Fréttablaðið - 19.02.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 19.02.2006, Blaðsíða 10
10 19. febrúar 2006 SUNNUDAGUR 1 dálkur x 100mm ferðalaga Allt til ferðalaga ólhýsi ���������������������������� Fellihýsi ����������� AF EVRÓPUVETTVANGI AUÐUNN ARNÓRSSON evrópa Ísland og Evrópusambandið Sumarið 2004 skipaði þá- verandi forsætisráðherra nefnd sem ætlað var það verkefni að gera heildstæða úttekt á stöðu og valkostum Íslands í Evrópumálum. Í þessari Evrópunefnd sitja fulltrúar allra stjórnmála- flokka sem fulltrúa eiga á Alþingi. Formaður nefnd- arinnar er Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. Björn svaraði nokkrum spurn- ingum Fréttablaðsins um starf nefndarinnar til að fylgja greina- flokknum úr hlaði. Hann segir nefndina hafa safnað miklum upplýsingum um Evróputengsl Íslands og að hún hyggist standa fyrir tveimur opnum ráðstefnum um Evrópumál í sumar. Að hans mati munu Íslendingar ekki sækja um aðild að Evrópusambandinu nema knýjandi hagsmunir kalli á að það skref verði stigið. Loka- skýrslu nefndarinnar er að vænta um næstu áramót. Björn var fyrst spurður hversu marga fundi nefndin hefði hald- ið frá því hún tók til starfa fyrir hálfu öðru ári og hvaða málefni hefðu verið tekin fyrir á þessum fundum. „Frá því að Evrópunefndin var skipuð hefur hún haldið alls 24 fundi og hitt fjölda manna bæði hér heima og erlendis,“ segir Björn. „Síðasta sumar fór nefnd- in í afar fróðlega ferð til Brussel og efndi þar til funda með ráða- mönnum Evrópusambandsins og EFTA.“ Heldur starfið áfram á þessu ári? „Já. Nú í mars fer nefndin til Haag til að kynna sér starfsemi EUROPOL, evrópsku lögreglunn- ar, og EUROJUST, samstarfsvett- vang evrópskra saksóknara, en Ísland á aðild að þessu samstarfi vegna Schengen-aðildar sinnar. Athygli nefndarmanna hefur ekki einvörðungu beinst að samstarfi Íslands við Evrópusambandið á vettvangi EES heldur einnig að Schengen-aðildinni. Auk þess hugar nefndin í ár að tveimur ráðstefnum – annars vegar um samstarfið á grundvelli EES og hins vegar með vísan til reynslunnar af Schengen-sam- starfinu. Fyrri ráðstefnan verður væntanlega undir lok júní og hin síðari 30. ágúst í samvinnu við Viðskiptaháskólann á Bifröst. Þá mun þunginn í starfi nefndarinn- ar að sjálfsögðu aukast eftir því sem nær líður að útgáfu skýrslu hennar.“ Skilar af sér um áramót „Nefndin hefur ekki í hyggju að gefa út neina áfangaskýrslu held- ur er markmið hennar að gefa út skýrslu sína um næstu áramót,“ segir Björn. Komið hefur fram að á fundum nefndarinnar hafi meðal annars verið rætt um framkvæmd EES- samningsins, sjávarútvegsstefnu ESB og kosti og galla evrunnar fyrir Ísland. Hvaða mál er eftir að ræða? „Eins og áður sagði höfum við beint sjónum okkar að Schengen- samstarfinu sérstaklega og þróun þess. Þá höfum við rætt umhverf- ismál, áhrif EES-aðildar á íslenska löggjöf, hvernig staðið er að þátttöku Íslands í undirbúningi að gerðum Evrópusambandsins, þjóðréttarlegt eðli samstarfsins á grundvelli EES-samningsins, stjórnarskrá Evrópusambandsins og áhrif hennar á EES-samstarf- ið, valdmörk milli ESB-ríkja og valdstofnana ESB. Við munum ræða byggðamál, rannsókna- og menntamál auk utanríkis- og öryggismála,“ segir Björn og bætir við: „Þegar rætt er um þessi mál má ekki gleyma því, að Íslending- ar hafa nú tíu ára reynslu af EES- aðildinni og segja má, að störf nefndarinnar taki mið af þeirri reynslu og þekkingu, sem aflað hefur verið. Nefndarmenn hafa nálgast verkefni sitt af alúð og viðleitni til að afla sem gleggstra upp- lýsinga í stað þess að ræða eigin skoðanir eða pólitískan ágreining, sem kann að vera innan nefndar- innar – á það hefur ekkert reynt, hve hann er mikill, þótt áherslur manna séu að sjálfsögðu mismun- andi og birtist til dæmis í því, hvernig spurningar þeir leggja fyrir gesti nefndarinnar.