Tíminn - 25.03.1977, Qupperneq 3
Föstudagur 25. marz 1977
3
Islenzk mat-
vælakynmng
í næstu viku
A þriöjudag hefst á vegum Is-
lenzkrar iðnkynningar kynning
á islenzkum matvælum. Þar
munu 25 fyrirtæki kynna fram-
ieiðslu sina, en kynningin stend-
ur I 5 daga og lýkur sunnudag-
inn 3. aprfl. Kynningin fer fram
I Iðnaðarhúsinu við Hallveigar-
stig og veröur aögangur
ókeypis.
Ekki mun áður hafa farið
fram jafn viðtæk sérkynning á
Islenzkum matvælum, en m.a.
verða eftirtalin matvæli kynnt:
Kjötvara, ostar, smjör, mjólk,
is, lagmeti, brauð, súpur, kex,
drykkjarvörur og sælgæti. A
matvælakynningunni verða
tværmeiri háttar samsýningar:
sýningardeild lagmetis, þar
sem 6 fyrirtæki standa sam-
eiginlega að vörukynningu, og
sýningardeild sælgætis-
framleiðenda, þar sem 7 sæl-
gætisframleiðendur kynna
framleiðsluvörur sinar.
1 flestum sýningardeildum
verður gestum boðið að bragða
á framleiðsluvörum viðkomandi
fyrirtækis. Gestahappdrætti
verður á sýningunni og á hverj-
um degi dreginn út einn vegleg-
ur matvælavinningur. Er miöað
við að hver vinningur samsvari
ársneyzlu 4ra manna fjölskyldu
á viökomandi matvælategund.
Samtimis matvælakynning-
unni verur efnt til sýningar á
eldhúsinnréttingum frá þremur
islenzkum fyrirtækjum.
Viðræður um 3ja
kerskálann
Gunnar Thoroddsen iðnaðar-
málaráðherra skýrði frá þvi á al-
þingi I gær, að teknar verði á ný
upp viðræöur viö svissneska álfé-
lagið um byggingu þriöja ker-
skálans I Straumsvlk.
Þegar hefur verið samið um
byggingu kerskála til viðbótar
þeim, sem fyrir er, og mun hann
krefjast tuttugu megavatta raf-
orku. Þriðji kerskálinn verður
afturá móti miklu orkufrekari, ef
samningar verða gerðir um hann,
þar eö hann mun krefjast hvorki
meira né minna en áttatiu mega-
vatta.
Keppni i reiðhjólaþrautum
HV-Reykjavik — A morgun,
laugardag hefst keppni I reið-
hjólaþrautum fyrri riðill, á
vegum Umferöarráös. Hefst
keppnin við Austurbæjar-
barnaskólann klukkan 13.30 og
verða keppendur um sextlu
talsins, vlðs vegar að af land-
inu. Þeir sem lengst að sækja
keppnina eru frá Stöðvarfiröi
og Tálknafirði.
Síðari riðill keppninnar fer
svo fram I næstu viku á Akur-
eyri en f honum eru keppendur
af Noröurlandi.
Þeir krakkar sem bezt
standa sig I þessari keppni fá
svo að fara til Belgiu i mai-
mánuði til aö taka þar þátt i
alþjóðlegri keppni.
Hver vill ekki skreppa út og hjóla dálftinn spöl f öðru eins veöri? Tlma
mynd Róbert.
Krafla
Risið
hægir á
sér
JB-Reykjavik — Slðastliðinn
sólarhring mældust 142
skjálftar I Mývatnssveit og
hafa skjálftar ekki oröið fleiri
I þessari hrinu. Nltján skjálft-
ar mældust yfir tvö stig á
Richter , og a.m.k. fimm fund-
ust greinilega I Kröflubúðum.
Samkvæmt upplýsingum frá
vaktmanni á skjálftavakt 1
Reynihlíð I gær, þá eru upptök
skjálftanna á svipuðum slóö-
um og áður þ.e. vestur og
norður af búðunum. Þá hefur
risiðheldurhægt á sér siðustu
daga, en þegar það mældist
mest i nótt var þaö orðið 9,3
mm þ.e. norðurendinn hærri
miðað við suðurendann.
