Tíminn - 25.03.1977, Blaðsíða 9
Föstudagur 25. marz 1977
mmm
9
borgarmál borgarmál borgarmál borgarmál borgarmál borgarmál borgar
Deilt um það,
hvort Reykja-
víkurborg eigi
að taka við
rekstri
klakstöðvar
við Elliðaár
af S.V.F.R.:
Á fundi borgarstjórnar s.l.
fimmtudag var deilt um þaö,
hvort veiði- og fiskræktarráð
borgarinnar ætti að taka við
rekstri klak- og eldisstöövar
Rafmagnsveitu Reykjavikur
við Elliðaár úr höndum Stang-
veiðifélags Reykjavikur. Til-
iögu Sigurjóns Péturssonar þess
efnis var að umræðunum lokn-
um visað frá, með atkvæðum
borgarfuiltrúa Framsóknar-
flokksins og Sjálfstæðisflokks-
ins gegn atkvæöum borgarfull-
trúa Alþýðubandalags og Al-
þýðuflokks
Sigurjón Pétursson (Abl) tók
fyrstur til máls. Minnti hann á,
að veiði- og fiskræktarráði
borgarinnar hefði fyrst og
fremst veriö komiö á fót til að
glæða veiði I ám og vötnum I
Reykjavik og nágrenni og gefa
sem flestum borgarbúum kost á
þvi aö njóta þeirrar skemmtun-
ar að renna fyrir lax og silung.
Sigurjón varpaði þvi næst
fram þeirri spurningu, hvert
væri eiginlega starfssvið ráðs-
ins, eftir að S.V.F.R. heföi tekið
allar árnar á leigu og sér að
auki um rekstur klak- og eldis-
stöðvarinnar. Taldi hann að
standa mætti þannig að rekstri
klakstöðvarinnar að borgin
hagnaðist á þvi.
Lagði Sigurjón fram tillögu
þess efnis, að veiði- og fisk-
ræktarráð tæki nú þegar við
rekstri klakstöðvarinnar.
Ragnar Júifusson (S) kvað
það sem um væri að ræða, vera
þetta: Ætti að leyfa frjálsum
féiagasamtökum á borð viö
S.V.F.R. að reka klakstööina
eða skyldi hið opinbera yfirtaka
þennan rekstur?
Ragnar ræddi siðan um
rekstrargrundvöll klakstöðvar-
innar. Taldi hann að svo mikill
kostnaöur myndi hljótast af þvi,
aö borgin tæki við rekstrinum,
að um verulegan halla yrði að
ræöa. Þyngst á metunum i þvi
sambandi væru þau laun, er
greiöa þyrfti starfsmönnum við
stöðina, en til þessa hefðu félag-
ar I S.V.F. R. lagt fram vinnu i
þágu stöðvarinnar endurgjalds-
laust.
Ragnar kvaðst vilja leiðrétta
þann misskilning, er sér hefði
fundizt gæta i máli Sigurjóns
Péturssonar, að S.V.F.R. væri
lokað félag. Þvl væri einmitt
öfugt farið: í S.V.F.R. gætu
gengiö allir þeir Reykvíkingar
Valið stendur milli
frjálsrar félaga-
starfsemi eða
„þjóðnýtingar”
- sagði Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi
er þess óskuðu.
Björgvin Guðmundsson (Afl)
lýsti sig fylgjandi tillögu Sigur-
jóns Péturssonar. Taldi Björg-
vin að rekstur klakstöðvarinnar
þyrfti alls ekki að verða eins dýr
I höndum borgarinnar og af
væri látið, t.d. mætti gefa ung-
lingum úr Vinnuskóla borgar-
innar kost á þvi aö vinna við
stöðina en sá vinnukraftur væri
ódýr, eins og alkunna væri.Auk
þess væri hollt fyrir unglinga að
kynnast fiskirækt I ám og vötn-
um.
Kristján Benediktsson (F)
kvaðst ekki trúa þvi, aö mönn-
um væri alvara, er þeir ætluöust
til þess, aö óharðnaðir ungling-
ar gætu tekið að sér — upp á eig-
in spýtur — jafn vandasamt
verk og fiskirækt væri. Aftur á
móti væri sjálfsagt að leyfa
unglingum að kynnast þvi
hvernig aö fiskirækt væri staðið,
en slikt vandaverk yrði ávallt að
vera leystaf hendi undir eftirliti
kunnáttumanna.
Kristján sagði, að S.V.F.R.
sem væri áhugamannafélag
stangveiöimanna úr Reykjavik
hefði rekiö klak- og eldisstööina
við Elliðaár samfleytt i 10 ár,
með ágætum árangri. Þá heföi
félagið haft Elliðaárnar á leigu
um árabil og staðið sig með
sömu prýði.
