Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.02.2006, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 19.02.2006, Qupperneq 12
 19. febrúar 2006 SUNNUDAGUR12 timamot@frettabladid.is Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur. Þóru Halldórsdóttur Eyrarholti 20, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á deild 21A, Landspítalans við Hringbraut, fyrir einstaklega góða umönnun. Gunnar Ragnar Sveinbjörnsson Ágústa Sigríður Gunnarsdóttir Halldór A. Þórarins- son Valdís Þóra Gunnarsdóttir Sara Lind Gunnarsdóttir Páll Þórir Jónsson Barnabörn og systkini. Afmæli Halldóra Sjöfn Róbertsdóttir 19.02.1966 Fyrirmyndarforeldri Hafnarfjarðar og hárgreiðslukonan er 40 ára í dag. Þeir sem vilja gleðja hana á afmælis- daginn er bent á ferðasjóð dr.Ruth KNUT HAMSUN (1859-1952) LÉST ÞENNAN DAG. „Í ellinni erum við líkt og bunki af bréfum sem einhver hefur sent. Við erum ekki lengur í fortíðinni heldur erum komin á áfangastað.“ Knut Hamsun var norskur rithöfundur sem hlaut nóbelsverðlaun árið 1920. MERKISATBURÐIR 1942 Japanskar herflugvélar ráðast á Darwin í Ástralíu. 1945 Bandarískt herlið kemur í land í Iwo Jima í Japan með 30 þúsund manna herlið. 1976 Íslendingar slíta stjórnmála- sambandi við Breta vegna flotaíhlutunar þeirra. 1985 Cherry kók, eða kók með kirsuberjabragði er kynnt í fyrsta sinn. 1992 Kvikmyndin Börn náttúr- unnar er tilnefnd til óskars- verðlauna. 2000 Knattspyrnuhöllin í Reykja- nesbæ er vígð. Á þessum degi árið 1997 andaðist æðsti leiðtogi Kínverja, Deng Xiaoping, 92 ára að aldri. Hann hefði þá verið heilsuveill í nokkur ár og hafði ekki sést opinber- lega síðustu þrjú ár. Talið var að leiðtoginn hafi verið haldinn parkinsonveiki og dáið úr lungna- kvilla. Þrátt fyrir að Xiaoping hafi opinberlega sest í helgan stein árið 1992 var ljóst að engin stór ákvörðun var tekin án hans samþykkis. Deng fæddist í ágúst 1904 í Kína en hélt sextán ára til náms í Frakklandi og kynntist þar marxisma. Hann sneri aftur heim árið 1927. Hann giftist þrisvar á sinni lífstíð og eignaðist fimm börn með síðustu eiginkonu sinni. Hann var þekktur fyrir að vera leiðtoginn sem braut aftur mót- mæli stúdenta á torgi hins himn- eska friðar árið 1989. Honum var hins vegar einnig eignaður heiðurinn af því að opna Kína fyrir alþjóðlegum viðskiptum. Hann einkavæddi landbúnað Kínverja og innleiddi kapítalíska framleiðs- hætti í iðnaði og þjónustu. Hann þótti harðlínumaður í stjórnmál- um og tók ekki mjúklega á þeim sem voru ósammála honum. Jarðarför Dengs var sú stærsta síðan Maó formaður sjálfur var lagður til hinstu hvílu. Að morgni 24. febrúar hafði öll þjóðin verið beðin um að hafa hljóð í þrjár mínútur. Þá voru fánar í hálfa stöng um landið allt í heila viku. ÞETTA GERÐIST > 19. FEBRÚAR 1997 Leiðtoginn Deng Xiaoping andast DEN XIAOPING Fjölmennur stofnfundur atvinnuþróunarfélags Voga og Vatnsleysustrandar var haldinn í Vogum á dögun- um. Þar lýstu fundarmenn áhyggjum sínum yfir þróun atvinnumála en töldu að möguleikar til atvinnusköp- unar væru miklir í sveitar- félaginu. Þá væri eðlilegt að hin mikla ónýtta jarðorka í landi Voga- og Vatnsleysu- strandar yrði nýtt atvinnu- lífi sveitarfélagsins til framdráttar. Á fundinum var kosin stjórn og Þórður Guðmunds- son var valinn formaður hins nýstofnaða félags. ■ Efla atvinnu- sköpun í Vogum NÝ STJÓRN Stofnfundur Atvinnuþróunarfélags Voga- og Vatnsleysustrandar var fjölmennur. Góa