Tíminn - 11.01.1977, Page 8
8
Þriðjudagur 11. janúar 1977
r
Jón Arnason
fyrrverandi bankastjóri
Kveðja frá
Sambandi íslenzkra
samvinnufélaga
Jón Arnason fyrrverandi
bankastjóri og framkvæmda-
stjóri i Sambandinu andaðist á
gamlársdag, niutiu og eins árs
að aldri og er útför hans gerð i
dag.
Jón hóf störf i Sambandinu
um leið og opnuð var heildsölu-
skrifstofa á vegum þess i
Reykjavik árið 1917. Tveimur
árum siðar verður hann fram-
kvæmdastjóri Útflutningsdeild-
ar Sambandsins um leið og til
hennar var stofnað, og þvi
starfi gegndi hann til ársins
1946, að hann varð bankastjóri
Landsbankans. Þegar hann lét
1 dag kveðjum við Jón
Árnason, fyrrverandi banka- og
framkvæmdastjóra, einn af
mætustu sonum þjóðar vorrar,
og sem um langan aldur hafði
innt af hendi mörg hinna mikil-
vægustu starfa þjóðfélagsins á
þann hátt sem mikils er metið
og oft að verðleikum. Hann var
gæddur þeim hæfileikum, sem
hverjum forystumanni eru
nauðsynlegir, en of fáir eiga:
árvekni, fyrirhyggju, framsýni,
afburða dugnaði og skyldu-
rækni, samfara sivakandi
áhuga á hverju starfi, sem hann
hafði á hendur tekizt. Þessir
eiginleikar hans voru svo aug-
ljósir, að þeim hlaut að verða
veitt athygli af fjölda þeirra er
af honum höfðu kynni.
Jón var fæddur og alinn upp
hjá fólki sinu i Skagafirði en fór
til náms i Möðruvallaskóla og
tók próf frá Gagnfræðaskólan-
um á Akureyri 1905. Að loknu
skólanámi þar gerðist hann far-
kennari i átthögum sinum og i
Húnavatnssýslu næsta áratug-
inn, en stundaði margs konar
störf aö sumrum, bæði til lands
og sjávar.
Um þritugsaldur breytti hann
til um störf. Fór til
Kaupmannahafnar og var þar
af störfum i Sambandinu var
hann kjörinn heiðursíélagi þess.
A þeim áratugum sem Jón
Árnason gegndi framkvæmda-
stjórastarfi Útflutningsdeildar
Sambandsins, stýrði hann stór-
sókn i afurðasölumálum sam-
vinnumanna til lands og sjávar
og átti mjög rikan þátt i þróun
útflutningsviðskipta þjóðarinn-
ar allrar. A þessum árum voru
þessir þýðingarmiklu þættir i
samvinnustarfinu og raunar i
atvinnulifi allrar þjóðarinnar,
meðferð og sala afurðanna,
færðir mjög i það horf, sem
reynzt heíur farsæl undirstaða
þeirra stórfelldu framfara, sem
orðið hafa í landinu. Mörg voru
járn i eldinum og margt nýmæla
kom til. Nefna má útflutnin
freðkjöts, byggingu kjötfrysti-
húsa og siðan fiskfrystingu,
uppbyggingu samvinnuiðnaðar
veturinn 1916-T7. Þennan vetur
vann hann við og kynnti sér
starísemi kaupfélaganna i Dan
mörku, en fór siðan heim til
Islands vorið 1917 og gerðist
starísmaður Sambands isl.
samvinnufélaga, sem þá stofn-
aði heildsölu i Reykjavik, og
varð Jón þvi fyrsti fastráðni
starfsmaður Sambandsins og
hjá þvi vann hann til ársloka
1945, eða meira en 28 ár. — Þeg-
ar starfsemi Sambandsins
skiptist i deildir, gerðist hann
framkvæmdastjóri útflutnings-
deildar þess, en það varð fljótt
mikið starf og vandasamt, ekki
sizt á erfiðleikaárum eins og
1921-’23 og 1931-’33. Hann varð
að sjálfsögðu og flótlega að hafa
aðstoðarmenn við þessi störf, og
munu þeir Svavar Guðmunds-
son, siðar bankastjóri á
Akureyri, og Stefán Rafnar, sið-
ar aðalbókari Sambandsins,
hafa verið hinir fyrstu er urðu
hjálparmenn hans, báðir ágætir
starfsmenn, hvor á sinu sviði.