“ „Eftir að þeir málaflokkar sem nefndin vill skoða hafa verið brotnir til mergjar, og samin hafa verið drög að skýrslu nefndarinn- ar, kemur að því að nefndarmenn þurfa að taka afstöðu til álitaefna, um margt verða þeir sammála en annað ósammála og ættu nið- urstöður nefndarinnar að end- urspegla ólíkar áherslur,“ segir Björn. Ósammála forsætisráðherra Fyrir utan þessar spurningar sem lúta að starfi Evrópunefndarinn- ar sérstaklega var Björn spurður hvernig hann mæti útspil Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra í ræðu sinni á Viðskiptaþingi á dögunum, um að hann teldi víst að Ísland verði gengið í ESB árið 2015. „Ég tel, að Íslendingar sæki ekki um aðild að Evrópusamband- inu bara til að sækja um aðild heldur vegna einhverra hags- muna, sem knýja þá til þess. Ágreiningur um aðild er innan allra stjórnmálaflokka og það getur ekki verið markmið neinna að opna þann ágreining eða deil- ur milli flokka, nema unnt sé að benda á skýra hagsmuni og segja, að þeim verði ekki borgið án aðild- ar. Enginn stjórnmálaflokkanna hefur aðild á dagskrá sinni, en hins vegar hefur það gerst áður, þegar álíka langt er til þingkosn- inga og nú, að menn taka til við að tala eins og aðild að ESB verði hitamál í næstu þingkosningum, en svo lækkar risið á því tali, þegar nær dregur kosningunum. Ég held, að reyndin verði hin sama fyrir þingkosningarnar 2007, að enginn flokkur hafi ESB-aðild á stefnuskrá sinni, vegna þess að engir hagsmunir knýja flokka til slíkra ákvarðana. Á öllum sviðum efnahags- og atvinnumála erum við almennt séð betur sett en ESB-ríki. Kjósendur hafa ekki neinn sér- stakan áhuga á Evrópuumræðum. Næsta kjörtímabili lýkur 2011 – ef menn telja Ísland verða í ESB fyrir 2015, þyrfti að breyta stjórn- arskrá á því kjörtímabili til að búa í haginn fyrir aðild – er líklegt að það verði gert? Nú er stjórnar- skrárnefnd að störfum – er hún að ræða breytingu á stjórnarskránni til að búa í haginn fyrir aðild? Ég hef ekki heyrt um það,“ segir Björn. „Halldór Ásgrímsson gaf sér þá forsendu, að Bretar, Danir og Svíar hefðu tekið upp evruna og þess vegna myndum við sækja um aðild, því að við gætum ekki hald- ið fast í krónuna við þær aðstæður. Er eitthvað sem bendir til þess, að Bretar varpi pundinu fyrir róða fyrir 2015? Breskir stjórnmála- menn eru ekki á þeim buxunum – þeir sjá engan hag Breta af því,“ segir Björn. Óvæntan atburð þarf til „Saga síðustu ára kennir okkur, að hinir ólíklegustu atburðir geta gjörbreytt afstöðu þjóða,“ segir Björn. „Ég held, að það þurfi einhvern atburð, sem kæmi verulega á óvart, til að Íslendingar sæju hag sínum best borgið með aðild að ESB fyrir árið 2015. Fyrir utan að við vitum ekkert hvernig ESB verður árið 2015 og þess vegna ekki heldur, hvað felst í hugtak- inu aðild, sem tengd er ártalinu 2015.“ audunn@frettabladid.is BJÖRN BJARNASON Dómsmálaráðherra og formaður nefndar um Evrópumál sem forsætisráðherra skipaði fyrir hálfu öðru ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Knýjandi hagsmunir ráði förNEFND UM EVRÓPUMÁL■ skipuð af forsætisráðherra í júlí 2004 Davíð Oddsson þáverandi forsætis- ráðherra skipaði í júlí 2004 nefnd um Evrópumál sem ætlað var eftirfarandi starfssvið: „Nefndin skal greina umræðu og helstu staðreyndir um tengsl Íslands við Evrópusambandið og um hugs- anlega aðild Íslands að ESB. Áhersla er meðal annars lögð á að könnuð verði framkvæmd EES-samningsins, hvort og þá hvers konar undanþág- ur séu veittar í aðildarsamningum að Evrópusambandinu, hvað aðild myndi kosta ríkissjóð til lengri og til skemmri tíma litið og hverjir væru kostir og gallar evrunnar fyrir Ísland. Auk þess sem skilgreind verði staða Íslands miðað við hina nýsamþykktu stjórnarskrá ESB. Þá verði á vettvangi nefndarinnar rædd þau álitaefni önnur að því er tengsl Íslands og Evrópusambandsins varða og nefndin telur til þess fallin að skýra stöðu Íslands sérstaklega í þessu samhengi. Gert er ráð fyrir að nefndin ljúki störf- um fyrir lok kjörtímabilsins.