Tíminn - 08.01.1977, Síða 16
Laugardagur
8. janúar 1977
— ^------------- —
SÍS-IÓIHJR
SUNDAHÖFN
V.
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustig 10 ■ Sími 1-48-06
l'nher hrice leikjun ^
eru heimsjrceg
Póstsendum
Brúöuhús
Skólar
-Benzinstöðvar
Sumarhús
Flugstöðvar
Bilar
/
fGSÐÍI
fyrirgóéan mat
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
- .
Þessi mynd er frá Sildar-
verksmi&ju rikisins á Siglu-
firöi, og er tekin fyrsta dag-
inn, sem loðnu var landaö
þar. Timamynd: MÓ.
Þróarrými fullt ó Siglufirði
ALLT
RÓLEGT
VIÐ
KRÖFLU
gébé Rvlk. — Hér er allt rólegt og
litlar breytingar á siðasta sólar-
hring, t.d. mældust þá aöeins 19
jarðskjálftar. Hins vegar kom
einn snarpasti skjálftinn sem
mæirt hefur hér um nokkurn
tima, laust eftir klukkan þrjú i
dag, og þó hann væriekki sterkur,
þá mældist hann 2,4 stig á
Richter-kvaröa. Ekki veit ég til
að nokkur hafi fundið til hans, en
upptök hans voru nálægt Kröflu-
búðum, sagði Hjörtur Tryggva-
son gæzlumaður á Skjálftavakt-
inni i Reykjahlið i Mývatnssveit I
gær. Litlar breytingar hafa verið
á halla stöðvarhússins.
RÆKJU-
VEIÐAR
HEFJAST
gébé Rvik.— Þessa dagana eru
rækjubátarnir að hefja á ný veiöi
eftir jólaleyfið, og eru t.d.
Bolungarvikurbátar þegar byrj-
aðir ásamt bátum frá Húnaflóa-
höfnum. í gær og dag, er verið að
athuga rækjumiöin á öxarfiröi,
en sem kunnugt er, var þeim lok-
að seinni hluta desembermánað-
ar, vegna hins mikla seiðamagns,
sem kom i rækjutroll bátanna
þar. Það er Skafti Jónsson, eftir-
litsmaður frá sjávarútvegsráðu-
neytinu, sem sér um þetta eftirlit
og mun halda áfram eftirliti i
Húnaflóanum einnig. ísfirðingar
byrja hins vegar ekki rækjuveið-
ar fyrr en þann 14. janúar.
enn tekið á móti á Raufarhöfn
gébé Rvik. — Ég býst viö, aö þró-
arrými fyllist hjá okkur i nótt,
sagöi Jón Reynir Magnússon,
framkvæmdastjóri Sfldarverk-
smiöjunnar á Siglufiröi I gær. —
Viö veröum aö miöa móttöku
loðnunnar viö afkastagetu
verksmiöjunnar, og þar sem full
afköst eru ekki hjá okkur enn, þá
getum viöekki tekiö á móti meira
en fimm þúsund tonnum, og nú
erum viö þegar búnir aö taka á
móti vel á fimmta þúsund, sagöi
hann. Byrjað var aö bræöa loðnu I
verksmiðjunni á fimmtudag.
— Það urðu byrjunarörðug-
leikar hjá okkur við löndun fyrstu
skipanna, en þá slitnaði færiband,
þaö er hins vegar að komast I lag
aftur, sagði Jón Reynir. Þá sagði
hann einnig, aö unniö væri viö þaö
i verksmiðjunni að koma niður
nýrri pressu, sem afkastað gæti
allt aö700 tonnum á sólarhring. —
Þetta verk hefur gengið hægar en
upphaflega var áætlað, þar sem
mikil vinna hefur verið hjá okkur
og ekkert hlé komið, mannskap-
urinn hefur þvi ekki getað unnið
við pressuna sem skyldi, sagði
hann. Afköst verksmiðjunnar eru
aöeins um 2/3 af þvi venjulega.