mætir með pilsaþyt á morgun þegar konudag- urinn gengur í garð. Birna Þórðardóttir, undir nafninu Menningarfylgd Birnu ehf, ætlar að bjóða konum jafnt sem körlum í gönguferð um slóðir kvenna í Reykjavík í tilefni dagsins. „Konur hafa alls staðar verið,“ segir Birna glaðlega um innihald göngunnar. Hún ætlar að tengja hana bæði við það sem minnir á konur og einnig ætlar hún að velta fyrir sér af hverju kvenna er ekki minnst á ákveðnum slóðum. Til þess notar hún til að mynda götuheiti enda eru þau oftar tileinkuð karl- anöfnum en konu. Ein af uppáhaldsgötum Birnu er Freyjugatan enda er gyðjan Freyja um margt merkileg og ein af sterku konunum úr goðafræðinni. Einnig er gaman að velta fyrir sér örlögum þeirra Hallveigar og Ingólfs sem að sögn bjuggu fyrst í Reykja- vík. „Ingólfur fær stræti á meðan Hallveig ræfillinn fær bara stíg,“ segir Birna glettin en hún hefur leitt slíka göngu einu sinni áður í tengslum við vetrarhátíð á síðasta ári og mæltist hún vel fyrir. Gangan hefst á Skóla- vörðuholti klukkan eitt og lýkur um klukkutíma síðar í Mæðragarðinum við Lækjargötu. Á það vel við enda stendur þar lista- verkið Móðurást eftir Nínu Sæmundsen. Það var fyrsta útilistaverkið í borginni sem ekki var minnismerki um karl, en verkið var sett upp árið 1930. ■ Þræðir slóðir kvenna í Reykjavík BIRNA ÞÓRÐARDÓTTIR Leiðir göngumenn um slóðir kvenna í miðbæ Reykjavíkur. AFMÆLI Hilmar Oddsson kvikmyndaleikstjóri er 49 ára. Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórn- málafræðiprófessor er 53 ára. Helgi Már Arthúrs- son, upplýsingafull- trúi heilbrigðisráðu- neytis, er 55 ára. Sigurður Ingi Ásgeirsson kvik- myndagerðarmaður er 56 ára. FÆDDUST ÞENNAN DAG 1865 Sven Hedin landkönnuður. 1859 Svante August Arrhenius, eðlisfræð- ingur og nóbels- verðalaunahafi. 1743 Luigi Boccherini tónskáld. 1473 Nikulás Kópern- ikus stjörnufræðingur. Í dag fagnar Hafnfirðingurinn og íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnús- son fertugsafmæli sínu. Hörður tekur þessum tímamótum með jafnaðargeði og hafði engin sérstök áform fyrir afmælisdaginn þegar blaðamaður sló á þráðinn. Hann reiknaði þó með að gera sér einhvern dagamun í tilefni dagsins. Þó sjálfur afmælisdagurinn hafi verið lauslega skipulagður var Hörður búinn að áforma að halda rækilega upp á afmælið með tæplega fimmtíu vinum og kunningjum á laugardagskvöldið með strákapartíi heima hjá sér. Framundan hjá Herði á fertugasta aldursárinu er að taka gott frí. Hann reiknar jafnvel með að fara í ferðalag þar sem hann á inni þrjá mánuði í upp- safnað frí. Ferðaáform eru öll á byrjun- arstigi og engar ákvarðanir hafa verið teknar um ákvörðunarstað enn sem komið er segir Hörður. Hörður er ekki eini fjölskyldumeð- limurinn sem fagnar stórafmæli um þessar mundir en faðir hans, Magnús Ólafsson, varð einmitt sextugur á föstu- daginn. Aðspurður hvort að feðgarnir myndu gera eitthvað sérstakt saman vegna stórafmæla beggja segir Hörður ekkert slíkt á dagskránni. Magnús vildi sjálfur enga stórveislu og ákvað að láta sig hverfa upp í sveit í sumarbústað með konunni yfir helgina. Hörður gerði ráð fyrir að fara upp í bústað á föstudagskvöldið til að sam- gleðjast föður sínum. HÖRÐUR MAGNÚSSON Ætlar að taka því rólega á afmælisdaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ HÖRÐUR MAGNÚSSON ÍÞRÓTTAFRÉTTAMAÐUR: FERTUGUR Í DAG Hélt partí fyrir strákana
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.