Tíminn - 18.03.1977, Síða 10

Tíminn - 18.03.1977, Síða 10
10 Föstudagur 18. marz 1977 r Tónlistarskólans tónlist Nemendahljómlcikar Tónlistar- skólans Efnisskrá: Boccerini: Cellókonsert i B-dúr Mendelssohn: Pianókonsert nr. 1 i g-moll op. 25 Schubert: Sinfónia nr.8 i h-moll Hljómsveit Tónlistarskólans i Reykjavik hélt tónleika i Há- skólabiói laugardaginn 12. marz, þar sem fram komu, auk hljómsveitarinnar, tveir nemendur sem eru að ljúka brottfararprófi: Lovisa Fjeld- sted, sem lék einleik á knéfiðlu, ogGuðný Asgeirsdóttir, sem lék einleik á pianó. Marteinn Hung- er Friðriksson stjórnaði. Mörgum þykja þessir tón- leikar meö hinum skemmtileg- ustu, sem hér eru haldnir. Yfir þeim hvilirsérstakur andi æsku og vonar — þarna getur að lita tónlistarmenn framtiöarinnar. . Björn ólafsson fiðlari stofnaði hljómsveit Tónlistarskólans ár- ið 1941, og stjórnaði henni i fjöldamörg ár. Enda hitti ég á þessum tónleikum menn, sem sögðustævinlegafara á tónleika hennar ef þeir mögulega gætu, og hefðu varla misst af konsert i 20 ár. Sé fylgzt með hljómsveitinni ár frá ári getur að lita eilifa endurnýjun: nýirfélagarbætast við á öftustu púltum, en af fremstu púltum koma einleikar- arnir — hver nemandi, sem brottfararprófi lýkur i hljóð- færaleik, spilar konsert með hljómsveitinni, en heldur auk þess sjálfstæða tónleika i Austurbæjarbiói, hvort tveggja sem liö i prófinu. Siðan hverfa þeir i nokkur ár til framhalds- náms erlendis, en birtast siðan aftur (ef guð lofar) i Sinfóniu- hljómsveit Islands. 1 vetur munu útskrifast 5 nemendur úr Tónlistarskólanum. Þetta var annar konsertinn af þremur, hinn þriðji verður haldinn i byrjun april Tónleikarnir Þessi gagnrýnandi átti i innri baráttu um það hvort sækja skyldi sýningu á Ladykillers i Laugarásbiói eða þessa tón- leika, en i þeirri mynd mynd- anna leikur einmitt strengja- kvartett Alec Guinness hinn frá- bæra kvartett Boccherinis, sem miðaldra útvarpshlustendur muna svo vel. En skylduræknin varð ofan á, og i staðinn heyrði ég Lovisu Fjeldsted leika ein- leik i einum af knéfiðlukonsert- um Boccherinis. Þessi konsert (sem mun vera einn af 8 kné- fiðlukonsertum skáldsins) er sagður ótæti að spila, og háska- legur með það að hitta nákvæm- lega á réttan tón. Hægi kaflinn var langbeztur, og mikilánægja á að hlýöa. En með þvi að kné- fiðlan er ekki voldugt hljóðfæri nema i höndum meistara, leyfði stjórnandinn hljómsveitinni aldrei að taka á, og konsertinn varð i allra daufasta lagi fyrir bragðið, einkum fyrsti þáttur- inn. Næstlék Guöný Ásgeirsdóttir, ásamt hljómsveit Tónlistarskól- ans, g-moll pianókonsert Mendelssohns. Þetta var greini- lega beztheppnaða verkiðá tón- leikunum, blásararnir léöu hljómsveitinni lit, og hin unga Guðný virðist vera hinn slag- ferðugasti pianisti. Mendels- sohn sjálfur var 22 ára þegar hann frumflutti konsertinn i október árið 1821. Loks lék hljómsveitin ófull- gerðu sinfóniuna eftir Schubert. Þessi sinfónia er afar vandmeð- farin, og liklega ekki við hæfi minni háttar hljómsveita þrátt fyrir allt. Enda var flutningur- inn allskrykkjóttur með köflum. En slik smáatriði skipta ekki meginmáli á tónleikum sem þessum — það starf, sem unnið er i Tónlistarskólanum.er mikil- vægt og merkileg, og þessir tón- leikar eru liður i þvi. Enda ráð- legg ég öllum þeim lesendum Timans, sem aðstæöur hafa til, að láta sig aldrei vanta á nemendahljómleika Tónlistar- skólans — þeir eru nefnilega mannbætandi. 