Fréttablaðið - 19.02.2006, Síða 61
SUNNUDAGUR 19. febrúar 2006
Navision Small Business er öflugur viðskiptahugbúnaður
sem heldur utan um allar viðskipta- og fjárhagsupplýs-
ingar fyrirtækisins og gefur þér skjótan aðgang að öllu
sem þú þarft að vita til þess að hámarka framlegð og ná
fram hagræðingu í rekstri.
• Fjárhagsgrunnur
• Fjárhagsbókhald
• Viðskiptamenn
• Sölureikningar
• Lánardrottnar
• Birgðir
Maritech er eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins með skrifstofur í Kópavogi
og á Akureyri. Hjá okkur starfar stór hópur vel menntaðra sérfræðinga sem notar
upplýsingatæknina til þess að hjálpa þér að ná betri árangri. Maritech hefur þróað
fjölda viðbóta við Navision viðskiptahugbúnaðinn sem eru lagaðar að þörfum
íslenskra fyrirtækja.
Einfalt og þægilegt viðmót
Einföld uppsetning
Íslenskar handbækur
Staðlaðir bókhaldslyklar
Miklir stækkunarmöguleikar
Tenging við aðrar lausnir
Fjöldi viðbótarlausna
Microsoft samhæft
Aðgangur að þjónustuborði
Fjöldi námskeiða í boði
Hringdu núna í síma 545-3200
Fjárfesting til framtíðar
Þú þarft að
þekkja eigin rekstur
til að geta keppt við aðra
Verð frá kr. 130.900*
Öll verð eru án vsk. *Verð miðast við einn notanda
Myndasöguhöfundurinn Frank Miller hefur í gegn-um tíðina gert kraftaverk
fyrir sígildar ofurhetjur á borð
við Daredevil og Batman. Rifið
kappana upp úr doða og stöðn-
un og þróað persónur þeirra í
nýjar og spennandi áttir. Hann er
nú byrjaður að leggja drögin að
óvenju djarfri Batman-sögu þar
sem hann sigar Leðurblökumann-
inum á sjálfan Osama Bin Laden.
Sagan heitir Holy Terror Batman
og vísar í gamalkunna upphrópun
Robins í gömlu Batman sjónvarps-
þáttunum með Adam West og Burt
Ward.
Grímulaus áróður
Batman hefur glímt við geðveika
skúrka og glæpamenn á borð við
Jókerinn, Kattarkonuna og Mör-
gæsina í hátt í sex áratugi en hefur
látið raunverulega skúrka af holdi
og blóði eiga sig. Holy Terror Bat-
man fjallar um árás hryðjuverka-
manna á Gothamborg og eins og
gefur að skilja bregst Leðurblöku-
maðurinn hinn versti við þegar
heimaborg hans er ógnað.
Miller fer ekki leynt með það að
saga hans um baráttu Batmans og
Osama Bin Laden sé áróður og segir
að Batman muni sparka hressilega
í „helling af al-Kaída rössum.“ „Ég
vildi óska þess að skemmtikraftar
samtímans væru jafn hugrakkir og
einbeittir og þeir sem tókust á við
Hitler á sínum tíma,“ sagði Miller
á myndasöguráðstefnu á dögun-
um. „Mér finnst það hreinlega út
í hött að Batman sé að eltast við
Gátumanninn þegar al Kaída er á
kreiki.“
Miller finnst bæði sjálfsagt og
eðlilegt að myndasögur takist á við
samtíma sinn og líkir í þessu sam-
bandi nýju sögunni sinni við kvik-
myndina Dirty Harry frá árinu
1971 en þar spratt hetjan og rudda-
löggan Harry Calahan fram á sjón-
arsviðið og tók glæpamenn fanta-
tökum en Miller segir persónuna
hafa verið viðbragð við aukningu
glæpa og ofbeldis í úthverfum
bandarískra stórborga.
Djarfur leikur
Það efast fáir um að Miller sé síður
en svo að ráðast á garðinn þar sem
hann er lægstur enda hefur það
ekki gefist vel á undanförnum
áratugum að blanda ofurhetjum
of náið saman við atburði líðandi
stundar. Myndasöguspekingar eru
þó flestir sammála um að ef ein-
hverjum gæti tekist að láta þetta
dæmi ganga upp þá sé það Miller.
Miller er þó síður en svo að
finna upp hjólið þar sem mynda-
söguhetjur og teiknimyndaper-
sónur blönduðu sér til dæmis í
seinni heimstyrjöldina með ágætis
árangri. Þannig gerði til dæmis
Daffy Duck Adolf Hitler lífið leitt
í teiknimyndum frá stríðsárunum
og Captain America kýldi Hitler
kaldan á forsíðu myndasögublaðs
sem kom út nokkrum mánuðum
fyrir árás Japana á Pearl Harbor.
