu sakakostnaðar, sagði Jón Magnússon, lögmaöur Land- heigisgæzlunnar i samtali við blaðið i gærkvöldi, en réttar- höid fóru fram i Sakadómi ki. 16.00 i gær vegna veiöarfæra- brots belgíska togarans Belg- ian Skipper. Belgian Skipper leitaði hafnar i Reykjavik um mið- nætti i fyrrinótt, og var hann þá með bilaða togvindu. Haföi hann orðið fyrir þvi óhappi að missa vörpu sina út af Reykjanesi og tókst ekki að ná henni inn upp á eigin spýtur. Kallaði hann varðskipið Bald- ur sér til aðstoðar, og þar með komst Landhelgisgæzlan I máiið. Við athugun kom i ljós, að pokaklæðning botnvörpu tog- arans var ólögleg og var strax kært tU Sakadóms. Fyrir réttinn I gær kom fyrst Benedikt Guðmundsson, stýri- maður hjá Landhelgisgæzl- unni og löggiltur skoðunar- maður veiðarfæra, ásamt Ás- grimi Asgeirssyni, stýri- manni, og staðfestu þeir skýrslur þær, sem geröar höföu verið. Belgiski skipstjórinn, Henri Dedrie, viðurkenndi skoðun- arskýrslur efnislega réttar, enda var honum sýnt framá,aö reglugerð um gerð og stærð veiðarfæra hefði verið send rétta boðleið til viðkomandi stjórnvalda i Belgiu fyrir löngu. Vert er aðtaka eftir þvi, að þetta mál begiska togarans er Belgian Skipper liggur utan á varðskipinu Baldri i Reykja- víkurhöfn i gær. Timamynd: G.E. þriðja málið, sem tekið er fyr- ir og afgreitt af islenzkum dómstóli frá júni-samkomu- laginu. Dómari i gær var Jón A. Ólafsson, hrl. og lögmaður belgiska skipstjórans var Haraldur Blöndal. Ekkert samkomulag fyrir ára- mót eða í náinni framtíð Mó-Reykjavik — Mitt mat á samningaviðræöum okkar við Gundelach sendimann Efna- hagsbandalagsins, er það að engar likur eru á, að sam- komulag verði gert fyrir ára- mót og ekki i náinni framtiö, sagði Þórarinn Þórarinsson, form. þingflokks Fram- sóknarflokksins, i umræðum utan dagskrár á Alþingi i gær. Þessar viöræður hafa aðallega snúizt um fiskverndarmál og mikið er enn óunnið I þeim málum. Það var Lúövik Jósepsson, sem hóf umræöur utan dag- skrár um landhelgismál vegna frétta, sem borizt höfðu erlendis frá þar sem haft var eftir Gundelach, samninga: manni Efnahagsbandalags- ins, aö fiskveiðisamningar yrðu geröir fyrir 1. jan. Þórarinn sagði, að svona ummæli væru sizt til þess fall- in að auka likurnar á sam- komulagi, enda væru þau al- gerlega úr lausu lofti gripin. Undir þau orð tók Guðmundur H. Garðarsson. Forsætisráðherra, Geir Hallgrimsson, sagðist ekkert skilja I þessum ummælum, og væru þau algerlega á ábyrgö Gundelachs sjálfs. Þá upplýsti forsætisráðherra, að ákveðið væri, að næstu viöræður við Efnahagsbandalagið yröu 16.-17. des. og færu þær fram I Briissel. Stefán Valgeirsson sagði, að ekki ætti að senda þangaö menn, nema Gundelach tæki þessi ummæli sin til baka, þvi ófært væri að eiga viðræður við menn, sem sneru staðreyndunum algerlega við. Kæruskró ó íslenzka báta er orðin löng F.I. Reykjavik — Það er alltof oft, sem við verðum að kæra islenzka báta fyrir ólögleg veiðarfæri, og skráin er orðin löng í ár, sagði Gunnar Ólafs- son, skipherra hjá Land- helgisgæzlunni, en i gær 10. des., sendi Landhelgisgæzlan sýslumanninum i Hafnarfiröi kæru á hcndur m/b Sigrúnu GK-380 vcgna ólöglegrar botn- vörpu. Skoöun fór fram á botn- vörpu hjá m/b Sigrúnu GK-380 þann 8. þ.m., er hún var stödd i Sandgeröishöfn, og kom i ljós, að poki botnvörpunnar var klæddur, en það er algjör- lega ólöglegt. Máliö verður væntanlega tekið fyrir i saka- dómi i Hafnarfirði eftir helg- ina. Aðalfundur L.Í.Ú. — Sjá Bak

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.