Tíminn - 25.03.1977, Blaðsíða 8
8
Föstudagur 25. marz 1977
Umsjónarmenn:Pétur Einarsson
f
Omar Kristjónsson
Tíminn 60 ára
Sextiu ára afmæli Timans fór
hljóðlega fram nú fyrir skömmu,
en ástæða er til þess að sýna
málgagni flokksins sérstaka at-
hygli á þessum timamótum.
Samkeppnin i blaðaheiminum á
íslandi hefur aukizt og kröfur
um gerð dagblaða breytzt. Póli-
tiskt málgagn á nú erfiðara uppdráttar heldur en
áður var meðal annars vegna þess að stjómmála-
legar vangaveltur og ritgerðir um þess háttar mál
efni eru ekki vínsælar lengur. Stuttar snarpar
fréttir ásamt gagnrýninni blaðamennsku og
glöggum frásagnarmáta er það sem nútimablaðið
á Islandi þarf að reisa veldi sitt á ef það á að stand-
ast samkeppnina.
Timinn hefur þvi miður ekki fylgt þróuninni og
þannig orðið undir að nokkm leyti i samkeppninni
við önnur blöð Timinn hefur hins vegar allar for-
sendur til þess að geta tileinkað sér nýjar starfsað-
ferðir jafnframt þvi að byggja á sinum uppmna-
lega grunni.
Timinn hefur haft það umfram önnur islenzk
dagblöð, að hann er fyrst og fremst al-islenzkur og
stendur vörð um islenzka menningu og þjóðarein-
kenni. Hann hefur notið þess að hafa átt og eiga
marga frábæra penna sem hafa veitt áhrifum sin-
um út i þjóðfélagið um siður Tímans.
Timinn á að reka djarfa en heiðarlega blaða
mennsku jafnframt þvi að leggja mikla áherzlu á
islenzkar fréttir og fréttaskýringar.
Það hefur mikið verið rætt um rannsóknar-
blaðamennsku og ýmsir óvandaðir menn velt sér
upp úr sorablaðamennsku undir þvi yfirskini að
þeir væru skinhelgir endurbótapostular, sem allt
væri leyfilegt. Þessa gryfju má Timinn ekki falla i,
enda minni hætta á þvi með pólitiskt blað sem
fyrst og fremst er málgagn stjórnmálastefhu
heldur en dagblaðs sem eingöngu er rekið á grund-
velli auðhyggju og verður umfram allt að seljast
án þess að hugsað sé sérstaklega um sannleiks-
gildi frétta og fullyrðinga sem þar eru birtar, en
dæmi um það eru vissulega Visir og Dagblaðið.
Ekki er samt ástæða til þess að flokka alla rann-
sóknarblaðamenn undir sama hatt sumír vanda
yfirleitt heimildir sinar, en öðrum er gjörsamlega
ósýnt um það. Heimildir hinna óvönduðu er slúður
á vinstofum og kaffihúsum.
Timinn á að leggja sérstaka rækt við fréttaöflun
frá nágrannalöndum okkar og hafa þá fastar frétt-
ir frá Grænlandi og Færeyjum. Það er ekki ein-
leikið að allir Islendingar vita firn um rallið á
eiginkonu Trudeaus Kanadaforseta með hljóm
sveitargaurunum i Rolling Stones en á sama tíma
fer þjóðlif i fyrrgreindum löndum að mestu fram-
hjá þeim.
Hér hefur aðeins verið stiklað á örfáum at
riðum i þvi skyni að vekja athygli manna á þvi að
Timinn hefur ekki tekið á sig þann nýja svip sem
nauðsynlegt er á þessum timum. Timinn ætti i dag
að vera sextugur unglingur.
Til þess að þessar breytingar megi verða þarf að
veita nýju blóði inn á skrifstofur Timans. Fram-
sóknarflokkurinn á þvi láni að fagna að eiga úrval
ungra manna sem hæfir eru til þess að takast á við
þennan vanda. Það er kominn timi til þess að þeim
séu falin þessi ábyrgðarhlutverk.
P.E.
Kynning á ungum framsóknarmönnum:
Það fá allir
sinn skammt
þingmenn eru stundum
kallaðir aumingjar og þaðan
af verri nöfnum
— segir Jón Kristjánsson í viðtali við SUF síðuna
Jón Kristjánsson er fæddur i
SkagafirBi og ólst þar upp,
lengstaf á óslandi þar sem for-
eldrar hans bjuggu. Hann hjálp-
aði til við búskapinn, eins og
gengur og gerist um börn i
sveit, en um fermingaraldur fór
hann aö vinna að heiman og fór
mjög troðnar slóöir i þvi efni.
