Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.02.2006, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 19.02.2006, Qupperneq 4
4 19. febrúar 2006 SUNNUDAGUR SKOÐANAKÖNNUN Sjálfstæðisflokk- urinn bætir enn við sig fylgi, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og fengi 44,3 pró- sent atkvæða yrði boðað til kosn- inga í dag og 29 þingmenn. Fylgi Sjálfstæðisflokks eykst um 5,6 prósentustig frá síðustu könnun Fréttablaðsins sem framkvæmd var í nóvember og hefur ekki verið meira í könnunum blaðsins frá síðustu kosningum. Samfylking bætir einnig við sig frá síðustu könnun og fengi nú 34,4 prósent atkvæða og 22 þingmenn. Í síðustu könnun var flokkurinn með fylgi 29,4 pró- sent svarenda og eykst því fylg- ið um fimm prósentustig. Enn vantar tæpt prósentustig upp á til að fylgi flokksins nái fylginu í febrúar í fyrra, þegar það var 35,2 prósent. Þriðji stærsti flokkurinn er nú Vinstri hreyfingin – grænt framboð og mælist flokkurinn með tæplega 9,8 prósenta fylgi og fengi því sex þingmenn. Vinstri grænir tapa mestu fylgi frá síð- ustu könnun, eða rúmum átta prósentustigum. Fylgi flokksins hefur ekki verið minna í könnun- um blaðsins síðan í október 2003. 7,1 prósent segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn ef boðað yrði til kosninga nú og fengi flokkurinn samkvæmt því fjóra þingmenn. Fylgi flokksins hefur dalað um tæp þrjú pró- sentustig frá því í könnun blaðs- ins í nóvember og hefur ekki mælst minna frá síðustu kosn- ingum. Frjálslyndi flokkurinn mælist með 3,5 prósent fylgi, sem er nánast sama fylgi og í síðustu könnun og fengi flokkurinn tvo þingmenn kjörna. Mun fleiri konur segjast nú ætla að kjósa Sjálfstæðisflokk- inn en í síðustu könnun. Þá sögð- ust 31 prósent kvenna myndu kjósa flokkinn, en nú hefur hann stuðning 40,5 prósent kvenna. Þá eykst stuðningur á höfuðborgar- svæðinu við Sjálfstæðisflokkinn um 7,5 prósentustig á milli kann- ana, en nú segjast 47,5 prósent höfuðborgarbúa ætla að kjósa flokkinn. Stuðningur við Samfylking- una eykst mest meðal þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins á milli kannana, eða um tæp tíu prósentustig. Í síðustu könnun sögðust 25,3 prósent íbúa lands- byggðarinnar myndu kjósa Sam- fylkinguna, en flokkurinn hefur þar nú 35 prósenta fylgi. Vinstri grænir tapa fylgi bæði hjá körlum og konum, á höfuð- borgarsvæðinu og utan þess. Stuðningur kvenna minnkar um 12,36 prósentustig á milli kann- anna. 22,8 prósent kvenna sögð- ust í síðustu könnun myndu kjósa flokkinn, en einungis 10,5 pró- sent nú. Þá dregst fylgi flokksins á höfuðborgarsvæðinu saman um 10,8 prósentustig, var 19,5 prósent en er nú 8,7 prósent. Fylgi Framsóknarflokks minnkar mest á meðal íbúa utan höfuðborgarsvæðisins. Í síðustu könnun sögðust 16,3 prósent þeirra myndu kjósa flokkinn, en 10 prósent segjast nú myndu kjósa Framsóknarflokkinn ef boðað yrði til kosninga nú. Hringt var í 800 manns 18. febrúar, og skiptust svarendur jafnt milli kynja og hlutfallslega eftir kjördæmum. Spurt var: „Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til alþingiskosninga nú?“ 59,9 prósent aðspurðra tóku afstöðu til spurningarinnar. svanborg@frettabladid.is Chevrolet SALURINN Opnunarhátíð frá kl 12 - 16 Bílabúð Benna - Tangarhöfða 8-12 Sími 590 2000 - www.benni.is kosn. 2003 feb. 2004 jún. 2004 feb. 2005 feb. 2006 7,4% 8,8% 17,7% 30,9% 33,7% 41,3% 25,0% 28,6% 20,5% 6,0% 17,9% 9,4% 3,1% 44,3% 34,4% 9,8% 7,1% 3,5% Sjálfstæðisflokkur Samfylking Vinstri-grænir Framsóknarflokkur Frjálslyndi flokkurinn FYLGISÞRÓUN STJÓRNMÁLAFLOKKANNA FRÁ ALÞINGISKOSNINGUM 2003 Skoðanakannanir Fréttablaðsins GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 17.2.2006 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 63,45 63,75 Sterlingspund 110,20 110,74 Evra 75,33 75,75 Dönsk króna 10,089 10,149 Norsk króna 9,33 9,388 Sænsk króna 8,08 8,054 Japanskt jen 0,5356 0,5488 SDR 