“ Í NEFNDINNI SITJA EFTIRTALDIR, FULLTRÚAR ALLRA STJÓRNMÁLA- FLOKKA SEM SÆTI EIGA Á ALÞINGI: Samkvæmt tilnefningu Sjálfstæðis- flokks: Björn Bjarnason dóms- og kirkju- málaráðherra, formaður Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- ráðherra Samkvæmt tilnefningu Framsóknar- flokks: Jónína Bjartmarz alþingismaður Hjálmar Árnason alþingismaður Samkvæmt tilnefningu Samfylking- arinnar: Össur Skarphéðinsson, alþingis- maður Bryndís Hlöðversdóttir, prófessor Samkvæmt tilnefningu Vinstri hreyf- ingarinnar-græns framboðs: Ragnar Arnalds, fyrrverandi alþing- ismaður Katrín Jakobsdóttir alþingismaður Samkvæmt tilnefningu Frjálslynda flokksins: Brynjar Sindri Sigurðsson markaðs- fræðingur Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra spáði því á Viðskiptaþingi á dögunum að Ísland yrði gengið í ESB fyrir árið 2015. Með þessari yfirlýsingu sinni opnaði Halldór fyrir nýjar umræður um Evrópustefnu Íslands. Hann tók reyndar fram að hann teldi forsendur fyrir ákvörðun um málið ekki fyrir hendi nú, þar sem umræðan um málið sé ekki nógu þroskuð. Þetta er rétt hjá Halldóri. Sú umræða sem þó hefur farið fram um Evrópumál á Íslandi fram til þessa má segja að beri einkenni krampalömunar; hún tekur kast af og til en liggur í dvala þess á milli - og almenningur er litlu nær þótt köstunum fjölgi. Fréttablaðið hyggst nú leggja sitt af mörkum til að „þroska“ umræðuna um stöðu og valkosti Íslands í Evrópusamstarfi. Í greinaflokki sem nú hefur göngu sína verður gerð tilraun til að kortleggja stöðuna, útskýra hvar við Íslendingar erum staddir í Evrópusamstarfi og greina valkostina sem við stöndum frammi fyrir í þessum efnum. Markmiðið er að koma á framfæri með skilmerkilegum hætti upplýsingum um Evrópu- málin og mati hinna ýmsu aðila á því hvar við stöndum og hvert við stefnum eða eigum að stefna. Jafnframt verður leitazt við að útskýra þá þróun sem Evrópusambandið er að ganga í gegnum, enda er nauðsynlegt að fylgjast vel með breytingum þar á bæ til að hægt sé að meta hvort full ESB-aðild sé með tímanum að verða fýsilegri fyrir Íslendinga eða ekki. Viðbrögð við ummælum forsætisráðherra hafa opinberað ágreining milli forystu stjórnarflokkanna um mat á stöðunni og framhaldinu. Geir H. Haarde, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði fréttamönnum í Stokkhólmi nokkrum dögum eftir ræðu Halldórs á Viðskiptaþingi að hann væri ósammála Halldóri. Ísland myndi ekki ganga í ESB í fyrirsjáanlegri framtíð. Ríkisstjórnin væri ekki einu sinni að kanna möguleikann á aðild. Þetta mat forystu Sjálfstæðisflokksins kemur líka skýrt fram í ummælum Björns Bjarnasonar hér á síðunni, en hann er formaður þverpólitískrar Evrópunefndar sem forsætisráðherra skipaði fyrir hálfu öðru ári og er nú í miðju kafi að vinna að úttekt á Evrópumálunum. Athyglisvert verður að sjá hvort skýrsla Evrópunefndarinnar, sem á að liggja fyrir nokkrum mánuðum fyrir næstu alþingiskosningar, skapi alvöru umræðu um Evrópu- stefnuna í kosningabaráttunni. Að minnsta kosti er ástæða til að vona að hún verði til þess að færa umræðuna nær þeim þroska sem Halldór Ásgrímsson segir hana skorta. Að vera eða vera ekki - í ESB fyrir 2015 „Ég held, að það þurfi ein- hvern atburð, sem kæmi veru- lega á óvart, til að Íslendingar sæju hag sínum best borgið með aðild að ESB fyrir árið 2015.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.