Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 45
Fjölbreytt og áhugavert
lögfræðistarf
er laust til umsóknar á lögfræðisviði
Sambands íslenskra sveitarfélaga
Meginhlutverk lögfræðisviðs er:
• Hagsmunagæsla fyrir sveitarfélögin.
• Gerð umsagna um lagafrumvörp og reglugerðardrög.
• Vinna við kjarasamninga og starfsmannamál starfs
manna sveitarfélaga.
• Lögfræðileg ráðgjöf til sveitarfélaga.
• Lögfræðileg ráðgjöf til samstarfsstofnana sambandsins,
Bjargráðasjóðs og Lánasjóðs sveitarfélaga.
• Samskipti við Alþingi, ráðuneyti o.fl.
Lögfræðingurinn vinnur náið með sviðsstjóra lögfræðisviðs
að framangreindum verkefnum og öðrum tengdum verk-
um.
Hæfniskröfur:
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
• Áhugi á málefnum sveitarfélaga.
• Geta unnið sjálfstætt að úrvinnslu verkefna.
• Gott vald á rituðum texta og framsetningu upplýsinga.
• Gott vald á íslensku og almenna færni í einu öðru
norrænu tungumáli og ensku.
• Góð þekking á stjórnsýslurétti æskileg.
• Eiga auðvelt með mannleg samskipti, hópvinnu og
miðlun upplýsinga á fundum.
Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnustaður
sem býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn starfs-
mannahóp og skapar starfsmönnum gott svigrúm til starfs-
þróunar.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Óli Kolbeinsson, sviðs-
stjóri lögfræðisviðs, í síma 515-4900, eða netfangi:
sigurdur.oli.kolbeinsson@samband.is.
Umsækjendum er bent á að frekari upplýsingar um
Samband íslenskra sveitarfélaga er hægt að nálgast á
heimasíðu þess, www.samband.is.
Umsóknir, merktar Umsókn um starf, berist eigi síðar en
24. janúar 2006 til Sambands íslenskra sveitarfélaga,
b.t. Þórðar Skúlasonar framkvæmdastjóra, Borgartúni
30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík.
Starfsfólk – félagsliðar
Starfsfólk óskast í hlutastörf og full störf á heimili fyrir fólk
með fötlun í Hllíðahverfi. Sveigjanlegt vaktakerfi. Skipulögð
aðlögun í boði.
Æskilegir eiginleikar umsækjenda:
• Áhugi á að vinna með fólki
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Jákvæð viðhorf
Nánari upplýsingar um störfin gefur Sigrún Sigurðardóttir
forstöðuþroskaþjálfi, í síma 568-8810, netfang
sigrun.sigurdardottir@ssr.is
Frekari upplýsingar um SSR má fá á heimasíðunni
www.ssr.is og þar er unnt að sækja um störfin.
• Laun eru í samræmi við samninga ríkisins og SFR
• Umsóknarfrestur er til 22.janúar 2006
• Aldurstakmark umsækjenda er 20 ár
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofunni Síðumúla
39, Reykjavík
Á SSR er unnið í samræmi við jafnréttisáætlun.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar:
www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu
og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Menntasvið annast starfsemi og rekstur grunnskóla
og leikskóla. Í því felst þróun grunnskóla- og leik-
skólastarfs, undirbúningur stefnumörkunar, mat og
eftirlit með skólastarfi og upplýsingamiðlun fyrir
menntaráð og starfshópa á vegum ráðsins.
MENNTASVIÐ – LEIKSKÓLAR
Atferlisþjálfi í leikskóla
Laus er staða atferlisþjálfa í leikskólann Furuborg,
v/Áland.
Um er að ræða krefjandi og spennandi starf sem felur í sér
að annast þjálfun nemanda með einhverfu.
Starfsmaður fær markvissa leiðsögn við að beita aðferðum
hagnýtrar atferlisgreiningar. Unnið er í nánu samstarfi við
foreldra barnsins, atferlisráðgjafa og annað starfsfólk á
leikskólanum.
Hæfniskröfur:
• Þroskaþjálfi, leikskólasérkennari eða háskólamenntun á
sviði uppeldis- eða sálfræði
• Reynsla af vinnu með einstaklingum með þroskafrávik
æskileg
• Færni í mannlegum samskiptum
• Skipulagshæfni, áreiðanleiki og nákvæmni í starfi.
Um er að ræða 90% starf. Umsóknarfrestur er til 23. jan. n.k.
Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður Sigurþórsdóttir
leikskólastjóri í síma 553-1835.
Umsóknir sendist í leikskólann Furuborg, v/Áland. Einnig
veitir starfsmannaþjónusta Menntasviðs upplýsingar í síma
411-7000. Laun eru samkvæmt kjarasamningum
Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélög.
ATVINNA
SUNNUDAGUR 8. janúar 2006 17