Brátt gerðist Hallgrimur
Kristinsson, hinn eldheiti hug-
sjónamaður samvinnustarfsins,
forstjóri stofnunarinnar — en
hans naut skammt við og and-
aðist i janúar 1923. Færðist þá
vandinn og starfið meira á Jón
úr uil og skinnum, kjötsölu-
skipulagið innanlands sam-
kvæmt kjötsölulögunum og ný-
Arnason en verið hafði, en brátt
rættistúr þvi, er Sigurður, bróð-
ir Hallgrims, gerðist forstjóri,
einn hinn prúðasti og samvizku-
samasti maður, er gott var að
kynnast, en þeir Jón tókust á við
erfiðleikana i störfum Sam-
bandsins, er stundum voru
miklir á þeim tima. Mörg kaup-
félögin, sem störfuðu um og
eítir 1920, voru fjárvana og urðu
að njóta aðstoðar Sambandsins
um marga hluti eins og von var
til.
Ég tel að þeir Jón og Sigurður
hafi innt af hendi mjög mikil
störf á þessum tima, sem þurfti
íórnarlund og framsýni til. —
Við borttför Jóns frá Samband-
inu 1945 hygg ég að Sambandið
hafi verið ein af fjársterkustu
stofnunum landsins og hvar-
vetna mikils metið.
Bankastjórn Jóns er ég minna
kunnugur, en veit að hann var
hinn sterki og ákveðni maður,
sem gerði sér grein fyrir þvi
sem var að gerast í landinu,
hvað var nauðsynlegtað gera og
hvað gat beðið um stund. For-
sjálni og íyrirhyggja var honum
i blóð borið.
Það mun hafa verið mjög að
ráði Jóns að afurðasölulögin
voru sett árið 1934 og að hans til-
skipan sölumála sjávarútvegs-
ins á félagslegum grundvelli.
1 öllum þessum umsvifum var
Jón Árnason i fylkingarbrjósti,
ýmist beint á vegum Sam-
bandsins og kaupfélaganna eða
með öðrum þegar fleiri þurftu
að koma til. Jón átti áratugum
saman þátt i flestum opinberum
samningum, sem gerðir voru
erlendis um viðskipti og fjár-
mál.
Að þessum mikilvægu málum
vann Jón Árnason af þeirri at-
orku og krafti, sem honum var
lagið, þvi hann var harðdugleg-
ur framkvæmdamaður, áræð-
inn og farsæll. Nutu samvinnu-
menn i rikum mæli forustu Jóns
i afurðasölumálum og brautryð-
jendastarfs hans i þeim efnum
nýttist einnig allri þjóðinni á
þeim umbrota- og breytinga-
timum, sem þá voru.
lögum farið um mörg ákvæði
þeirra, en þau hafa orðið
islenzkum landbúnaði til meiri
farsældar en flest annað á þvi
timabili sem siðan erliðið, enda
lét Jón sér m jög annt um hversu
færi með framkvæmd þeirra.
Störf hans fyrir Sölusamband
isl. fiskframleiðenda munu og
hafa verið hin mikilvægustu.
Sama mun og hafa verið um
starf hans i stjórn Eimskipa-
félags íslands, en þar átti hann
sæti marga áratugi, fyrst
stjórnskipaður en siðar kosinn
af hluthöfum meðan hann gaf
þess kost.
Að loknu tuttugu ára banka-
stjórastarfi við Landsbankann,
sem þá var einnig Seðlabanki
landsins, gerðist Jón einn
bankastjóra Alþjóðabankans i
Washington um tveggja ára
skeið. Smaladrengurinn norðan
af Vatnsskarði var þar með
kominn i hóp helztu fjármála-
jöfra heimsins. Það var löng
leið og viðburðarik og aðeins
fáum fær.
