Tíminn - 11.01.1977, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 11. janúar 1977
15
Árni
frá
keppni
— meiddist í
rpressuleiknum'
ARNI INDRIÐASON. lands-
liðsmaðurinn sterki i hand-
knattleik úr Gróttu, verður
frú keppni um tima. Arni
varð fyrir þvi óhappi i lcik
ineö „pressuliðinu”, að hann
fókk þungt högg á bakið,
þannig að hryggjarliður á
honum brákaðist. Þetta er
mikið áfall fyrir landsliðiö,
þvi að Arni er einn alira
sterkasti varnarspilari okk-
aroghafði Januz Cerwinsky,
landsliðsþjálfari, bundið
miklar vonir við Arna i þeim
erfiðu verkefnuin, sem
landsliðið á fvrir höndum.
L—J
R HALLSTEINSSON
ndi marga skemmtilega
retti og skoraði 6 mörk
(Tímamynd Gunnar)
,,Við höfum
góða mögu-
leika"...
-— segir Paul Ogden, fram-
kvæmdastjóri utandeildarliðsins
Nortwich Victoria, sem mætir
Oldham í 4. umferð ensku
bikarkeppninnar
— Við höfum góða
möguleika á sigri gegn
Oldham, sagði Paul Ogden,
f ramkvæmdastjóri utan-
deildarliðsins Nortwich
Victoria, sem hefur komið
svo skemmtilega á óvart í
ensku bikarkeppninni, eft-
ir að utandeildarliðið dróst
gegn 2. deildarliðinu Old-
ham i 4. umferð ensku bik-
arkeppninnar, en dráttur-
inn í bikarkeppninni fór
f ram í London í gær. — Við
höfum áunnið okkur gott
sjálfstraust eftir að hafa
slegið Rochdale, Peter-
borough og Watford út úr
keppninni, og ég vona, að
leikmenn mínir verði í
ham, þegar þeir mæta Old-
ham á heimavelli okkar,
Drill Field, sagði Ogden.
Ipswich-liðið, sem er nú talið
Bingham
rekinn fró
Everton
Billy Bingham fram-
kvæmdastjóri Everton. var
rekinn frá félaginu i gær-
kvöldi. Astæðan fyrir þvl að
hann var rekinn er sú, að hann
hefur eytt 1,5 milljónum
brezkra punda i kaup á nýjum
leikmönnum s.l. 2-3 ár og þrátt
fyrir þessi kaup hefur enginn
árangur verið sjáanlegur.
Port Vale vann sigur (3-1)
yfir llull I bikarkeppninni I
gærkvöldi.
sigurstranglegast i bikarkeppn-
inni af veðmöngurum i London,
mætir Úlfunum á Portman Road.
Nokkrir stórleikir fara fram i 4.
umferð bikarkeppninnar, og má
þar fyrstan nefna leik Manchest-
er United og Q.P.R. á Old Traff-
ord og leiki Arsenal — Coventry,
Birmingham — Leeds og Aston
Villa — West Ham.
Annars varð drátturinn i ensku
bikarkeppninni þannig:
Liverpool eða Crystal Palace —
Carlisle
Cardiff — Sunderland eða Wrex-
ham
Chester — Luton
Manchester United Q.P.R.
Nortwich Victoria — Oldham
Fulham eða Swindon — Everton
Nottingham Forest eða Bristol
Framhald á bls. 19.
rrLandsliðið er
á réttri leið
— en enn vantar þó nokkuð í land, til að það verði öflugt",
segir Ingólfur Oskarsson liðsstjóri ,,pressuliðsins"
— Það má sjá framfarir hjá landsliöinu, og það viröist á réttri leið.
En þrátt fyrir það á liðið þó nokkuö I land, til þess að verða öflugt I
harðri og erfiðri keppni, eins og B-keppninni i Austurrlki, sagði Ingólf-
ur óskarsson, liðsstjóri „pressuliðsins” eftir slðari leik „pressuliðs-
ins” gegn landsliöinu, sem lauk meðsigri (27:18) landsliðsins.
