Tíminn - 11.01.1977, Blaðsíða 13

Tíminn - 11.01.1977, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 11. janúar 1977 13 leika Fiölukonsert nr. 3 i h- moll op. 61 eftir Camille Saint-Saens, Jean Fournet stjórnar. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 A fimleikapalli Aðal- steinn Hallsson leikfimi- kennari flytur erindi. 15.00 Miðdegistónleikar Dagmar Simonkova leikur Þrjú Bakkusarlög fyrir pianóop.65eftirVáclav Jan Gomásek. Dietrich Fischer- Dieskau syngur lög eftir Franz Schubert, Gerald Moore leikur með á pianó. Michael Ponti og Sinfóniu- hljómsveit Berlinar leika Pianókonsert i a-moll op. 7 eftir Klöru Schumann, Voelker Schmidt- Gertenbach stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn 17.30 Litli barnatiminn Guðrún Guðlaugsdóttir stjórnar timanum. 17.50 Á hvitum ”»!tum og svörtum Jón Þ. Þór flytur skákþátt. 18.20 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðuríregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Hver er réttur þinn? Þáttur um réttarstöðu einstaklinga og samtaka þeirra i umsjá lög- fræðinganna Eiriks Tómas- sonar og Jóns Steinars Gunnlaugssonar. 20.00 Lög unga fóiksins Sverrir Sverrisson kynnir. 20.50 Frá ymsum hliðum Hjálmar Árnason og Guð- mundurÁrni Stefánsson sjá um þáttinn. 21.30 Ilúmoreska op. 20 eftir Robert Schumann Vladimir Askenazý leikur á pianó. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir Kvöld- sagan: ,,M inningabók Þor- valds Thoroddsens” Sveinn Skorri Höskuldsson pró- fessor les (30). 22.40 Harmonikulög Nils . Flacke leikur. 23.00 A hljoðbergi „Rómeó og Júlia”, harmleikur i fimm þáttum eftir William Shakespeare. Með aðalhlut- verkin fara Claire Bloom, Edith Evans og Albert Finney. Leikstjóri er Howard Sackler - Þriðji og siðasti hluti. 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Þriðjudagur 11. janúar 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Frá Listahátið 1976 Sveifla i höllinni. Benny Goodman og hljómsveit hans leika jass. Hljómsveit- ina skipa auk Goodmans: Gene Beroncini, Peter Appleyard, Mike More, John Bunche, Connie Kay, Buddy Tate og Warren Vache. Þýðandi Óskar Ingi- marsson. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 21.05 Sögurfrá Múnchen. Nýr, þýskur myndaflokkur i sex þáttum. Aðalpersónan er ungurmaður, gæddurmiklu sjálfstrausti. Hann ræðst til starfa á ferðaskrifstofu og reynir að nýta hugmynda- flug sitt i þágu fyrirtækis- ins. Aðalhlutverk Gunther Maria Halmer og Therese Giehse. 1. þáttur. Próflaus maður. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. 21.55 Utan úr heimi. Þáttur um erlend málefni ofarlega á baugi. Umsjónarmaður Jóhn Hákon Magnússon. 22.25 Dagskrárlok. Hinrik konung konur hans Eftir Paul Rival Janeskilaði pyngjunni aftur, stúlka af göfugan ættum er ekki til kaups. Jane hélt siðferðisræður yf ir Hinrik, hún hvatti hann til að boða Maríu aftur til hirðarinnar og reisa hana til þeirrar tignar, sem henni bar. Hún talaði eins og páfagaukur, Hinrik gerði gys að henni, hann sagði henni að hugsa um þau börn, sem hún ætti eftir að fæða honum, en ekki um hina uppreisnargjörnu og þreytandi Mariu. Hinrik ákvað að láta Jane fá íbúð i höllinni, hann neyddi Cromwell til að láta Jane fá íbúð þá er hann bjó í. Hinrik vonaðist til að geta farið á fund Janes og