Tíminn - 11.01.1977, Síða 4
4
Þriðjudagur 11. janúar 1977
MEÐ
MORGUN-
KAFFINU
Snatiþefar uppi eiturlyf. Branda ólögtega
hunda og Jónas ólöglegan gjaldeyri.
Timarnir breytast, áöur gekk ég meö vatt i
heröapúöunum og nú geng ég meö vatt I
eyrunum.
André Brugiroux
400.000 km. ferðalag á puttanum í kringum hnöttinn
André BRUGIROUX, sem
hefur verið nefndur „Marco
Polo vorra daga” af evrópskum
dagblöðum, höfundur hinnar
frönsku metsölubókar „La terre
n’est qu’un seul pays” (Jörðin
er a ðeins eitt land), er lýsir hinu
sögulega ferðalagi hans, ferða-
lagi uppgötvana og ævintýra,
gegnum 135 lönd, samtals
400.000 km er tók hann 18 ár, er
nú staddur i Reykjavik til að
sýna kvikmynd um feröir sinar
og segja frá reynslu sinni.
André Brugiroux var 17 ára
þegar hann yfirgaf Paris með 2
dollara i vasanum, i þeim til-
gangi að breyta þeim draumi
sinum i veruleika að ferðast
kringum hnöttinn, ekki sem túr-
isti heldur til að fræðast um
mannkynið, eðli þess og háttu.
Að loknum 9 árum i ýmsum
Evrópulöndum þar sem hann
lærði 5 tungumál, og eftir
þriggja ára dvöl i Kanada til að
safna fyrir ferðakostnaðinum,
hóf hann ferðalagið með það i
huga að uppgötva heiminn upp á
eigin spýtur.
Hann ferðaðist sem puttaling-
ur á öllum hugsanlegum farar-
tækjum og lifði oftast nær á ein-
um dollara á dag i 6 ár (hann bjó
aðeins eina nótt á hóteli i
Moskvu). Hann ferðaöist um
þvera og endilanga Ameriku,
eyjarnar i Kyrrahafinu, Suð-
austur Asiu, Siberiu, Austurlönd
nær, Indland, Iran og Afriku. í
kvikmyndinni ferðast áhorf-
endur með honum til Alaska þar
sem hitinn er 45 gráður fyrir
neðan frostmark, eyðimerkur
Astraliu þar sem er 60 gráðu hiti,
landssvæði hausaveiöara á
Borneo, Buddhamunka i Bang-
kok, Yogaiðkendur á Indlandi,
kibbutz (samyrkjubú) i Israel
og fangelsi i Boliviu (þar sem
hann var tekinn i misgripum
fyrir skæruliða Che Guevara).
Þetta var ekki i eina skiptið,
sem hann gisti fangelsi.
André Brugiroux komst smátt
og smátt að þeirri niðurstööu,
vegna reynslu sinnar í sam-
skiptum við svo margt fólk
heimsins, „Að þessum dtján
árum liðnum, segir hann, veit
ég ekki lengur hvað útlendingur
er, ég horfi beint til hjarta fólks-
ins”...
Þessi alheimssýn og einstaka
reynsla er það, sem hann vill
deila meö okkur Islendingum
með þvi aö útskýra sjálfur kvik-
mynd sina, sem er eins og hálfs
tima löng mynd i þtum. Helztu
atriði verða einnig útskýrð á is-
lenzku. Myndin verður sýnd
laugardaginn 15. jan. kl. 3 að
Hótel Loftleiöum.
lllli