Arni Sörensson verksmiðju-
stjóri Sfldarverksmiöju rikisins á
Raufarhöfn sagði i gær, að hann
byggist við, að þeir myndu veröa
búnir að taka á móti allt að 2500
tonnum af loðnu á föstudags-
kvöld. — Alls getum við gekið á
móti sjö til átta þúsund tonnum,
sagði hann. — Nei, við höfum ekki
byrjað bræðslu enn, og byrjum
ekki fyrr en á þriðjudag, mið-
vikudag I næstu viku. Astæðan
fyrir þvi aö við byrjum ekki fyrr,
er fyrst og fremst sú, að við eig-
um ekki nóga oliu til að hefja
bræðslu, það er að kenna skipu-
lagsskorti oliufélaganna, að viö
höfum ekki fengið oliuna. Kyndill
mun hafa farið frá Reykjavik I
gær áleiðis með oliu til Raufar-
hafnar svo aö viö fáum oliu upp úr
helginni. Svo er mér persónulega
illa við að byrja að bræða fyrr en
viku eftir að viö byrjum að taka á
móti loðnu, þvi aö oft verðum viö
fyrir ýmsum byrjunarörðugleik-
um, þegar við hefjum bræðslu.
Llka kemur það til, að rotvarnar-
efni er sett I loðnuna strax viö
löndun, og þarf að liggja i henni i
viku áður en brætt er, sagði Arni.
Enn geta þvi skipin landaö
loðnu á Raufarhöfn, þó aðþróar
rými sé orðið fullt á Siglufirði, en
síðan veröa skipin sennilega að
fara til löndunar lengra austur.
Lítil verkefni í bygg-
ingariðnaðinum í vetur
HV-Reykjavik — Þaö er greini-
legur mikiil samdráttur i bygg-
ingariönaöinum núna. Fram til
áramóta voru næg verkefni,
enda veðráttan alveg einstök,
en þaö sem eftir er vetrar verö-
ur litiö aö gera og ef til þess
kemur aö uppsagnir þessara
tuttuguog fimm manna á Kefla-
vikurflugvelli taki gildi, þá
veröa þeir allir atvinnulausir I
vetur, sagöi Jón Snorri Þorieifs-
son, formaöur Trésmiöafélags
Reykjavikur, I viötali í gær.
— Siðari hluta siðasta árs
komu hér inn á vinnumarkaöinn
á millifimmtiu og sextiu smiðir,
sem höföu verið við Sigöldu,
sagði Jón Snorri ennfremur, og
það er varla að markaðurinn
hafi tekið viö þeim. Menn ganga
nú um og leita eftir vinnu, en
það er ekkert framboð á störf-
um.
Þótt á árinu hafi farið milli
fimmtán og tuttugu smiðir til
Svíþjóöar, vegna ótta um at-
vinnuleysi hér, eöa fleiri en far-
iö hafa á einu ári siðan 1970,
dugir það ekki til. —
Ylræktarver:
Beðið eftir ókvörð
un ríkisstjórnar
gébé Rvlk.— Mikið hefur verið
rætt og ritaö um tilboð Hollend-
inga um aö reisa ylræktarver
hér á landi og hefur litið heyrzt
um þaö mál að undanförnu.
Timinn aflaði sér þeirra upplýs-
inga i fjármálaráðuneytinu i
gær, að málið væri á dagskrá og
hefði verið i athugun að undan-
förnu. — Sem kunnugt er, telja
áhugamenn um ylræktarver hér
á landi það forsendu þess að
koma megi þvi upp hér, aö
stjórnin felli niður öll tolla- og
aöflutningsgjöld af efni, tækjum
og vélum, sem þarf til stofnunar
sliks fyrirtækis.
Tvö félög um ylræktarver
hafa veriö stofnuð hér á landi,
annað i Reykjavik en hitt i
Hveragerði. Félögin hafa unnið
að athugun á rekstri og hag-
kvæmni ylræktarvers hér á
landi, aö undanförnu, en beðið
er eftir ákvörðun rikisstjórnar-
innar um hvort fyrrnefnd gjöld
, verða felld niður eða ekki.
PALLI OG PÉSI