Tíminn - 21.04.1977, Blaðsíða 5

Tíminn - 21.04.1977, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 21. april 1977 5 Komdu og skoðaðu í kistima mina Hjalti Pálsson og Ernest Zillig vi6 eitt sýningarbor&ið, þar sem vörur frá Lesney fyrirtækinu voru til sýnis. Þaö væriekki a malegt aö eiga svona hús, gætu þessar litlu telpur veriö aö hugsa. JB-Reykjavik — Hver kannast ekki viö gleðina sem skin úr augum barns, þegar aö þvi hef- ur verið gaukaö leikfangi, kannski alveg óvænt? Leikurinn er lif barnsins og leikföng eru stór þáttur i lifi þess. Barniö leikur sér af þvi þaö hefur þörf fyrir þaö bæöi til að þjálfa sig i hreyfingum sem og til að þrosk- ast tilfinningalega, andlega og félagslega. Þrátt fyrir þróun þjóðfélaga og meiri iön- og tæknivæðingu, eru leikþarfir barna jafnmiklar og áður. Sé hlaupið yfir þennan þátti uppeldi eða hanii vanrækt- ur getur það komið áþreifanlega fram á öörum þroskastigum barnsins og haft alvarlegar af- leiöingar. Það er þvi nauðsyn- legt að ekki sé kastað til hönd- unum við val leikfanga handa börnum og bjóða þeim ekki hvaö sem er. Þó er mikill fjöldi fólks sem lætur leiki og leikföng barna lönd og leið og gerir sér ekki grein fyrir þvi þýöingar- mikla hlutverki sem þessi atriði gegna i lifi þeirra. Þetta kom m.a. fram i erindi sem Guð- bergur S. Bergsson flutti á leik- fangasýningu sem haldin var i Sigtiini i gær. Þroskaleikföng þurfa mikla kynningu Um þetta leyti ár hvert, held- ur biisáhaldadeild Sambands is- lenzkra samvinnufélaga sýn- ingu á leikföngum sem deildin flytur inn, og stendur sýningin ávallt i sambandi við sölu og kynningu á leikföngum. Reimar Charlesson deildarstjóri búsá- haldadeildarinnar sagði við opnun sýningarinnar að i tilefni 75 ára afmælis SIS i ár, vildi deildin leggja sérstaka áherzlu á gildi leikfanga sem uppeldis- tækja og á áhrif þeirra á þroska barnsins. Sagði Reimar, aö jafnan hefði þess verið gætt á sýningum þeirra, að verulegt úrval þroskaleikfanga væri á boðstólum, en þó sagði hann að raunin væri sú að þessi leikföng væru minna keypt en önnur leikföng vegna þess að þau væru yfirleitt dýrari og þyrftiað jafn- aöi að hafa meira fyrir sölu á þeim. Sagöi hann að það þyrfti aö kynna þessa tegund leik- fanga betur hérlendis en gert hefði veriö. Á sýningunni i ár eru sýnd 1400 leikföng f rá 86 f yrirtækjum, ensérstaklega er lögö áherzla á aö kynna þrjú fyrirtæki sem hafa getið sér sérstakt orð fyrir þroskandi leikföng, og hafa þau öll hlotið viðurkenningu fyrir framleiðslu sina. Eitt þessara fyrirtækja er Lesney Products & Co. og var fulltrúi frá þessu fyrirtæki staddur á sýningunni. Fyrirtækið sem er eitt hiö stærsta sinnar tegundar á heim- inum, framleiðir m.a. Match- box bilana, sem vel eru þekktir hér á iandi. Auk þess framleiöir fyrirtækið einnig plastmódel, brúður og brúðuföt og ýmis þroskaleikföng fyrir börn undir skólaaldri. Förlaget Karnan AB i Helsingborg er annað fyrir- föngum, og i þvi sambandi er haft samráð við barnalækna sálfræðinga og aðra sérfræð- inga i uppeldismálum. 011 þessi fyrirtæki leggja á það rika á- herzlu, að leikföngin séu sem bezt fallin til að auka þroska barna á hverju aldursskeiði fyr- ir sig og séu sterk og endingar- góö. Auk þess fylgja yfirleitt upplýsingar á umbúðum um hvaða aldursflokki viðkomandi leikfang er einkum ætlað. Vandið val leikfanga 1 erindi Guðbergs Bergssonar kom fram aö á vegum Lands- sambands islenzkra barna- verndarfélaga hefði veriö gerð athugun á barnaleikföngum og heföu i þvi sambandi starfað þrir hópar. Kvað Guöbergur niöurstöður könnunarinnar hafa leitt i ljós, að mun meiri fáfræöi gætti um þessi mál en menn hefðu gert sér grein fyrir. „Mik- ið er keypt af handahófi”, sagði hann ,,og afgreiðslufólkið i leik- fangaverzlununum vissi oft ekki nógu mikið hvað hentugast væri aö kaupa fyrir hvern einstakan aldurshóp. En þegar leikföng eru valin, þarf að hafa ýmis atr- iði í huga. Leikfangiö þarf að hæfa þroska barnsins. Það verður aö bjóöa upp á ýmsa möguleika, örva imyndunarafl, vekja til umhugsunar, gefa möguleika til að tengja atriði viö lífið og tilveruna I réttu sam- hengi o.s.frv. Leikfangið þarf aö vera hættulaust, þola hörku- lega meðferð, og það þarf að vera auðvelt að þrifa þaö. Veljið gott leikfang á réttum tima og i réttu samhengi fyrir barniö”. Og hún hringir samt. Reimar Charlesson, deildarstjóri búsá- haldadeildar SIS, með klukku frá Lesley fyrirtækinu. Tók hann hana sem dæmi um það, hve sterk leikföngin væru og þeyttu henni i gólfið, án þess aö hún brotnaði. — Timamyndir Gunnar. tækið, en það hefur á undan- förnum árum lagt megináherzlu á framleiðslu á raðleikföngum úrtré (púsluspilum). Fyrirtæk- ið Semper A/B fæst bæði við framleiöslu á barnamat og leik- Saumakonur Okkur vantar nú þegar vanar saumakon- ur. Unnið i bónuskerfi. Sjóklæðagerðin h.f. Skúlagötu 51. Gleðilegt sumar! Hringið - og við ; sendum i blaðið um leið ■md íslenska járnblendifélagið hf. icelandic AUoys Ltd. Lágmúli 9, Reykjavik, Iceland. óskar að róða viðskiptafræðing eða mann með hliðstæða menntun, til starfa að Grundartanga við Hvalfjörð. Um er að ræða starf við bókhald, reikn- ingshald og kostnaðareftirlit. Umsóknir sendist skriflega til skrifstofu félagsins að Lágmúla 9, Reykjavik. AUGLÝSIO f TÍMANUM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.