90,95 91,49 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 105,9202 Framsókn aldrei minni Fylgi Framsóknarflokks á landsvísu mælist nú um sjö prósent og hefur ekki verið minna í könnunum blaðsins frá síðustu kosningum. Rúm 44 prósent segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokk og hefur fylgið ekki verið meira frá síðustu kosningum. Samfylking réttir úr sér en fylgi vinstri grænna dalar. PRÓFKJÖR Sigbjörn Gunnarsson, frambjóðandi í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins á Akureyri, segir það ekki koma sér á óvart að nánustu stuðningsmenn Kristj- áns Þórs Júlíussonar bæjarstjóra hafi lagt línurnar fyrir almenna kjósendur í prófkjöri flokksins um síðustu helgi. „Ég fann fyrir því í aðdraganda prófkjörsins og tel mig hafa fengið það staðfest síðan,“ segir Sigbjörn. Samkvæmt gögnum sem Fréttablaðið birti í gær lögðu stuðningsmenn Kristjáns Þórs áherslu á að bæjarstjórinn og Sigrún Jakobsdóttir fengju góða kosningu. Jafnframt vildu þeir að krötunum, Sigbirni Gunnarssyni og Oktavíu Jóhannesdóttur, yrði hafnað og töldu ekki ástæðu til að veita ungliðum flokksins brautar- gengi. „Svona myndi ég ekki gera sjálfur og mér finnst þetta hvorki heiðarleg né heillavænleg vinnu- brögð,“ segir Sigbjörn. Kristján Þór vann yfirburð- arsigur í prófkjörinu og Sigrún fékk góða kosningu í annað sæti. Sigbjörn varð í níunda sæti og Oktavía í því fimmtánda. Stefán F. Stefánsson, formaður ungra sjálf- stæðismanna á Akureyri, hafnaði í 20. og síðasta sæti. - kk Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Akureyri: Kjósendum lagðar línurnar SIGBJÖRN GUNNARSSON Sigbjörn segist hafa fundið fyrir því í aðdraganda próf- kjörsins að stuðningsmenn Kristjáns Þórs Júlíussonar unnu gegn honum og segir vinnubrögð þeirra ekki heillavænleg. KÍNA, AP Vísindamenn í Kína og Kirgisistan hafa náð ljósmyndum af sjaldgæfum snæhlébörðum. Hlébarðar þessir eru í útrýming- arhættu og vonast nú vísindamenn- irnir til að meira sé til af þeim en talið var í fyrstu. Fimm snæhlébarðar náðust á filmu á fjalli í norðvesturhluta Kína og vísindamenn hinum megin við landamærin í Kirgisistan náðu þrettán myndum. Vita þeir ekki enn hvort það eru sömu dýrin sem mynduð voru. Snæhlébarðar eiga heimkynni sín m.a. í Kína, Mongólíu, Afganist- an, Indlandi og í Nepal. Talið er að um 3500 til 7000 dýr séu eftir af stofninum. ■ Sjaldgæf dýr í Kína: Snæhlébarði náðist á mynd SNÆHLÉBARÐI Talið er að allt að sjöþús- und snæhlébarðar séu til í heiminum. FRÉTTABLADID/AP UMFERÐARSLYS Kona á þrítugsaldri slapp ómeidd þegar hún missti stjórn á bíl sínum á leið frá Akur- eyri til Húsavíkur, með þeim afleiðingum að hann valt. Slysið varð skammt frá bænum Húsabakka í Aðaldal, rétt fyrir klukkan níu í gærmorgun. Mikil hálka var á þessum slóð- um í gær en svo virðist sem bíll- inn hafi snúist en mildi þykir að bíllinn lenti ekki í Aðaldalshrauni, sem er meðfram veginum. Konan var flutt á sjúkrahús- ið á Húsavík til aðhlynningar en að sögn lögreglunnar á Húsa- vík þykir mikil mildi að ekki fór verr. - mh Bíll valt í Aðaldal: Slapp ómeidd úr veltunni Á batavegi en í öndunarvél Sjómaðurinn sem slasaðist um borð í Frera RE um 160 sjómílur frá Reykjavík á miðvikudag í síðustu viku er enn í önd- unarvél. Læknir á vakt gjörgæsludeildar í Fossvogi segir hann þó á batavegi. Ekki fást nánari upplýsingar um líðan manns- ins en samkvæmt Landhelgisgæslunni brotnaði maðurinn illa þegar hann fékk gilskrók í andlitið. SLASAÐUR SJÓMAÐUR 22 ökumenn stöðvaðir Lögreglan á Selfossi stöðvaði í gær 22 ökumenn sem allir keyrðu of hratt á Suðurlands- vegi. Sá sem hraðast ók mældist á 146 kílómetra hraða. Lögreglan hefur stöðvað marga ökumenn á undanförn- um vikum. LÖGREGLUFRÉTT ÞORGERÐUR KATRÍN OG GEIR H. HAARDE Sjálfstæðismenn hafa góða ástæðu til að brosa breitt ef marka má niðurstöður könnunnar Fréttablaðsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.