Tíminn - 29.03.1977, Blaðsíða 12
12
Þriðjudagur 29. marz 1977.
Þriðjudagur 29. marz Í977.
bókmenntir
Vísað til vegar
AA-bókin.
Sagan af þvi hvernig þiisundir
karla og kvenna hafa læknast af
alkóhólisma.
Endurskoðuö útgáfa, 289 bls.
AA-Utgáfan 1976.
Bókin, sem hér um ræðir, og
kemur nú fyrir sjónir islenzkra
lesenda, sá fyrst dagsins ljós ár-
ið 1939. Þarerað finna gifurlega
miklar upplýsingar um
drykkjusýki og afleiðingar
hennar. Og þá ekki siður hitt,
hvernig fólk getur unnið bug á
drykkjuhneigö sinni.
Jóhannes Bergsveinsson
læknirskrifar formálafyrir þess
ari islenzku útgáfu AA-bókar-
innar, og svo stuttur sem for-
málinn er, þá er hann svo
merkilegur, að ástæða er til
þess að taka sér það bessaleyfi
að birta hér upphafsorð hans:
„Drykkjusýki er sjúkdómur.
Sjúkdómur, sem ekki verður
læknaður að fullu, aðeins gerður
óvirkur. Óvirkur þannig að lifa
má eðlilegu lifi meðan áfengis
er ekki neytt.”
Hér er komið að einu megin-
atriði málsins. Hér segir læknir-
inn stóra hluti i örfáum orðum.
Maður, sem er þegar i stað
kominn i annarlegt ástand, um
leið og hann hefur drukkið úr
fyrsta staupinu, stendur
frammi fyrir álika vandamáli
og maöur, sem er haldinn svo
alvarlegum meltingarsjúk-
dómi, að hann getur ekki bragð-
að ákveðnar tegundir matar, án
þess að verða fárveikur. Hvor-
ugur má „syndga upp á náð-
ina”, þeir vita, að það hefnir sin
grimmilega, og það fyrr en
seinna. Þó er alkóhólistinn auð-
vitað þeim mun verr á vegi
staddur en magasjúklingurinn,
að I hans tilviki er um að ræða
eiturlyf og eftir að hann er orð-
inn háður þvi, er sýnu erfiöara
að stingavið fótum og stöðva
drykkjuskapinn, heldur en þótt
menn verði að neita sér um
ákveðnar fæðutegundir. (Sem
sumum reynist þó vist nógu
erfitt!).
AA-bókin skiptist i marga
kafla, sumir þeirra eru sögur
einstaklinga, sem lent hafa i
ógöngum drykkjuskaparins, en
aörirfjalla um læknisfræðilegar
og sálfræöilegar hliöar þessa
sjúkdóms. Þá eru og leiðbein-
ingar til þeirra, sem eiga að
umgangast alkóhólista og má
þar nefna kafla eins og Til eig-
inkvenna og Til vinnuveitenda.
Báðir þessir kaflar — eins og
raunar bókin öll — eru ákaflega
merkilegir, og veröskulda aö
vera lesnir vandlega.
Athyglisvert er, að þeir
alkóhólistar, sem hafa lagt til
efni i þessa bók, tala alltaf um
ástand sitt sem sjúkdóm, — sem
vitanlega er alveg hárrettur
skilningur. Hér skulu tilfærð
nokkur slik uramæli á bls. 52:
„Það er þvi ekki að undra,
þótt drykkjuferill okkar hafi
einkennst af ótal árangurslaus-
um tilraunum til að sanna, að viö
gætum drukkiö eins og annað
fólk.”
Og:
„Okkur lærðist, aö við urðum
að viöurkenna innst meö sjálf-
um okkur aö við værum alkóhól-
istar. Þetta er fyrsta skrefið til
bata. Nauðsynlegt er að eyða
þeirri blekkingu, að viö séum
eins og annaö fólk, eöa getum
oröið það.”
Og enn íremur:
„Við vitum, að enginn raun-
verulegur alkóhólisti getur
nokkurn timanáö að hafa stjórn
á drykkju sinni.” (Leturbr i
bókinni).
