Tíminn - 14.01.1977, Side 17
Föstudagur 14. janúar 1977
17
„Ég reikna
með því að
fara undir
hnífinn
ANTON BJARNASON, hinn gamalkunni leikmaður
Fram-liðsins í knattspyrnu hefur verið ráðinn þjálfari 1.
deildarliðs Fram næsta keppnistímabil. Eins og kunnugt
er, hafa þeir Guðmundur Jónsson og Jóhannes Atlason
verið þjálfarar Fram undanfarin ár, en þeir gáfu ekki
kost á sér lengur, svo Fram varð að leita á önnur mið og
má telja víst, að félagið hafi verið heppið að fá Anton til
sín.
— „Þetta er stærsta verkefnið,
sem ég hef fengið — og það verður
Kirby
kemur
— til Skaga -
manna í marz
erfitt að fylla skörð peirra
Guðmundar og Jóhannesar”,
sagði Anton I stuttu spjalli við
Timann I gærkvöldi. — Ég er
bjartsýnn á, að strákarnir standi
sig, eins og þeir hafa gert undan-
farin tvö ár. Fram-liðið hefur á að
skipa ungum og efnilegum
leikmönnum, og svo eldri
leikmönnum, sem hafa mikla
reynsiu að baki. Ég mun gera
mitt bezta, og ég veit, aö strák-
arnir eru tilbúnir að leggja hart
að sér til að ná árangri. Það hefur
ekki munað miklu undanfarin ár,
að þeim hafi tekizt að tryggja sér
islandsmeistaratitilinn — ég hef
trú á, að þeirra timi sé nú kom-
inn, sagöi Anton.
Anton byrjaði ungur — 17 ára,
að leika með Fram-liðinu, lék á
sinum tima 5 landsleiki, en sinn
fyrsta iandsleik lék hann gegn
Wales 1966 á Laugardalsvellin-
um, þá 19 ára. Þá hefur hann
einnig ieikið i landsliðinu I körfu-
knattleik og blaki.
Fram-Iiðið mun byrja æfingar
af fullum krafti undir stjórn
Antons i febrúar.
— SOS
ANTON BJARNASON....
hefur tekið við stjórninni á
Fram-liöinu.
— Mig hefur alltaf langað til að
spreyta migl 1. deildarkeppninni,
áður en ég legði skóna á hilluna,
sagði markaskorarinn mikli frá
Selfossi, Sumarliði Guðbjartsson,
þegar Timinn hafði samband við
hann i gærkvöldi.
Eins og menn vita, þá er Sum-
arliði mikill markaskorari —
hann er skotfastur, hefur yfir
góðri skallatækni að ráða, er leik-
inn, harðfylginn og eldfljótur.
Sumarliöi, sem er 25 ára mun ef-
laust banka á landsliðsdyrnar i
sumar, þegar hann verður kom-'
inn á fulla ferð, því að hann gefur
okkar beztu sóknarleikmönnum i
1' deild, ekkert eftir.
— Hvers vegna varðFram fyr-
ir valinu?
— Fram-liðið er afar skemmti-
legt liö og I þvi leika strákar, sem
ég hef áhuga á að leika með. Ég
erþó ekki enn búinn að vinna mér
sæti i liðinu, en að sjálfsögðu mun
ég leggja hart að mér, svo að það
takist, sagði Sumarliði.
— Ég þekki Sumarliða vel og
það er ekki að efa, að hann kemur
til með að styrkja Fram-liðið
mikið, sagði Anton Bjarnason,
þjálfari Fram, þegar viö ræddum
um þennan nýja kraft, sem
Fram-liðið á von á.
—SOS.
GEORGE Kirby hefur verið
ráðinn þjáifari 1. deildariiðs
Skagamanna. Kirby er ekki
óþekktur hér á landi — hann
gerði Akranesliðið að Islands-
meisturum 1974 og 1975.
— Við erum búnir að ganga
frá samningum við Kirby,
sem er nú við þjálfum i
Kuwait, sagði Magnús
Kristjánsson, stjórnarmaður
IA i stuttu spjalli við Timann i
gær. — Kirby kemur hingað i
marz og mun hann þá byrja af
fullum krafti, sagði Magnús.
— Verða einhverjar breyt-
ingar á Skagaliðinu?
— Nei, allir sömu leikmenn-
irnir og léku sl. keppnistima-
bil, að Teiti Þórðarsyni und-
anskildum, verða með. Þeir
eru nú þegar byrjaðir að æfa.
-
Anton Bjarnason
ráðinn til Fram
— Byrjar að þjálfa Fram-liðið strax
í næsta mánuði
Sókndjarfur
Selfyssinaur
í Fram-liðið
JÓN PÉTURSSON... sést hér
spyrna knettinum frá marki I
leik gegn Valsmönnum sl.
sumar. Hermann Gunnarsson
sést i vigahug álengdar.
— fljótlega", segir Jón Pétursson,
fyrirliði Fram-liðsins, sem .
hefur brjósklos í hné
Svipað hjá Kristni
Kristinn Jörundsson, miðherji
Fram-liðsins á við svipuð meiðsli
að strlða. — Ég hef ekki látið at-
huga hnéð nýlega, en ég mun
væntanlega gera þaðfljótlega. Ég
meiddist á sl. keppnistimabili og
þá benti allt til þess, að um
brjósklos væri að ræða, sagði
Kristinn.
fyrirliði Fram-liðsins og
landsliðsbakvörður í knatt-
spyrnu.
Jón hefur fundið til eymsla i
hné, eftir meiðsli sem hann hlaut i
kappleik sl. sumar. — Það er nú
öruggt, að þetta er brjósklos i hné
og það þýðir ekkert annað en
skurðaðgerð til að fá sig góðan,
sagði Jón.
— Það getur verið, að þetta sé
eitthvað meira. Það var tekin
mynd af hnénu nú I vikunni, og i
næstu viku liggur ljóst fyrir, hvað
þarf að gera, sagöi Jón. Jón mun
þvi væntanlega verða frá æfing-
um i 5 vikur, eftir uppskurðinn og
siðan má búast við að það taki
hann drjúgan tima að komast i
æfingu á ný.
— Ég mun væntanlega
fara undir hnffinn fljót-
lega, það verður skorið úr
því í næstu viku, sagði Jón
Pétursson, hinn harðsnúni
Enska
knattspyrnan
— sjá bls. 7