13.3. Sigurður Steinþórsson „Fjör kenni oss eldurinn” Bjarni Thorarenscn: LJÓÐMÆLI. Órval. Þorleifur Hauksson bjó til prentunar. Rannsóknastofnun i bók- inenntafræði og Menningar sjóður Reykjavik 1976. 198 bls. Þetta er önnur bókin i flokkn- um islenzk ritsem Bókmennta- stofnun stendur að. Hin fyrsta var úrval frumkveðinna og þýddra ljóða séra Jóns Þorláks- sonar sem Heimir Pálsson gaf út. Bækur þessar eru einkum ætlaðar til bókmenntanáms við háskólann, en annars aögengi- legar hverjum áhugamanni. Þær eru snoturlegar að frá- gangi: band smekklegt og pappir góður. Fremst stendur alllangur inngangur, en aftan við textann skýringar og at- hugasemdir, ennfremur skrár um útgáfur og heimildir. Aður en lengra er haldið mun rétt að vikja nokkrum oröum aö stefnu ritstjórnar I útgáfu þess- ari. Slikar textaútgáfur eru nauðsynlegar, en hitter kynlegt að stofnunin skuli ekki ráðast fyrst á garðinn þar sem þörfin er brýnust. Slikt verður ekki sagt um frumort kvæði Jóns á Bægisá og enn siður um ljóð Bjarna Thorarensens. Hand- hægt úrval úr kvæðum Jóns gaf Andrés Björnsson út 1956, en hins vegar hefði verið gaman að endurprenta i heilu lagi þýöingu Jóns á Paradisarmissi, enda töluvert á aðra öld siöan hún kom út. Um Bjarna er það að segja að fáanlegt er rúmgott úr- val úr kvæðum hans sem Kristján Karlsson gerði 1954. Sú útgáfa, eins og bókin sem hér liggur fyrir, er reist á undir- stöðuútgáfu Jóns Helgasonar prófessors 1935, sem er ein hin allra nákvæmasta textaútgáfa sem gerð hefur verið á kvæðum islenzks skálds. Það gat þvi engan veginn talizt aðkallandi aö'gefa nú út úrval kvæða þessara tveggja skálda. Með þessum orðum er ekki veriö að varpa rýrö á út- gáfurnar eins og þær liggja fyr- ir. En eindregið verður að mæl- ast til þess að Bókmenntastofn- un snúi sér að brýnni verkefn- um. Kveðskapur Hallgrims Péturssonar utan Passiusálm- anna liggur óbættur hjá garði, einnig skáld átjándu aldar, svo og kveðskapur Matthiasar Jochumssonar, svo að fátt sé taliö. Næsta bindi i flokknum mun verða úrval úr ljóðum Daviðs Stefánssonar og er það þarft verk sem gaman verður að sjá hvernig tekst. Þá skal snúið að útgáfu Þor- leifs Haukssonar á kvæðum Bjarna Thorarensens. Eins og áður sagði hefur útgefandi getað sparaö sér textarann- sóknir að mestu, þar sem Jón Helgason hefur þegar unnið það verk. Eina breytingin á meðferð textans ifyrir utan að færa staf- setningu til nútimahorfs) er sú aö kvæðunum er nú raðað eftir efnisflokkum en ekki aldri. Sú breyting er að visu umdeilan- leg, en getur þó reynzt til glöggvunar, enda er henni fylgt eftir í inngangi. Byrjað er á ætt- jarðar og náttúrukvæðum, siðan koma trúarleg og „per- sónuleg” kvæði, mansöngvar og ástarkvæði, þar næst þýöingar. Ennfremur er safnað saman kvæðum undir fyrirsögninni Embættismaðurinn, en slöasti kafli, Samferöamenn, geymir hin miklu erfiljóð Bjarna sem einkum hafa skipað honum á stórskáldabekk. Inngangsritgerð útgefanda er vel samin og greinargóð. Þess erekki aö vænta af sllkum rit- gerðum aö þær flytji verulegar nýjar athuganir: fremur eiga þæraö veita skipulegt yfirlitum efniö, reist á niöurstöðum þeirra sem áður hafa um það fjallað. Otgefandi sjálfur hefur raunar lagtgóðan skerf tilrann- sókna á kvæðum skáldsins þar sem er ritgerðin