Þarna er á opinskáan og
hreinskilinn hátt rætt um efni,
sem sumum hefur orðið
feimnismál, en vakið öðrum
undrun. Allir vita, að fjöldi
manna getur bragðað áfengi,
„þegar svo ber undir,” áratug-
um saman, eða hart nær alla
ævina, án þess að verða nokkru
sinni háðir vínnautn, en svoeru
aftur aðrir einstaklingar og
þeir ófáir, sem veröa drykkju-
sjúklingar á ótrúlega skömmum
tima. Og hér er það einmitt,
sem hættan leynist: Enginn
veit, þegar hann drekkur fyrsta
staupið á ævinni, hvort i honum
blunda eiginleikar ofdrykkju-
mannsins. —- Meöal annars þess
vegna, er sú fræðsla, sem AA-
bókin veitir, dýrmæt, og hún
ætti að verða islenzkum Iesend-
um kærkomin, hvort sem menn
telja sig eiga við drýkkjuvanda-
mál að striða eða ekki.
Hér er ekki um bókmennta-
verk að ræöa, og þess vegna
skal fátt eitt um að sagt, hvern-
ig bókin er skrifuð. Þýðanda er
ekki getið, s.ém varla er von, þvi
að trúlegast er, að Islenzkir AA-
menn hafi unnið það verk, en
þar rikir nafnleynd, eins og al-
kunnugt er. A nokkrum stööum
þóttist undirritaður sjá allglögg
þýðingarför, og ekki kæmi mér
á óvart, þótt fleiri en einn mað-
ur hefðu lagt hönd að þýðing-
unni. Málið er lipurt, en ekki
hnökralaust. Til dæmist skýtur
draugurinn „til að byrja með”
upp kollinum hér og þar (bls.
188 og 255), og á bls. 195 stendur
þetta: „Við fórum eftir hug-
mynd einhvers um tíma, úr-
skurðuðum það vitlausa aðferð
og skiptum yfir i eitthvað
annað”. Þetta er auövitaö ekki
Islenzka af vönduöustu gerö,
en hins ber lika gæta, aö bókin á
annað og brýnna erindi viö les-
endur sina en aö gæla við mál-
smekk þeirra.
Vera má, að einhverjir les-
endur þessara bókar segi sem
svo: Til hvers allt þetta um-
stang? Er ekki einfaldast að
snerta aldrei áfengi, þvi að þá
eru menn þó vissir um að verða
ekki drykkjusjúklingar? Jú, vist
væri það æskilegast, og sem
betur fer taka margir jiann kost,
en málið er ekki svo einfalt. Það
værilika sjálfsagt æskilegast að
láta sér aldrei verða kalt, og að
fá aldrei kvef. Samt er mönnum
alltaf annað slagið að verða
kalt, og flestir fá einhvern tima
kvef.
A meöan til er vin i veröldinn',
verða alltaf til drykkjusjúkling-
ar, og á meðan verður ærin þörf
fyrir starfsemi AA-manna,
hvort sem hún birtist i bókaút-
gáfu eða öörum athöfnum.
—VS
Stressless-stóllinn
Framleiðandi
grindar:
Stálhúsgögn
Skúlagötu 61
Bólstrun:
Bæjarbólstrun
Skeifuhúsinu
Akranes: .
isafjöröur:
Sauðárkrókur:
Akureyri:
Neskaupstaöur:
Seyðisf jöröur:
Reykjavik:
Sölustaðir:
Verzlunin Bjarg h.f.
Húsgagnaverzlun Isafjarðar
Verzlunin Hátún
Vörubær h.f.
Höskuldur Stefánsson
Hörðúr Hjartarson
Hibýlaprýði, Hallarmúla.
makindum
Slappid af i
Stressless stólnum
— 'átió þreytuna
úr sál og
líkama.
hvaóa
stöóu sem
er-Stressless
er alltaf jafn þægilegur. Það erengin tilviljun aó
Stressless er vinsælasti hvíldarstóllinn á Norður-
löndum.