Kristján taldi, að báðir aðilar
hefðu hagnazt á þvi fyrirkomu-
lagi, er rikti i rekstri klak-
stöövarinnar. Borgin fengi gjald
úr hendi S.V.F.R. og losnaði við
allan þann kostnað og allt
það úmstang er fylgdi rekstri
sem þessum S.V.F.R. nyti
einnig góös at pessu, m.a. hefði
félagiðgetað notað afraksturinn
af þeirri sjálfboöavinnu, er
félagar legðu fram við rekstur
stöövarinnar, til að styrkja fjár-
hag sinn.
Aö lokum sagði Kristján, að i
þessu máli sem öörum
hliöstæðum stæði styrrinn
annars vegar um það, hvort
treysta bæri einstaklingunum
og samtökum þeirrra til að
leysa af hendi tiltekin verkefni,
og hins vegar um það, hvort
„þjóðnýta” ætti — ef komast
mætti svo aö orði — hina frjálsu
félagastarfsemi I borginni.
Siðari leiðin myndi þrengja að
heilbrigöu athafnafrelsi borgar-
búa og hafa i för meö sér ómæld
útgjöld fyrir borgarsjóð. Þvi
kvaðst Kristján vera andvigur
henni.
Að ræðu Kristjáns lokinni
tóku eftirtaldir borgarfulltrúar
til máls: Sigurjón Pétursson
(tvisvar) Davið Oddsson (S),
Ragnar Júliusson (S) og
Magnús L. Sveinsson (S9).
Tillögu Sigurjóns var að því
búnu visaö frá með 11 at-
kvæðum gegn 4.
—ET
Rennt I EUiðaárnar
t>riggja mánaða starfsleyfi Hreins Halldórssonar
til umræðu í borgarstjórn:
Fæðingarorlof í tilefni af
fæðingu Evrópumeistara
— sagði Davíð Oddsson,
borgarfulltrúi
A fundi borgarstjórnar s.l.
fimmtudag bar m.a. á góma þá
ákvörðun borgarstjóra að veita
Hreini Halldórssyni, nýbökuð-
um Evrópumeistara I kúiu-
varpi, leyfi frá störfum sinum
hjá Strætisvögnum Reykjavikur
um þriggja mánaða skeið. Með-
al þeirra sem til máls tóku, var
Aifreð Þorsteinsson, borgarfull-
trúi og iýsti hann yfir eindregn-
um stuðningi sinum við þessa á-
kvörðun.
Albert Guðmundsson (S)
vakti athygli á þeirri ákvöröun
Hreinn Halldórsson
borgarráðs — eins og eitthvert
dagblaöanna hafði orðaö það —
aö veita Hreini Halldórssyni
leyfi frá störfum. Taldi Albert
rétt að kanna það, hvort slik
leyfisveiting bryti I bága við á-
hugamannareglur Iþróttasam-
bands Islands. Sagði hann að
Hreini væri litill greiði geröur
með þvi aö útiloka hann frá
keppni áhugamanna.
Birgir tsl. Gunnarsson borg-
arstjóri.leiðrétti þann misskiln-
ing, aö borgarráð hefði veitt
Hreini umrætt leyfi. Það hefði
hann sjálfur gert sem borg-
arstióri, eins og jafnan áður,
þegar fariö heföi verið fram á
slikt við sig og sér heföi þótt á-
stæða til.
Alfreð Þorsteinsson (F)
kvaðst fagna þessari ákvöröun
borgarstjóra. Taldi Alfreö aö
hún bryti ekki i bága við áhuga-
mannareglur l.S.l. og hlyti þvi
að vera um einhvern misskiln-
ing aö ræöa hjá Albert Guð-
mundssyni.
Davið Oddsson (S) sló botn-
inn i umræðurnar. Likti hann
þriggja mánaöa starfsleyfi
Hreins Halldórssonar við fæð-
ingarorlof, enda hefði okkur
fæðzt nýr Evrópumeistari.
— ET
Skýrslu um
atvinnuuppbyggingu
í borginni að vænta í maí
A fundi borgarstjórnar s.l.
fimmtudag svaraði borgar-
stjóri svohljóðandi fyrir- spurn
frá Björgvin Guðmundssyni,
borgarfulltrúa Alþýöuflokksins:
Hvað llður athugun borgaryf-
irvalda á atvinnuuppbyggingu i
Reykjavik i þvi skyni að skapa
ný atvinnutækifæri einkum á
sviði iðnaðar?
Er aö vænta heildarskýrslu
um málið fljótlega?
I svari borgarstjóra kom m.a.
fram, að skipuö heföi verið
nefnd til að kanna atvinnuupp-
byggingu i borginni. Nefndin
hefði starfað af fullum krafti I
vetur og athugað ýmsar leiöir til
þess að skapa ný atvinnutæki-
færi I Reykjavik. Lokaálit
nefndarinnar væri að vænta i
mai, þannig aö þá gæfist betra
tækifæri til að ræða þessi mál i
borgarstjórn.
borgarmál borgarmál borgarmál borgarmál borgarmál borgarmál borgar