Frétta-
tilkynning
FÉLAG einstæöra foreldra hefur
hleypt af stokkunum skyndihapp-
drætti, verður öllum ágóða variö
til að hraða endurbótum og
breytingum á neyðarhúsnæöi
félagsins i Skerjafirði, en vonir
standa til, að hægt verði að ljúka
viðgerðum innanhúss i vetur ef
vel gengur. Vinningar i happ-
drættinu eru meöal annars lita-
sjónvarp, ruggustóll, vikudvöl i
Kerlingafjöllum, páskaferð á
Snæfellsnes, málverk eftir Hring
Jóhannesson og listaverk eftir
Sólveigu Eggerz, svo aö nokkrir
séu nefndir. Miðinn kostar 300
krónur og munu Lionsfélagar i
klúbbnum Muninn, sem starfar i
Kópavogi, veröa félögum i Félagi
einstæðra foreldra til aðstoöar viö
sölu miðanna. Þeir félagar, sem
vilja vinna að þessu þarfa máli og
selja miöa, geta snúið sér til
skrifstofu félagsins i Traöarkots-
sundi, og er öll slik aðstoð þakk-
samlega þegin. Dregið verður i
happdrættinu 5. april.
Davið Sch. Thorsteinsson á ársþingi F.f.I.
-----*------------------- ----
MISMUNUN STAÐREYND,
KRAFAN JAFNRÉTTI
kvæmdaatriði, sem i ljós kemur
aö nauðsynlegar verða til að
jafna starfsaöstöðu Islenzks
iðnaðar.”
Ég bind miklar vonir við störf
Arsþing islenzkra iðnrek-
enda hófst I gær, og mun þvi
verða fram haldið I dag. A
fundinum I gær var lýst
stjórnarkjöri I samtökunum.
Davlö Sch. Thorsteinsson
var endurkosinn formaður
þeirra, með 98,96% atkvæða
en meðstjórnendur til
tveggja ára Kristinn Guð-
jónsson og Björn Guðmunds-
son, báðir einnig endur-
kjörnir. Fyrir voru i stjórn-
inni Björn Þorláksson og
Hjalti Geir Kristjánsson.
I ræöu sem Davið Sch.
Thorsteinsson flutti I gær,
sagði hann:
„Margt athyglisvert kemur 1
ljós þegar borin eru saman árin
1975 og 1976, en það eru aðeins
tvær staöreyndir sem ég ætla að
gera að umræðuefni hér.
Viðskiptakjarabati.
Hin fyrri er batinn á viöskipta-
kjörum, þaö er að segja: útflutn-
ingsvörur okkar hækkuðu meira á
heimsmarkaönum en þær vörur,
sem við kaupum til landsins.
Nauðsynlegt er að við gerum
okkur grein fyrir þvl, aö þessi
hagstæða þróun skapaöist ekki
fyrir okkar eigin atbeina og þvi
rangt að þakka okkur sjálfum
þann bata, sem vissuiega hefur
orðið á efnahagslifinu undanfar-
ið.
Ennfremur þarf að hafa I huga
aö viðskiptakjörin I heild eru enn
ekki orðin jafn hagstæð og þau
voru á árinu 1974. Þess vegna er
óraunhæft að búast við sama
kaupmætti launa og var i nokkra
daga á árinu 1974, vegna við-
skiptakjarabatans eins.
Aukning iðnaðar tvisv-
ar sinnum meiri en
aukning þjóðartekna ár-
ið 1976.
Siöari staðreyndin er sú, að
framleiðsluverðmæti iðnaöar
jókst tvisvar sinnum meira en
velta þjóðfélagsins þ.e. þjóöar-
tekju'r á árinu 1976.
Raunar er þetta ekkert nýtt. Til
dæmis stendur i nýútkominni
skýrslu Þjóðhagsstofnunar:
„Aukning iðnaðarframleiöslu
hefur verið langt umfram aukn-
ingu þjóðarframleiöslu á h'mabil-
inu 1969 til 1976”.
Mismununin staðreynd
Þaö var mikill fengur aö þvi
fyrir iönaðinn þegar skýrsla
Þjóðhagsstofnunar um hag iönað-
ar kom út fyrir skömmu. Þar er
að finna á einum stað fjölmargar
staöreyndir um Isíenzkt efna-
hagslif. Þær upplýsingar sem þar
koma fram, staðfesta þann mikla
mun, sem er á starfsskilyrðum
iðnaðar samanborið við aðra höf-
uðatvinnuvegi þjóðarinnar.
