Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 12
8. janúar 2006 SUNNUDAGUR12
nánar á visir.is Umsjón:
Því er spáð að hagnaður fimmt-
án helstu fyrirtækja í Kauphöll
Íslands fyrir allt árið 2005 verði
yfir 160 milljarðar króna, þar af
um 59 milljarðar á síðasta árs-
hluta. Greiningardeildir Íslands-
banka og Landsbankans birtu
fyrir helgi afkomuspár sínar.
Bankarnir gera ráð fyrir að
keppinautarnir í KB banka skili
bestri niðurstöðu eða nærri 47
milljarða króna hagnaði.
Því er spáð að Straumur
- Burðarás hagnist um 27
milljarða, Landsbankinn um 25
milljarða og Íslandsbanki um
23 milljarða króna. FL Group
kemur svo í fimmta sæti með
sautján milljarða króna hagnað
á árinu 2005 en búist er við mjög
góðum tölum frá félaginu á fjórða
ársfjórðungi.
Fjórföldun á fjórða ársfjórðungi
Þegar einvörðungu er litið til síð-
asta ársfjórðungs nýliðins árs er
ljóst að hagnaður fyrirtækjanna
jókst gríðarlega samanborið við
sama tímabil í fyrra. Í afkomu-
spám bankanna kemur fram að
gengishagnaður sé meginástæð-
an fyrir þessum umskiptum en
hann hefur aldrei verið meiri en
á fjórða ársfjórðungi.
Landsbankinn spáir því til
dæmis að afkoma Kauphallarfé-
laga verði fjórfalt meiri á fjórða
ársfjórðungi 2005 en á sama tíma
í fyrra og gerir ráð fyrir að hagn-
aður þeirra verði tæpir 54 millj-
arðar króna en var til saman-
burðar rúmir þrettán milljarðar
á sama tíma árið 2004.
Íslandsbanki spáir lægri hagn-
aði eða um 49 milljörðum á fjórða
ársfjórðungi en töluverður munur
er á spám bankanna til uppgjörs
Straums.
Niðurstaðan er sú að hagnað-
ur fyrirtækjanna verður um 59
milljarðar að meðtaldri afkomu
Íslandsbanka og Landsbankans
sem spá auðvitað ekki fyrir um
eigin afkomu.
Straumur í fyrsta sæti
Það kemur kannski á óvart að
hagnaður Straums - Burðaráss
verður meiri en hagnaður KB
banka á fjórða ársfjórðungi gangi
spárnar eftir. Afkoma Straums
- Burðaráss var aðeins 127
milljónir á lokahluta ársins 2004
en verður nú um 13,3 milljarðar
króna samkvæmt spám bankanna.
KB banki heldur áfram að mala
gull og skilar um 11,9 milljörðum
í hagnað samkvæmt spánum en
46,7 milljörðum fyrir árið í heild.
Þá býst greiningardeild Lands-
bankans við um 7,2 milljarða
hagnaði Íslandsbanka á fjórða
ársfjórðungi og 22,8 milljörðum
á öllu nýliðnu ári. Íslandsbanki
gerir hins vegar ráð fyrir að
Landsbankinn hagnist um átta og
hálfan milljarð á fjórða ársfjórð-
ungi og ársafkoman verði jákvæð
um 25 milljarða.
Hagnaður hjá fyrirtækjum í
framleiðslu, þjónustu og iðnaði
verður töluvert minni en hagn-
aður fjármálafyrirtækjanna.
Þannig hljóðar meðaltalsspá
bankanna tveggja að hagnaður
þessara fyrirtækja verði um 15,7
milljarðar á fjórða ársfjórðungi.
Landsbankinn reiknar með að
hagnaður fyrir afskriftir (EBIT-
DA) verði 12,4 milljarðar króna á
fjórða ársfjórðungi, sem er meira
en sjö milljarða aukning á milli
ára.
Það að hagnaður eftir skatta er
hærri en rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir skýrist af gríðarlegum
gengishagnaði FL Group á eign-
arhlut sínum í easyJet á síðasta
ársfjórðungi.
Bjart framundan
Greining Íslandsbanka er bjart-
sýn á árið 2006. Þannig býst bank-
inn við að Úrvalsvísitalan hækki
um 20 prósent en þess má geta að
á fyrstu dögum ársins hefur hún
hækkað um tæp sex prósent. „Enn
er góður gangur í efnahagslífinu
og horfur í rekstri fyrirtækjanna
eru almennt séð góðar. Útrás og
hröð framþróun stærstu fyrir-
tækjanna mun áfram spila stórt
hlutverk á markaðnum,“ segir í
skýrslu bankans.
