Tíminn - 18.03.1977, Side 7

Tíminn - 18.03.1977, Side 7
c oo oc c Föstudagur 18. marz 1977 7 Ungur ferða- langur Brezka poppstirnið Sutch lávarður fékk óvænta sendingu i flugpósti um daginn. Hann hafði um skeið búið með bandariskri dansmey, Thann Rendessy, og höfðu þau eignazt saman son, Tristan, sem nú er tveggja ára. Þegar slitnaði upp úr sam- bandi þeirra, fór Thann til Ameriku með Tristan. En skyndilega varð hún leið á móðurhlutverkinu, gerði sér litið fyrir og fór út á flugvöll i Los Angeles, þar sem hún býr nú, gaf sig á tal við alókunnuga stúlku, sem i ljós kom að var að fara til London, og bað hana fyrir drenginn. Síöan fór hún i sima og hringdi i föðurinn, og sagði honum, að sér fyndist timi til kom- inn, að hann sæi ögn um drenginn, og þvi hefði hún skotið honum upp i flugvél og hann gæti sótt hann út á flugvöll. Sutch féllst á, að nú væri komið að sér að hafa Tristan hjá sér um tima. Við blaðamenn sagði hann: — Mér þykir trúlegt, að ég hafi Tristan hjá mér næstu 18 mánuðina. Siðan sendi ég hann aftur til Thann. Hann hefur þegar ferðazt á eigin vegum, og ég býst við, að hann eigi enn auðveldara með það i næsta skipti! A meðfylgjandi mynd- um má sjá móðurina, Thann Rendessy, einsamla, föðurinn, Sutch lávarð með Tristan, og hina ókunnugu barnfóstru koma út úr flugvélinni með Tristan. Svalur, þvi taliö þiö tveir Tíma- spurningin Hlustar þú á ljóðaþátt rikisútvarpsins á föstu- dagskvöldum? Anna Guömundsdóttir. Já, ég hlusta ætiö á hann þegar ég kem þvi viö. Ég hef mjög gam an af ljóöum og finnst þessi þættir meö þvi betra sem er I útvarpinu. Anna G. JúIIusdóttir Nei, ég hef aldrei hlustað á þenn- an þátt, þó þykir mér gaman aö sumum ljóöum. Baldvin Jónsson. Þessi þáttur hefur bara alveg far- iö framhjá mér, en ég hef yndi af ljóðum, sérstaklega islenzkum ættjaröarljóöum. Haraldur Auöunsson. Jú ég reyni aö hlusta á þennan þátt sem oftast, enda hef ég gam- an aöljóðum. Þaö er alltof litiö af slikum þáttum i dagskrá rikisút- varpsins. Linda Rós Mikaelsdóttir. Ég hlusta á þennan þátt þeirra Njaröar og Óskars alltaf þegar ég get, og þykir hann góöur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.