Fyrst i sild á Siglufiröi siðan i
vegavinnu, en réðist svo til
Kaupfélags Skagfirðinga. Við
verzlunarstörf hefur Jón unnið
siðan hann Utskrifaðist úr Sam-
vinnuskólanum 1963, og hafði þá
verið fimm vetur i Borgarfirð-
inum, þrjá I Reykholti þar sem
hann lauk landsprófi og tvo i
Bifröst. Allt frá þvi aö Jón iauk
námi hefur hann verið búsettur
á Egilsstöðum, þar sem hann
starfar sem deildarstjóri hjá
Kaupfélagi Héraðsbúa.
Við náum tali af Jóni um dag-
inn, er hann var staddur i bæn-
um i erindagerðum fyrir kaup-
félagið, og lögðum fyrir hann
nokkrar spurningar.
Hvers vegna hefur þú afskipti
af stjórnmálum og af hverju
valdir þú Framsóknarfiokkinn?
— Ég byrjaði ekki að starfa i
pólitlskum félögum fyrr en ég
kom' austur i Egilsstaöi, en
þangað flutti ég árið 1963. Ég
hafði þá fyrir löngu myndað
mér skoðanir i stjórnmálum, og
það að Framsóknarflokkurinri
varö fyrir valinu var fyrst og
fremst fyrir stuðning hans við
samvinnuhreyfinguna, en sam-
vinnuhugsjónin átti þá djúpar
rætur meðal sveitafólks og á
enn, og á minu heimili var litiö
svo á, að takast ætti á við
vandamálin með úrræðum sam-
vinnumanna. Þaö var litiö svo
á, aö samvinnufélögin væru
eign fólksins og engum stóð á
sama um framgang þeirra.
Ég starfa að stjórnmálum,
fyrstog fremst vegna þess aö ég
hef áhuga á að fylgjast með
framvindu mála, og helzt eiga
einhvern örlitinn þátt i henni.
Ég vil notfæra mér þann rétt
sem fylgir þvi aö búa i lýðræðis-
þjóðfélagi, og ég vil gera svolit-
iö meira heldur en að setja
• krossinn á kjördegi. Ef maður
er svona sinnaður, er ekki um
annað aö gera en taka þátt i
stjórnmálastarfi, aðrar leiöir
eru ekki tiltækar fyrir almenn-
ing til þess að hafa áhrif og al-
menningur getur haft áhrif meö
þvi að kynna sér stjórnmál og
taka þátt i þeim af lifandi á-
huga. Ég er sannfærður um það.
Góðar samgöngur eru undir-
staða ailra mannlegra sam-
skipta. Hverjir eru mikilvæg-
ustu málaflokkarnir i þinu
heimahéraöi?
— Ég bý I kjördæmi sem er
gifurlega stórt, strjálbýlt og
skipt i mörg Jjyggðarlög. Það
mætti lengi telja upp mikilvæg
málefni þar sem uppbygging á
mörgum sviöum er eftir, en ég
tek þann kost aö nefna tvö und-
irstööumál, og álit aö það þurfi
ekki aö taka fram, að þaö þurfi
að efla atvinnuvegina. Ég vil
nefna samgöngumál og orku-
mál. Góðar samgöngur eruund-
irstaða allra mannlegra sam-
skipta, hvort heldur er á sviöi
félagsmála eða atvinnulifs, en
orkumálin eru algjör. forsenda
fyrir framþróun hvar sem er.
Orkusveltandi landshluti dregst
aftur úr öðrum, það er alveg
ljóst. í þvi sambandi veröur að
vinna endanlega bug á þeirri
vantrú sem rikir á möguleikum
á Austurlandi hjá forráöamönn-
um orkumála, svo að hinar vit-
Jón Kristjánsson.
lausu orkuspár siðustu áratuga
heyri sögunni til.
Austurland hefur mikla
möguleika, ónotað land og ónot-
aðar orkulindir að ógleymdri
veðursæld og náttúrufegurö.
Þessa möguleika verður að nýta
á skynsamlegan hátt.
Unglingasamtök i
stjórnmálum eiga erf-
itt uppdráttar.
Hvers vegna er þátttaka
ungra karla, og þó sértaklega
ungra kvenna, ekki meiri en
raun ber vitni i isienzkum
stjórnmáium.
— Ég vil ekki dæma um sllkt
hér á höfuðborgarsvæðinu. Ég
er ekki nógu kunnugur aöstæð-
um til þess. Þar sem ég þekki
til hagar viða svo til að félags
störf hlaðast á tiltölulega fáar
hendur og ungliðasamtök I
stjórnmálum eiga erfitt upp-
dráttar vegna þess að sérhæfing
er ekki svo mikil i félagslffinu,
að menn skipi sér i pólitisk ung-
liöasamtök til mikilla starfa.