Fjárfestingarráðgjöf bankans
breytist að því leyti að mælt er
með yfirvogun Landsbankans og
FL Group sem þýðir það að þessi
tvö félög muni skila betri ávöxt-
un en markaðurinn á næstu
3-6 mánuðum. Actavis færist í
markaðsvogun en Össur í undir-
vogun.
Landsbankinn gerir ráð fyrir
minni hækkunum hlutabréfaverðs
og áætlar að hlutabréf hækki að
meðaltali um tólf prósent, sem
er ávöxtunarkrafa bankans til
markaðarins. Þar sem Úrvals-
vísitalan hækkar mun minna í ár
en undangengin þrjú ár er ljóst
að hagnaður fjármálafyrirtækja
mun dragast nokkuð saman á
árinu 2006.
eggert@frettabladid.is
Reykjavíkurborg hefur með vísan til ákvæða í X. kafla laga um
félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 ákveðið að bjóða eldri borgurum
akstursþjónustu í læknisheimsóknir, skipulagða endurhæfingu og
félagsstarf. Um er að ræða þjónustu við íbúa Reykjavíkur, sem eru 67 ára og
eldri, búa sjálfstætt, eru ófærir um að nota almenningssamgöngur vegna
langvarandi hreyfihömlunar og hafa ekki aðgang að eigin farartæki.
Sækja þarf um akstursþjónustuna til þjónustumiðstöðvar
í því hverfi þar sem umsækjandi býr:
Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Vesturbæjar
er að Hjarðarhaga 45-47, sími 411-1700.
Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Miðborgar og Hlíðar
er að Skúlagötu 21, sími 411-1600.
Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Laugardals- og Háaleitis
er að Síðumúla 39, sími 411-1500.
Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Breiðholts
er í Álfabakka 12, sími 411-1300.
Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Árbæjar, Grafarholts og Norðlingaholts
er að Bæjarhálsi 1, sími 411-1200.
Þjónustumiðstöð fyrir íbúa í Grafarvogi og á Kjalarnesi
er í Langarima 21, sími 411-1400.
Akstursþjónusta
Nýjung í þjónustu fyrir eldri borgara í Reykjavík
• • •
Ferðir geta verið allt að 30
á mánuði og kostar hver
ferð 250 kr. sem miðast við
almennt staðgreiðslugjald
hjá Strætó bs. sem sér um
framkvæmd þjónustunnar.
Þeir sem hafa þegar ferða-
þjónustu í félagsstarf á
vegum Reykjavíkurborgar
þurfa ekki að sækja um að
nýju.
Reglur og nánari upp-
lýsingar ásamt umsóknar-
eyðublöðum er hægt
að nálgast á öllum
þjónustumiðstöðvum í
Reykjavík og á vef Reykja-
víkurborgar, reykjavik.is.
Vekjum athygli á að
í þjónustusíma Reykja-
víkurborgar 411-1111
fást allar upplýsingar.
�������������
Sviðsstjóri Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar
• • •
• • •
• • •
• • •
• • •
Í afkomuspám bankanna kemur fram að gengishagnaður sé meginástæðan fyrir þessum umskiptum
en hann hefur aldrei verið meiri en á fjórða ársfjórðungi. Landsbankinn spáir því til dæmis að afkoma
Kauphallarfélaga verði fjórfalt meiri á fjórða ársfjórðungi 2005 en á sama tíma fyrir ári síðan.
ÞÓRÐUR MÁR JÓHANNESSON, FORSTJÓRI STRAUMS - BURÐARÁSS Straumsmönnum er
spáð mestum hagnaði á fjórða ársfjórðungi eða yfir þrettán milljörðum samkvæmt spám
Íslandsbanka og Landsbankans. Gengishagnaður leikur stórt hlutverk í uppgjöri félaganna.
160 milljarðar
í árshagnað
Hagnaður helstu Kauphallarfélaga nærri fjórfaldast
á fjórða ársfjórðungi. Gengishagnaður fjármálafyrir-
tækja í sögulegu hámarki. Spáð minni hækkun Úr-
valsvísitölunnar í ár.
AFKOMA FÉLAGA Í KAUPHÖLL ÍSLANDS*
(upphæðir í milljónum króna)
Ársafkoma Fjórði ársfjórðungur
Actavis 5.335 1.855
Bakkavör 3.343 1.021
Dagsbrún 788 237
FL Group 17.246 10.673
HB Grandi 757 -177
Icelandic Group 28 50
Íslandsbanki 22.781 7.194
KB banki 46.672 11.923
Kögun 636 201
Landsbanki 24.707 8.501
Marel 508 111
Mosaic Fashions 1.455 533
SÍF 968 979
Straumur 27.324 13.261
Tryggingamiðstöðin 7.983 2.596
Össur 866 315
Alls 161.397 59.273
* Meðaltalsspá greiningardeilda Íslandsbanka og Landsbankans
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N