1 skýrslunni kemur fram að:
— iðnaðurinn greiöir að meöal-
tali 30% (eða 1/3) hærri vexti
en hinir höfuöatvinnuvegirnir.
— hlutur iðnaðar I útlánum
bankakerfisins minnkaði úr
13% árið 1970 I 9,4% árið 1976.
— framlög til iðnaðar eru aðeins
0,6% af fjárframlögum 1977, en
hins vegar eru framlög til
sjávarútvegs 2,1% og til land-
búnaðar 5,1%.
Davlð Sch. Thorsteinsson.
— iðnaöurinn greiðir 3,5% launa-
skatt, en landbúnaöur og fisk-
veiðar greiöa engan launa-
skatt.
—heimilt er meö lögum að ieggja
3 sinnum hærra aöstöðugjald á
iönað en fiskveiöar. Reykjavik-
urborg notar heimild þessa á
þann hátt að aöstöðugjald á
iðnað er 5 sinnum hærra en á
fiskveiöar,
—vélar, húsnæöi og annar búnað-
ur iðnaðarins i dag er mun dýr-
ari en erlendra keppinauta,
vegna þeirra háu gjalda sem
lögð hafa verið á framleiðslu-
tæki iðnaðarins o.s.frv. o. s.
frv..
Þessi ósanngjarna mismunun
skekkir grundvöll gengisskrán-
ingarinnar og gerir það að verk-
um að ómögulegt er að skrá gengi
krónunnar rétt. Röng gengis-
skráning skerðir samkeppnis-
hæfni iðnaðarins, dregur úr út-
flutningi, eykur erlenda skulda-
söfnun og heldur niðri lifskjörum
á íslandi.
Þrátt fyrir þennan aðbúnað er
athyglisvert aö vöxtur iðnaðar-
framleiðslu hefur verið „langt
umfram aukningu þjóðarfram-
leiðslu undanfarin ár”, svo aftur
sé visaö til skýrslu Þjóðhags-
stofnunar.
Mér er spurn hver hefði vöxtur
hans orðið ef hann hefði t.d. feng-
iöaö njóta sömu starfsskilyröa og
útlendingar njóta á Islandi?
Hversu miklu betri væru lifskjör
hér á landi i dag, ef svo hefði ver-
iö?
Aðgerðir stjórnvalda
1 byrjun febrúar skipaði iönað-
arráöherra nefnd er:
,4iafi þaö hlutverk að bera
saman starfsaöstööu innlends
iðnaðar og iðnaðar i samkeppnis-
löndum okkar annars vegar og
annarra höfuöatvinnuvega hér-
lendis hins vegar og koma með
tillögur um löggjafar- og fram-
þessarar nefndar, sérstaklega
vegna þess að ég veit að meiri-
hluti er fyrir hendi innan rikis-
stjórnarinnar og á Alþingi tii aö
framkvæma tillögur hennar.
Þau atriði sem ég nefndi úr
skýrslu Þjóöhagsstofnunar svo og
ofangreind nefndarskipan sýna,
svo að ekki veröur lengur um
deilt, að enn er ekki búið aö koma
aöbúnaöarmálum iðnaðarins i
það horf sem hefði þurft að vera
þegar 1970, er aðlögun að frlverzl-
un hófst.
Eölilegterað islenzk stjórnvöld
þurfi lengri tima en 10 ár til að
„taka upp gjörbreytt búskapar-
lag á íslandi”, eins og einn al-
þingismaðurinn orðaði það á Al-
þingi árið 1970, og þvi er fram-
lenging svo nauðsynleg fyrir is-
lenzk stjórnvöld.
Hverjum hugsandi manni er
ljóst, aö auövitað getur aölögun
iönaöarins að friverzlun ekki haf-
izt i raun, fyrr en aðlögun stjórn-
valda er vel á veg komin.
Þegar ég tala um seinagang og
mismunun er ég ekki aö álasa
einstökum ráðamönnum þjóðar-
innar. Margir áhrifamenn, bæöi
stjórnmálamenn og embættis-
menn, skilja nauðsyn gjörbreytts
búskaparlags,en breytingarnar á
efnahagskerfinu eru svo marg-
þættar og róttækar, aö þótt fullur
skilningur hafi verið fyrir hendi
hjá þessum aðilum, hafa þessi
mál ekki komist lengra áfram en
raun ber vitni.
Nú þegar skýrsla Þjóöhags-
stofnunar liggur fyrirog staðfest-
Framhald á bls. 23