gamnað sér við hana á nóttunni, og gleymt þannig keppinaut hennar. En þar mátaði Jane hann, vel ættuð stúlka býr ekki ein sins liðs. Hún hafði bróður sinn og mágkonu hjá sér, hún kom sér upp f jölskyldu, í litla ástarhreiðrinu. Jane kaus að hafa hjá sér þann bróður- inn, sem var meiri alvörumaður, hann var eins stöðug- lyndur og takmarkaður og hún sjálf. Jane forðaðist Tómas bróður sinn, sem var ágætismaður og kunni að njóta líf sins, Hinrik hitti Tómas oft í ibúð Önnu. Marz og apríl liðu og enn svaf Hinrik hjá Önnu, hann hlustaði eftir andardrætti hennar, þegar hún svaf og hann starði á háls hennar og hár. Honum var orðið Ijóst að hann ætlaði sér að tortíma henni, Anna vissi líka að dauðastund hennar nálgaðist. Hún óskaði sér ekki fram- ar að verða þunguð, það var eins og líkami hennar væri algjörlega búinn að segja skilið við lif ið. Hinn tuttugasta og þriðja apríl óvirti Hinrik Önnu og ætt hennar opinber- lega þá neitaði hann að sæma Georg bróður hennar sokkabandsorðunni, þess í stað sæmdi hann Carew orð- unni, en hann var óvinur Önnu. Cromwell tekur til sinna ráða. Cromwell var orðið Ijóst að Hinrik vildi Önnu feiga. Hann hóf því undirbúning að morðinu. Cromwell mynd- aði sérstakan dómstól. Þeir menn, sem hann skipaði í réttinn voru Howard, móðurbróðir önnu, faðir hennar, Tómas Boleyn, Brandon og fimm eða sex aðrir menn, auk hans sjálfs. Svo liðu sex dagar, hinu þrítugasta apríl, lét Cromwell handtaka hljóðfæraleikarann Mark. Það var farið með hann í lítið hús, i útjaðri Lundúna, þar sem biðu hans pyndingameistarar. Þarna var Mark sagt að hann hefði verið elskhugi Önnu og að sannanir væru fyrir því. Hann neitaði. Þá nálguðust píningamennirnir og tóku til starfa. Likami Marks var viðkvæmur, hann hljóðaði og baðst vægðar. Böðlarnir iof uðu að hætta, ef hann játaði. „Hafið þér verið elskhugi drottningarinnar ?" „Hafið meðaumkun..." „Hveoft?" „Ég veit það ekki." „Reynið að muna... var það tuttugu sinnum?" „Nei, nei". „Tíu sinnum?" „Nei, aldrei, ég laug." „Jæja, pínið hann meira." „Hlífið mér, ég sárbæni yður..." „Fimm sinn- um? svarið okkur — " „Jæja þá.... þrisvar sinnum." Skrifari, skrif ið, að hann haf i sagt: —þrisvar sinnum. — " Og þér voruð ekki sá eini, það voru fleiri?" „Já, já, margir f leiri." „Hverjir voru það?" „Ég veit það ekki." „Jú, það vitið þér, og þess fleiri, sem þeir voru, þess minni er yðar sök, hverjir voru það? Norris?" ,, Já, Norr- is..."„0g Brereton?" „Já." „Og.Weston?" „Já. " „Og ef til vill sjálfur Georg Boleyn, bróðir drottningarinn- ar?" „Ó, aldrei..." „Jú vissulega ,eiginkona hans hefur ákært hann. Og þér voruð vitnið, var það ekkí?" „Jú, jú, ég var vitni að því.." Mark var látinn einn, allan daginn, í hinu dularfulla húsi, á meðan Cromwell færði hús- bónda sínum f ramburð hans. Hinrik starði trylltum aug- um á Cromwell, sýnir hans höfðu þá verið sannar, dag- draumar hans höfðu orðið áþreifanlegir. Á meðan Cromwell talaði, sá Hinrik hugmyndaflug sitt verða að raunveruleika, sýnirnar svifu fyrir hugskotssjónum hans og runnu saman í eina heild. Hinn fyrsti maí. Hinrik dvaldi að Greenwich, uppi á hæðinni, nú var hin dásamlega aðfaranótt hins fyrsta maí, sú nótt, sem hann var vanur að vera úti i skógi, drukkinn af ilmi jurtasaf- ans sem flæddi lífgandi um allar greinar