Endurteknar Bjarni Thorarensen myndir i kveðskap B.T. (Studia Islandica 27). Þorleifur lýsir einkenn- um á skáldskap Bjarna af glöggskyggni og næmleik og greinargerö hans er öll hófsam- leg og rökstudd. Á hinribóginn sakna ég þess að hinum sögu- lega þætti skuli ekki gerð fyllri skil, en slikt hefði ef til vill borið innganginn ofurliði. Útgefand- inn drepur að visu á kenningar Henriks Steffens sem talið er að hafi i upphafi nitjándu aldar flutt rómantisku stefnuna til Norðurlanda. Þá er vikið að franska heimspekingnum Montesquieu og áhrifum kenn- inga hans um að loftslag móti menningu þjóða. Þau áhrif eru glögg í kveðskap Bjarna og hef- ur Bjarni Guðnason gert þvi efni skil i ritgerð. — Það sem að minum dómi skortir i inngangi Þorleifs Haukssonar er nánari lýsing á stöðu Bjarna i Islenzkri bókmenntasögu. Það hefði mátt láta koma fram með því að fjalla með rækilegri hætti um afstöðu hans til upplýsingar- manna annars vegar og Bald- vins Einarssonar og Fjölnis- manna hins vegar. Saman- buröur viö Eggert ólafsson hefði hér verið skýrandi. Og ágreiningnum við Magnús Stephensen er ekki lýst hér nema fram kemur hve mis- haröir dómendur þeir voru. En skoðanamunur þeirra var væntanlega á fleiri sviðum (svo að sleppt sé með öllu persónu- legum ýfingum). Til að gefa hugmynd um tök útgefanda á efninu tek ég til- vitnun úr sjöunda kafla inn- gangsins. Þá skilst hvað viðer átt þegar óskað er eftir ræki- legri bókmenntalegum saman- burði frá hendi Þorleifs: „Viö finnum ekki I kvæöum Bjarna þann hálfrökkvaða, dularfuila náttúruheim, byggðan viðsjál- um vættum, sem erlend róman- tisk skáld gerðu mjög að vett- vangi kvæða sinna... Þessi heimur fékk ekki þegnrétt i frumsömdum islenzkum skáld- skap fyrr en i náttúru og vætta- kvæðum Grims Thomsens. Al- gyðistrú, eins konar opinberun guðdómsins i náttúrunni, sem kemur fram hjá mörgum rómantiskum skáldum, birtist ekki I k væðum Bjarna, hins veg- ar siðar i kvæðum Steingrims Thorsteinssonar. Hinir öfga- fyllri þættir rómantisku stefn- unnar sjást ekki i kvæðum hans fremur en i öðrum islenzkum skáldskap né heldur forkláruð upphafning hennar sem einna helzt kemur fram hjá Benedikt Gröndal. Að orðfæri, yrkisefn- um og jafnvel afstöðu sver Bjarni sig iðulega fremur i ætt við eldri skáld en þau sem á eftir komu...” Slfk tök á efninu þykja mér til fyrirmyndar: aðeins óskar les- andi þess að lengra sé gengið i þessa átt. En hér sem vlöar rek- um við okkur á að islenzk bók- menntasaga er ölli molum. Ein- stökum skáldum hefur að visu verið gaumur gefinn, þó mjög mismikill, en þegar að sögulegu samhengi kemur eða hug- myndalegri úttekt verður fátt við að styöjast. Að endingu skal drepið á eitt smáatriði sem varðar meöferð heimildai inngangi. Tvivegis er vitnaö i þau ummæli að Bjarni sé skáld hins innra, en Jónas hins ytra, og sagt að þau sé að finna i útgáfu á ljóðmælum Jónasar 1883. En þess er ekki getið að þau standa i inngangi HannesarHafsteins að þeirri út- gáfu. Sú mun ætlunin aö i þessum bókaflokki komi framvegis tvö rit árlega. Vonandi tekst að halda þeim útgáfuhraða, án þess að þaö bitni á vinnu- brögðunum. Eftir fáein ár veröur þetta oröið myndarlegt ritsafn, þarfaþing öllum sem með einhverjum hætti leggja stund á islenzkar bókmenntir og sögu þeirra. Gunnar Stef ánsson bókmenntir

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.