Þá skrapp eineygði harðjaxlinn
Nick Fury til Víetnam með sína
brjáluðu herdeild á meðan það
stríð stóð sem hæst.
Það á eftir að koma í ljós hvort
þetta afturhvarf Millers til fortíð-
ar eigi erindi við nútímalesendur
sem virðast eins og fyrr segir ekk-
ert sérstaklega spenntir fyrir því
að láta myndasögur draga sig inn
í milliríkjadeilur og raunveruleg
stríðsátök. Köngulóarmaðurinn
brást til dæmis snarlega í sögu
sem kom út eftir árásina á Tvíbura-
turnana árið 2001. Þar var hann
einn þeirra fyrstu á vettvang til
þess að hjálpa til við að hreinsa
til í brakinu en sagan þótti fara
offari í væmni og tilfinningasemi
og höfðaði engan veginn til dyggra
aðdáenda Köngulóarmannsins.
„Reynslan hefur sýnt að þegar
ofurhetjumyndasögur fara of
nálægt því sem er að gerast í raun-
veruleikanum þá mistekst þeim,“
segir Joe Field, eigandi Flying
Colors Comics. „Almennt virðast
lesendur forðast myndasögur sem
eru of raunveruleikatengdar.“ „Það
skiptir samt engu máli hvað Miller
gerir. Það verður alltaf áhugavert
og jafnvel þó að þetta verði klúður
mun fólk kynna sér söguna.“
Verður alltaf umdeildur
Frank Miller er þekktur fyrir að
fara sér hægt og því er ómögulegt
að segja til um hvenær Holy Terror
Batman kemur fyrir augu lesenda
en það má hins vegar bóka að hún
verður umdeild þegar það gerist.
Þá er það einnig ljóst að Miller
teflir ekki aðeins djarft gagnvart
lesendum heldur einnig múslimum
sem hafa sýnt svo ekki verður um
villst undanfarið að þeir kunna því
mátulega vel að verða skotspónn
myndasöguhöfunda.
Þá er það síður en svo víst að
Miller og Batman verði eitthvað
ágengt í atlögu sinni að al-Kaída en
þeir sem þekkja til verka Millers
efast þó varla um að bókin verði
áhugaverð, spennandi og síðast en
ekki síst ofbeldisfull.
„Þessi saga mun ekki binda
enda á hryðjuverk,“ segir skop-
myndateiknarinn Larry Gonick
sem hefur gert fjöldann allan af
sögulegum myndasögum. „Þá má
ætla að tilhneiging Millers til þess
að sýna sadisma sem sjálfsagðan
hlut muni styrkja lesendur í þeirri
trú að pyntingar séu réttlætanleg-
ar. Sjónvarpsþátturinn 24 og Sin
City sögur Millers hafa til dæmis
haft þessi áhrif.“
Frank Miller er gríðarlega
áhrifamikill í myndasöguheim-
inum og það má segja að hann
standi nú á hátindi ferils síns eftir
að Sin City bíómyndin sem bygg-
ir á samnefndum bókum hans sló
í gegn. Miller er líka síður en svo
ókunnugur Leðurblökumanninum
og lífgaði heldur betur upp á Bat-
man upp úr 1980 með sögu sinni
The Dark Knight Returns. Þar var
Batman kominn á eftirlaunaár og
hættur öllum sínum krossferðum
en tók sig svo til, fór aftur í bún-
inginn og byrjaði að berja á glæpa-
hyski Gotham-borgar. Bókinni
fylgdi hann eftir með The Dark
Knight Strikes Again og þá er bók
hans Batman: Year One ekki síður
lykilrit í Batmanfræðunum. Þar
kemur hann með sína sýn á sköp-
unarsögu Leðurblökumannsins
og þessi saga er í raun hryggjar-
stykkið í nýjustu Batman mynd-
inni Batman Begins. Miller er svo
að gefa út söguna Batman&Robin
í myndasögublöðum um þessar
mundir en þar reynir hann að rétta
hlut aðstoðarmannsins Robin sem
hefur ekki beinlínis átt upp á pall-
borðið hjá aðdáendum Batmans á
síðari árum. Það er því óhætt að
segja að Miller þekki Batman frá
öllum hliðum og því full ástæða til
að láta sig hlakka til Holy Terror
Batman þó biðin eftir henni gæti
orðið löng. thorarinn@frettabladid.is
Batman hjólar í
Bin Laden