Ingólfur sagði, að breiddin
væri ekki nóg hjá landsliðinu. —
Það vantar fleiri „kanón-karla”,
sem geta skoraö með langskotum
og ógnað i sóknarleiknum. Eins
og landsliðið leikur i dag, þar sem
ákveðnir leikmenn leika lykil-
hlutverkin, má fastlega búast við
þreytu hjá þeim eftir 2-3 erfiða
leiki. Þegar þreytan er farin að
segja til sin, þá eru ekki til kraft-
miklir leikmenn til að taka viö
hlutverkum þeirra og hvila þá,
sagði Ingólfur.
Ingólfur sagði einnig, aö varn-
arleikur landsliðsins væri ekki
nógu góður. — Pressuliðiö er
ósamæft lið. Ef landsliðiö hefði
leikiö gegn samæfðu liöi, hefðu
það fengiöfleirimörk á sig, þvi að
ég er öruggur um, að samæföir
leikmenn hefðu notað þau 7-E
dauðafæri, sem við hjá „pressu-
liðinu” klúðruðum. Og ofan á þaö
bættist, að við misnotuðum 4 vita-
köst, sagði Ingólfur. — Vonandi
fer þetta að smella betur saman
hjá landsliðinu — þaö stefnir allt I
þá átt, sagði Ingólfur að lokum.
Varnarleikurinn er einn höfuö-
verkur landsliðsins. Það kom
fram í „pressuleikjunum” tveim,
þvi að þrátt fyrir að Gunnar Ein-
arsson og Olafur Benediktsson
verðu vel, þá fékk landsliðið of
mörg mörk á sig,sem má skrifa á
varnarleikinn. Landsliöiö sýndi
marga ágæta spretti, en þess á
milli dattleikur liðsins niður —og
meöalmennskan varð allsráð-
andi. Landsliðið vantar greini-
lega illilega leikmenn á borð viö
Gunnar Einarsson, til að ógna úr
vinstra horninu, ásamt Agústi
Svavarssyni, og langskyttu á borö
við Einar Magnússon, sem getur
stokkiðupp og skorað með föstum
skotum. Einnig vantar varnar-
menn — það er ekki að efa aö þeir
Páll Björgvinsson, Bjarni Jóns-
son og Sigurbergur Sigsteinsson
myndu styrkja vörnina mikið og
þar aö auki myndi Sigurbergur
verða ógnandi I hornum.
Það er ekkert vafamál, aö þaö
er enn tími til að stokka upp i
landsliðinu. Sterkur kjarni er nú
þegar fyrir hendi — en það vantar
sterka leikmenn til að hvila lykil-
menn landsliðsins, sérstaklega
þegar farið er út I erfiða keppni,
þar sem leiknir verða 5 landsleik-
ir á 7-8 dögum.
Mörk landsliösins skoruðu:
Geir 6, Ólafur E. 5(1), Björgvin 5,
Jón K. 4(2), ólafur J. 2, Agúst 2 og
Þorbergur 1. „PRESSAN”:
Bjarni 5, Hörður 5 (2), Páll 2,
Konráð 2, Hilmar Sigurgislason,
stórefnilegur leikmaður úr 3.
deildariiöinu HK, 2, Sigurbergur 1
og Jón Pétur 1.
HREINN
FER TIL
SPÁNAR
— þar sem hann keppir við
alla sterkustu kúluvarpara Evrópu
— Eg nota allan fritima minn til
að æfa, sagði tþróttamaður ársins
1976, Hreinn Halldórsson, sem
ætlar sér að taka þátt I Evrópu-
meistaramótinu innan húss i
frjálsum iþróttum, sem fer fram
á Spáni i febrúar. Hreinn sagðist
vera kominn i ágæta æfingu, enda
þýddi litið að fara i slaginn á
Spáni, þar sem allir beztu kúlu-
varparar Evrópu verða saman
komnir, nema vera.vel undirbú-
inn, sagði Hreinn.
Hreinn tók þátt i fyrsta innan-
hússmótinu i frjálsum íþróttum,
sem fór fram i Laugardalshöll-
inni á laugardaginn. Þar kastaöi
hann kúlunni 19.16 m, sem er um
hálfum metra lengra en Islands-
met hans, sem hann setti i desem
ber. Þvi miður varð kastið ógilt