Margir kjósa að vera i einhverj-
um alhliða félögum með félög-
um sinum sem eru andstæðing-
ar I stjórnmálum. Það eru ekki
svo mjög skarpar linur I pólitfk-
inni á hinum smærri stöðum.
Möguleikarnireru alls staðar
miklir núorðið og margir eru
þeir sem nenna ekkert að vera
að brasa I félagsmálum og taka
bara við þvi sem aö þeim er
rétt, horfa á sjónvarpið, fara i
bió, eöa fara á aðrar
skemmtanir meö aðfengnum
skemmtikröftum.
Hvernig má auka þessa þátt-
töku? Ég hygg að þar sé þyngst
á metunum aö vera ekki alltaf
aö skapa eitthvert kynslóðabil
að óþörfu, að ungir menn og
þeir eldri starfi meira saman 1
stjórnmálum, ungum mönnum
og konum séu gefin tækifæri til
þess að hafa áhrif á gang mála
og koma hugmyndum sinum
aö, lita á konur sem fullgildar i
samfélaginu, ekki einungis þær
sem láta á ser bera, heldur
einnig þær sem vinna störf sin i
kyrrþey. Lofið þiö einhvern-
timann ungum konum sem eru
„bara húsmæður” að kom sin-
um sjónarmiðum að á þessari
siðu án þess að hnýta endilega
þær við menn sina. Konur eru
sjálfstæðir einstaklingar, sem
hafa ýmislegt gott til málanna
að leggja, og eru harðar i horn
að taka ef þær beita sér.
Starfshættir Alþingis
þarfnast breytinga
Hver er ástæðan fyrir van-
trausti almennings á Alþingi og
stjórnmáiamönnum?
— Ástæðan er vafalaust sú að
starfshættir þingsins þarfnast
breytinga i samræmi við aukin
umsvif I þjóðfélaginu. Mál eru
sjálfsagt of lengi á ferðinni i
gegnum þingiö, og þaö er margt
sem biður og þarf meðferðar við
hvað lagasetningu snertir.
Þetta ástand hafa svo ýmsir ó-
prúttnir aðilar notaö sér til þess
að hefja fádæma rógsherferð
gegn þingmönnum og Alþingi,
og þeim hefur orðið mikið á-
gengt enda ráða þeir yfir þrem-
ur siödegisblöðum hér i Reykja-
vik. Þessar árásir á þingmenn
hvar I flokki sem þeir standa
eru ómaklegar og ómerkilegar.
Þingmenn, bæði þeir sem ég
þekki persónulega og þeir sem
éghefspurnir af, eru vinnusam-
irog samvizkusamirmenn, sem
sækja sitt umboð til kjósenda.
Hvaö kemur i staðinn ef virðing
fyrir Alþingi er brotin niöur? Ég
segi að þá sé búið aö brjóta nið-
ur lýðræðið og I staöinn kemur
einhvers konar einræðiskennd
valdstjórn sérfræðinga sem
hefur engin tengsl við fjöldann.
Þetta held ég að menn ættu að
hugleiða.
Látum málefnin ráða,
hvort sem við erum i
hægri eða vinstri stjórn
Hver er skoöun þín á núver-
andi stjórnarsamstarfi?
— Ég áleit núverandi stjórn-
arsamstarf nauðsynlegt eins og
I pottinn var búið þegar það
komst á. Það komst á vegna
sundrungar á vinstri kantinum,
eins og flestir muna, sem vilja
viðurkenna það.
Ég held að staða flokksins sé
og verði sterk, ef hann lætur
málefnin ráða og reynir að
fylgja fram sinni stefnu eins og
hægt er, hvort sem hann er i
stjórn með hægri eða vinstriöfl-
um. Samsteypustjórnir eru ó-
hjákvæmilegar á tslandi, og
menn verða aö axla þá ábyrgö
að stjórna, gera stjórnarsátt-
mála og fylgja honum. Þetta
held ég að hafi verið gert i meg-
inatriöum. Þess vegna er ég
ekkert óhress yfir stöðu flokks-
ins nú.
Þaö veröur að nefna i þessu
sambandi, að gerö hefur verið
hörð hrið aö flokknum frá i-
halds- og peningaöflum i
Reykjavik, sem náð hafa saman
við Alþýöuflokkinn svo ekki
gengur hnifurinn i milli. Þess-
um árásum veröur aö svara i
fullri alvöru, en varast þó aö
fara aö skattyrðast við þessa
menn með þeirra eigin orð-
bragöi eins og þvi miður hefur
viljað brenna við stundum. Ég
er hins vegar sannfæröur um
Framhald á bls. 23