Stresslesserstilhreinn stóll með ekta leóri eða
áklæöi að yðar vali. Með eða án skemils.
Þeir, sem ætla að ve Ija góða og vandaða vinar-
gjöf, ættu að staldra við hjá okkur
i Skeifunni og sannprófa gæði
Stressless hvíldarstólsins.
Hvíldarstóll jiáSkájmti er vcykj gjöfocj
SMWJUVEGl 6 SÍMI44544
KJÖKGAIIDI SÍMI /6*175
r---------------------1
Auglýsiö í Tímanum
Framtakssemi,
dugnaður
og hæfileiki
Þórarinn Haraldsson i Laufási
Enginn vafi er á þvi að margir
veittu athygli kvikmyndinni
„Ullarþvottur” i Sjónvarpinu
20. þ.m. þar sem sýnd var ullar-
verkun eins og hún gerðist i
Norður-Þingeyjarsýslu upp úr
siðustu aldamótum: rúningur,
þvottur og þurrkun. Sjónvarpið
annaöist töku myndarinnar, en
Þórarinn Haraldsson bóndi I
Laufási i Kelduhverfi samdi
handrit að henni, valdi aðstöðu,
útvegaði áhöld og leikendur sem
skiluðu hlutverkum sinum með
mikilli prýöi og raunhæfni. Eng-
inn þulur var, en leikendur ung-
ir og aldraðir gerðu grein fyrir
sér i samtölum á eðlilegan hátt i
samstarfi sinu.
Hér var um að ræða þátt úr
fyrirtæki sem Sjónvarpið hefur
færzt i fang — góðu heilli — i
samvinnu við hinn framtaks-
sama dugnaöar og hæfileika-
mann, Þórarin Haraldss.ogkvik-
mynda lifshætti og vinnubrögð
horfinnar tiðar sem hin snögga
og algera aldarfarsbreyting á
fyrri tugum 20. aldarinnar lagöi
niöur svo kröftuglega að telja
má að kynslóöaslit hafí
orðið aö mörgu leyti. Afi og
amma, hvað þá langafi og lang-
amma, lifðu eins og i öðrum
heimisem unga fólkið nú leggur
arla trúnað á að til hafi veriö
og hlustar á sagnir frá eins og
þjóðsögur. Og landið sjálft er
orðið eins og annað land. Þaö er
af þessu gamla fólki og landi
þess, sem bráönauðsynlegt er
að til séu raunsannar, talandi
sjónvarpsmyndir.
Þórarinn Haraldsson hefur
gert það að baráttumáli sinu að
koma upp sliku kvikmyndasafni
úr landshluta sinum, en þaö
safn getur sjálfsagt að miklu
leyti gagnt landshlutverki.
Hann hefur tilbúið handrit
vegna mannlifsins á Norðaust-
urlandi „árið um kring”. „UU-
arþvottur” er annar kaflinn
sem sýndur hefur verið. Hin var
„Baðstofusýning” og tókst lika
ágætlega.
Næsta vor hefur Þ H. undir-
búiö: „Voryrkjan” handa
Sjónvarpinu að láta kvikmynda.
Þá veröur sýnd hagnýting
húsdýraáburðar með hinum
frumstæöu aðferðum og áhöld-
um fyrri tfðar við ræktun. Slétt-
un þúfna með handverkfærum.
Torfrista og flagverk.
Farið verður á grasafjall og
legiö úti við tinslu grasanna,
þau siöan hreinsuð heima og
höfð til matvæla og lyfja.
Margt er rætt og sögur sagðar
unglingum til umhugsunar.
Sungið og farið ileiki eins og tiö-
kaðist fyrrum þar sem allir ald-
ursflokkar voru saman, — alltaf
verið að kenna hinum yngri
beint og óbeint — og unglingarn-
ir að spyrja sig áfram til „ver-
aldarvizku”.
