Tíminn - 14.01.1977, Side 13
Föstudagur 14. janúar 1977
13
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttirkl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Einar Logi Einarsson
les frumsamda smásögu
„Sá yðar sem...” Ti 1-.
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. Spjallað við
bændur kl. 10.05. Óskalög
sjúklinga kl. 10.30: Kristin
Sveinbjörnsdóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna:
Tónleikar.
14.40 Miðdegissagan: „Bókin
um litla bróður” eftir Gust-
af af Geijcrstam Séra
Gunnar Arnason les þýð-
ingu sina (6).
15.00 Miðdegistónleikar Glenn
Gould leikur á pianó Partit-
ur nr. 1 i B-dúr, nr. 5 i G-dúr
og nr. 6 i e-moll eftir Johann
Sebastian Bach.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.20 Popphorn
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.30 Útvarpssaga barnanna:
„Vetrarævintýri Svenna i
Asi” Höfundurinn, Jón Kr.
Isfeld, les (11).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Landnámssagnir fslend-
inga i ljósi goðsagna Einar
Pálsson flytur siðara erindi
sitt.
20.05 Frá tónleikum Sinfóniu-
hljómsveitar islands i
Háskólabiói kvöldið áður:
fyrri hluti. Hljómsveitar-
stjóri: Vladimir Askenazý
Einleikari á fiðlu: Boris
Belkin Flutt verður tónlist
eftir Tsjaikovski. a.
„Rómeó og Júlia”, forleik-
ur. b. Fiðlukonsert i D-dúr
op. 35. — Jón Múli Árnason
kynnir. —
21.00 Leiklistarþátturinn i
umsjá Hauks J. Gunnars-
sonar.
21.30 Útvarpssagan: „Lausn-
in” eftir Arna Jónsson
Gunnar Stefánsson les (5).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Ljóðaþátt-
ur Óskar Halldórsson sér
um þáttinn.
22.40 Afangar Tónlistarþáttur
sem Asmundur Jónsson og
Guðni Rúnar Agnarsson
stjórna.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
sjónvarp
Föstudagur
14. janúar
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Undraheimur dýranna
Mynd um dýralif i heitustu
og köldustu löndum heims
úr bresk-bandariskum
fræðslumyndaflokki. út-
verðir dýrarikisins Þýðandi
og þulur Ingi Karl Jó-
hannesson.
21.05 Kastljós Þáttur um inn-
lend málefni. Umsjónar-
maður Sigrún Stefánsdóttir.
21.55 Am e riku bóf in n
(Gangsterfilmen — en
framling steg av táget)
Sænsk biómynd frá árinu
1974. Leikstjóri Lars G.
Thelestam. Aöalhlutverk
Clu Gulager, Ernst Gunther
og Per Oscarsson. ókunnur
ævintýramaður sest að i
sænskum smábæ og gerist
umsvifamikill i bæjarlifinu.
Þýðandi Vilborg Sigurðar-
dóttir.
Dagskrárlok
Hinrik konungur VIII
og konur hans sex
Eftir Paul Rival
skalf af kulda, honum fannst hann heyra Önnu hlægja.
Um hvern skyldi hana vera að dreyma, eina þarna i
fangelsinu, sjálfsagt einhvern fríðan æskumann, sem
hafði hvorki ígerð né önnur lýti, einhvern, sem ellin
hafði ekki gert þunglamalegan. Þarna voru þau öll, lok-
uð inni. Hinrik gerði sér í hugarlund, hvernig þeim iiði,
þau voru ef til vill að biðjast fyrir, eða gráta, hugrekki
manna þverr, þegar myrkrið skellur á, og dauðinn var
alltaf hræðilegur. Hann einn gat leyft þeim að lifa, gat
bjargað þeim f rá angistinni og fært þau út í dagsbirtuna.
En, nei, hann ætlaði að láta þau farast. Honum þótti
vænt um Georg og Norris . Hann elskaði Önnu líka. Rödd
Marks hafði hrifið hann og fært honum frið. Allir, sem
hann hafði alið við brjóst sér, voru þarna inni, en hann
var orðinn þreyttur á að elska og verða fyrir vonbrigð-
um.
Svo skipaði Hinrik ræðurunum að snúa aftur til hallar-
innar, á heimleiðinni var hann orinn enn þunglyndari og
einmannalegri, hann vafði að sér skikkjunni og augu
hans voru lokuð. Hann var búinn að kalla dauðann yfir
alla, sem hann unni, dauðinn sveimaði yfir þeim öllum,
þöndum vængjum, hann þurfti aðeins að skipa, þá mundi
dauðinn steypa sér yfir þau og hremma þau, dauðinn
brástaldrei. Enn heyrði Hinrik óminn af söng, sem barst
út yfir ána, það ver varið að vísa drykkjumönnunum á
dyr, úr ölstofunum, þeir komu slagandi niður árbakk-
ann. Konurnar í borginni rumskuðu við, þá minntust þær
Önnu og signdu sig, krossmarki.
Hinrik leitaði á f und Janes Seymour, hann færði henni
trúlof unardjásnin, en hugur hans snérist allur um Önnu.
Stundum lokaði hann sig inni og skrifaði Ijóð, þá mundi
hann að Anna hafði ávallt hlegið að Ijóðum hans, þá reif
hann það, sem hann hafði ort og brenndi því. Hinrik gat
ekki lengur greint draum frá veruleika. Hann spurði
sjálfan sig hvort hann og Anna hefðu nokkru sinni lifað i
raun og veru, hvort líf þeirra hefði ekki verið undarleg
ímyndun. Hinrik tók sig til og fór að skrifa sorgarleik um
sögu þeirra Önnu, þar sem hann reyndi að ímynda sér
kvartanir hennar. Þá skrifaði hann lengi, svo lagði hann
pennann frá sér, Anna talaði ekki svona. Hann hafði
aldrei þekkt hana, í raun og veru, Anna mundi fara með
öll sín leyndarmál í gröfina. Kvöld eitt sat hann kvöld-
verðarboð biskupsins af Carlisle, þá sýndi hann pre-
látanum sorgarleikinn, sem hann var að skrifa.
Ungu mennirnir fimm.
Hinn tólfta maí, settust dómararnir á rökstólana. Þá
voru þeir Norris, Mark, Bereton og Weston leiddir fyrir
réttinn. Mark varenn miðursín eftir pyntingarnar, hann
t'Jæja, sjálfstýringin
sér um allt, við T Kaffið
etum slappað af / leiðinni
Geiri!
1 út í geiminn.