Ég færi Jóni Arnasyni þakkir
fyrir langa og innilega vináttu
og allt það sem ég hefi notið af
hans hendi og heimilis hans,
jafníramt þvi sem ég minnist
hinna mikilvægu starfa hans
Astæða er til að minna á það
sérstaklega, hve þýðingarmikið
og farsælt starf Jón Arnason
vann i samvinnuhreyfingunni i
þágu bændastéttarinnar og með
þýðingarmikilli forustu sinni i
undirbúningi og framkvæmd
afurðasölulöggjafar landbún-
aðarins, sem hann átti rikan
þátt i, en það leikur ekki á
tveim tungum að afurðasölu-
skipulagið sem innleitt var á
kreppuárunum, reyndist sú
lyftistöng, sem hóf landbúnað-
inn úr djúpum öldudal til far-
sællar þróunar.
Samvinnumenn hafa margt
að þakka Jóni Árnasyni nú við
leiðarlokin og kveðja hann með
virðingu og þakklæti.
Eysteinn Jónsson
Erlendur Einarsson.
með eindregnum þökkum og
virðingu.
Jón kvæntist 8. jan. 1925 Sig-
riði, dóttur Björns Sigfússonar
alþingismanns á Kornsá, góðri
konu og mikilhæfri, sem hæfði
manni sinum. Börn þeirra voru
þrjú, tveir synir og ein dóttir.
Dóttirin lézt af slysförum á
fermingaraldri, dáð af öllum er
hana þekktu, og það hygg ég
hafa verið foreldrum hennar
báðum hið mesta sorgarefni æv-
innar, er hún féll frá með svo
sorglegum hætti. Synirnir báðir,
Árni og Björn, eru myndarmenn
sem þeir eiga ættir til og starfa
að mikilsverðum málum af
áhuga.
Jón var heimakær og mat
heimili sitt og fjölskyldu um-
fram það sem viðast gerist.
Siðustu árin, einkum hið sið-
asta, varhonumsjálfum og allri
fjölskyldunni mjög þungt i
skauti sökum þungra veikinda
hans og raunar þeirra hjóna
beggja.
Ég votta frú Sigriði, sonum
hennar og ástvinum, innilegustu
samúð og bið þeim öllum far-
sældar um ókominn tfma.
Jón ivarsson
Lér konungur
í Þjóðleikhúsinu
— æfingar hafnar, en frumsýning
fyrirhuguð í marz
gébé Reykjavik — i Þjóðleik-
húsinu hófust nýlega æfingar á
leikriti Shakespeares, Ler kon-
ungur, en þetta leikrit hefur
aldrei verið flutt á sviði hér áð-
ur. Aætlað er, að frumsýning
verði 2. marz n.k. Einn af þekkt-
ustu yngri leikstjórum Breta,
Hovhannes I. Pilikian stjórnar
verkinu, en leikmynd gerir
Raiph Koltai, sem er yfirleik-
myndateiknari við Royal
Shakespcare Co. i London.
Lér konungur er einn kunnasti
harmleikur Shakespeares og al-
mennt talinn hinn vandasam-
asti. Leikritið hefur verið flutt i
islenzka rikisútvarpinu. Stein-
grimur Thorsteinsson þýddi
—--------------------m.
Brezki leikstjórinn Hovhannes
I. Pilikian leikstýrir Lé konungi
i Þjóðleikhúsinu
leikinn fyrst fyrir tæpri öld, en
sú þýðing hefur aldrei verið
leikin. Það er þýðing Helga
Hálfdánarsonar, sem hér verð-
ur leikin, eins og i útvarpinu um
árið.
Leikstjórinn, Pilikian, hefur
staðið fyrir ýmsum mjög um-
ræddum sýningum i Bretlandi
undanfarinár, t.d.i hátiðarleik-
húsinu i Chichester og á Edin-
borgarhátiöinni. Koltai er i hópi
fremstu leikmyndateiknara
heims um þessar mundir, og
fékk m.a. fyrstu verðlaun á al-
þjóðastefnu leikmyndateiknara
i Prag i fyrra.
Stefán Baldursson er að-
stoðarleikstjóri, Rúrik Haralds-
son leikur Lé konung, Baldvin
Halldórsson fiflið, Erlingur
Gislason Jarlinn af Gloster og
Kristbjörg Kjeld, Anna Kristin
Arngrimsdóttir og Steinunn Jó-
hannesdóttir dæturnar, Goneril,
Regan og Krodeliu.