Þórarinn Haraldsson er búinn
að verja mikilli vinnu I handrit
sitt. Þess háttar verk hleypur
ekki úr penna. Og undirbúning-
ur sýningarmanna er óhemju
mikill. Bót i máli aö Þ. H. verð-
ur vel til I héraðinu og hvar sem
hann kemur. Hann hefur kynnt
sér málefniö svo vel að hann
kann að tala um það. Og hann
leggur sjálfur hiklaust hönd á
plóginn. Hver hefur skap til að
iiðsinna ekki slikum áhuga-
manni?
Menn Norðausturlands hafa
aldrei viljað hafa asklok fyrir
himin sinn. Bújarðir hafa verið
þar af mörgum gerðum og sum-
ar farsælar, ekki sizt þar sem
landafurðir og sjávargagn fara
saman.
Vel má vera að enginn lands-
hluti sé betur til þess fallinn, að
leggja til efni I myndsögu liöna
timans sem ekki má gleymast,
vegna harðræöis norðursins I
náttúrufari, en glaörar vöku
mannfólksins þar þrátt fyrir
það. Þarna noröur við heim-
skautið orti Kristján Fjalla-
skáld sin langlifu ljóð. Þarna
ritaöi Jón Trausti óbrotgjörn
verk. Þarna stóö Páll Olafsson
öðrum fæti seinni hluta ævinn-
ar. Til Norðurþingeyjarsýslu
sótti Einar Benediktsson ýmis
af sfnum stóru yrkisefnum.
Vonandi sér Sjónvarpið sóma
sinn I þvi að spara ekki sina fyr-
irhöfn úr hófi né tilkostnað um
of við fyrirtæki þetta. Alþingi
ber að réttu lagi að vaka yfir þvi
með fjárveitingum aö tilgangi
kvikmyndagerðarinnar verði
náö, þvi hér er um þjóðmenn-
ingarstarf að ræða.
Það er þjóðhollusta að rétta
örvandi hönd i þessu máli.
Heimafyrir er mikil fjárþörf
vegna tilkostnaðar sem þar þarf
að standa straum af. Þórarinn I
Laufási striðir að sjálfsögðu i
þeim efnum i ströngu. Það fólk
sem kann að meta eindæma for-
ustu hans og áhrif hjá valda-
mönnum svo og höfundarhlut-
verk hans, ætti ekki að gleyma
þvi aö hann þarf á fé að halda I
héraði og verðskuldar liðsinni
almennings á þeim vettvangi.
.24..mars 1977
Karl Kristjansson
M/s Baldur
Maður óskast fer frá Reykjavik fimmtu- daginn 31. þ.m., til Breiða- fjarðarhafna.
FÍNPÚSSNING S.F. Vörumóttaka:
Dugguvogi 6 — Reykjavík miðvikudag og til hádegis á fimmtudag.
Vélbundið
hey til sölu
á Þórustöðum i
ölfusi. Verð 18 kr.
pr. kg. Upplýsingar i
sima 99-1174.
13
25 ár í fararbroddi.
Skipholti 19 vi8 Nóatún.
sími 23800
Klapparstig 26, simi 19800.
Höfuðrofi
Bassa stillir
Hátíðni stiliir
Jafnvægis Minni fyrir Loud
stillir styrkstillir ness
Sjálf F M
hitari stereo rofi
faststillanlegar
FM stöðvar
Bylgjustillir
Programm
Ljósmælir fyrir
FM
stereo Ijós
Programm val
Ljos
fyrir hátíðnitóna
Ljós fyrir
jafnvægisstillir
Ljós
fyrir bassa
stnlmgu á
— Plotuspilari
FM bylgju
segulband
(FM 1 — 5)
Ljósmælir
\ fyrir styrkstilli.
Styrkur
lækkar
Styrkur
hækkar
Aðalrofi
Beomaster 1 900 er nýr frábær magnari frá Bang &
Olufsen. Framleiðendur Hi Fi tækja eiga eftir að naga
sig í handabökin yfir því að það var Bang & Olufsen
frá Danmörku en ekki þeir sjálfir sem framleiddu
þennan magnara.
Allar stillingar electroniskar og þar af leiðandi óslit-
andi.
Beosystem 1900. 292.090 kr. (magnari spilari og 2
hátalarar).
Beomaster 1900. 132.860 kr.