og jurtir, og blandaðist mosalyktinni. Fyrir neðan svalirnar gengu ungu mennirnir og sungu, hann heyrði líka hlátra og raddir stúlknanna, sem voru að f ara til að leita elskhuga sinna úti i skóginum. Þjónar hans hlupu glaðir um i skemmtigarðinum, þeir hristu trjágreinarnar, þeir voru að leita að ungu tré, sem þeir mundu svo taka upp með rótum snemma næsta morgun og koma með heim, sigri hrósandi. Unaður vorsins fyllti loftið. Hinrik hlustaði á sönginn, raddirnar skorti öryggi og söngurinn var ekki samhljóma, en f jarlægðin og þyturinn í trjánum, ásamt árniðnum, breytti söngnum í hjartnæman og fagran samruna. Hinrik hefði langað til að fella nokkur saklaus tár, honum fannst hann vera voldugur og gjafmildur. Hann lét inniskikkjuna falla af herðum sér og lét nætur- loftið leika um sig. Svo nálgaðist hvíluna, þar sem Anna beið hans. Hinrik var orðinn þreyttur á sýnum og draum- um. Anna var grannvaxin, hann neytti bóndaréttar sins. Þetta varð hin síðasta nótt, sem þau áttu saman. Næsta morgun klæddust þau nýjum klæðum, af grænu þykksilki, að því loknu gengu þau út að glugganum. Lúðrar voru þeyttir, þau sáu blaktandi greinar maí-trés- ins, sem var borið til þeirra. Allt starfslið hallarinnar var grænklætt. í forsal hallarinnar biðu hirðgæðingarnir og frúr þeirra, þau höfðu öll klæðzt grænum klæðum. Hallarveggirnir voru skreyttir ungum greinum. Hinn ferski litur þeirra stakk i stúf við dökkgrænu litina i veggtjöldunum. Fyrir utan hallargluggana voru tré svo langt, sem augað eygði. Það var haldin stórveizla og siðan fóru fram burt- reiðar. Hinrik sat á viðhafnarpalli við hlið Önnu. Hinrik hafði valið þá Georg og Norris til að vera kappa sína við burtreiðarnar, þessa tvo menn, sem aldrei viku úr huga hans. Hann langaði til að sjá þá, i síðasta sinn og hafa Önnu hjá sér, hann vildi láta þau hverfa saman. Undan- farin tólf ár hafði þetta fólk verið stöðugt samvistum við hann. Nú voru þau öll hér, í fullu f jöri, í máísólinni, þau geisluðu af æskuþrótti og Hinrik fannst hann vera gam- all og þreyttur. En hann hugsaði með sér að þau væru þó næstum búin að renna sitt skeið þau áttu ekki eftir að bregða oft á leik enn, brátt yrðu þau öll á brott aö eilíf u. Strax þegar hátíðahöldunum var lokið, reis Hinrik á fætur, hann ætlaði til London og bað Onnu að verða eftir i Greenwich. „Nú er aðeins einn dagur þar til hún fær að vita allt," hugsaði hann með sér. Hann þorði ekki að vera í návist hennar, til að njóta skelfingar þeirrar er mundi grípa hana, hann óttaðist hróp hennar og ofsa — það er líka fljótgert að koma fyrir sig töfrabrögðum. Norris var ekki galdramaður. Hinrik skipaði honum þvi að fylgja sér, Anna horfði á eftir þeim er þeir fóru. Á leiðinni til Lundúna lét Hinrik Norris ríða við hlið sér, eins og vin. Hinrik sagði Norris að hann hefði verið sakaður um svik við konung sinn, að hann væri ákærður fyrir að vera elskhugi Önnu. Hinrik þrábað Norris að segja sér sannleikann, bað hann að skilja þjáning elsk- andi eiginmanns, sem væri i vafa. Hann höfðaði til hjartagæzku Norrisar og gaf honum í skyn að honum yrði fyrirgefið. Hinrik lét ímyndunaraflið ná á sér „En hvað ef ég biðst aldrei afsök- unar? Fæ ég þá annan stöl fyrir konuna mina?” DENNI ' DÆAAALAUSI i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.