Fréttablaðið - 19.02.2006, Qupperneq 64
19. febrúar 2006 SUNNUDAGUR24
baekur@frettabladid.is
Þýskir gagnrýnendur keppast nú við að
lofa fyrra bindi skáldævisögu Guðbergs
Bergssonar, Faðir og móðir og dulmagn
bernskunnar, en bókin kom út í Þýska-
landi fyrir skömmu. Bókin hefur hlotið
afar góðar móttökur og fengið lofsam-
lega dóma í fjölmiðlum í Þýskalandi og
Sviss. Á útvarpsstöðinni Deutchlands-
radio sagði Katharina Döbler gagnrýn-
andi að Guðbergur miðlaði frekar hug-
hrifum en frásögnum í bernskulýsingum
sínum og umfjöllun um foreldra sína og
aðrar persónur úr bernsku sinni. „Allt
þetta fólk lifnar skamma stund í stuttum
lýsingum, í tali sínu og tilburðum – en
það fær aldrei hið endanlega yfirbragð
skáldaðra sögupersóna.“ Döbler dregur
einnig fram hugtakið „töfrar bernskunn-
ar“ og segir þann slitna merkimiða ekki
eiga við bók Guðbergs þó hann lýsi
vissulega dulmagninu sem börn skynja
„í sínum eigin heimi og telja skýringu á
öllu því óskiljanlega sem hinir fullorðnu
gera og staðhæfa“. Hún segir ríkjandi
grunntóninn hins vegar raunsæislegan
eins og „gamlar svarthvítar ljósmyndir,
blandaðan blíðlegri íhygli og stöðugum
hugleiðingum um það hver
þau voru eiginlega í raun og
veru – faðir og móðir, afi og
amma.“
Wolfang Müller segir í
Die Tagezeitung að tónar
Guðbergs séu „tærir,
gegnsæir, og töfrandi feg-
urð þeirra suðar í höfði
manns.“ Í einu stærsta
dagblaði Sviss, Neue
Zürcher Zeitung
skrifar Andreas
Breitenstein að
bókin sé full
af „kröft-
u g u m
myndum og sterkum sögum sem fjalla
um arfteknar andstæður tilverunnar: um
tímann og eilífðina, líf og dauða, menn-
ingu og náttúru, konuna og karlmann-
inn, fegurð og ljótleika, von og örvænt-
ingu.“ Breitenstein heldur svo áfram
og segir ljóðrænan texta mynda
Guðbergs „meitlast í huga les-
andans. Hvort heldur um er að
ræða víðáttur sálarinnar eða
náttúruna – athuganir GB ein-
kennast af hárfínni nákvæmni
og óendanlegri dýpt. Tungu-
tak hans er tilgerðarlaust og
vekur engu að síður ljómann í
leyndardómi hlutanna.“
Þjóðverar lofa Guðberg > Bók vikunnar
Hæðir Machu Picchu eftir Pablo
Neruda.
Þessi fallega ljóðabók
kom út fyrir jólin og
fór ekki mjög hátt í
bægslagangi jólabóka-
flóðsins. Hæðir Machu
Picchu er hluti af
stærri ljóðbálki
sem nefnist
Canto general
og eru ljóðin um ferð
skáldsins til Inkaborgarinnar Machu
Picchu. Neruda fæddist laust eftir
aldamótin 1900 og lést árið 1973,
tveimur árum eftir að nóbelsverðlaunin
fyrir bókmenntir féllu honum í skaut.
Guðrún Tulinius þýddi bókina sem er
myndskreytt af Rebekku Rán Samper
og Antonio Hervas Amezcua sem sækja
innblástur í Inkaborgina.
Margir rithöfundar sem skrifað hafa um starf sitt hafa lýst angistinni sem
fylgir því að stara á auða blaðsíðu. Eflaust er orðið nærtækara að tala um
auðan skjá, en vandinn er samur og myndin er áhrifameiri með auðri blað-
síðu sem rennt er í gegnum ritvél og blasir síðan við, tandurhrein, skjanna-
hvít – og gersamlega tóm. Tóm eins og hugur höfundarins sem verður
örvæntingarfyllri með hverri mínútu sem líður.
Var ekki hryllingsmyndin Shining um þetta, þegar allt kom til alls? Rit-
höfundurinn sem Jack Nicholson lék starði á auða blaðsíðuna þar til hann
skrifaði aftur og aftur upp sömu setninguna (All work and no play makes
Jack a dull boy): „Alltaf þegar ég er hér og þú heyrir mig vélrita,“ æpti hann
á konu sína, „eða þú heyrir mig ekki vélrita, þá er ég að vinna, skilurðu!“
Að stara á blaðsíðuna og bíða eftir hugljómun, hugmynd, eða bara hug-
dettu – það er hálfur vinnutími þeirra sem skrifa „upp úr sér“, semja skáld-
verk. Hvað má verða til bjargar? „Tvennt þarf til að geta skrifað,“ mun þýska
skáldið Goethe hafa sagt: „Hæfileika og atburð.“ Og þá er ekki endilega átt
við atburðinn sjálfan, því skáldskapurinn gerist í orðunum, heldur umhugs-
unina um atburðinn, myndina sem hann kveikir. Það er ekki frásagnarvert
að rithöfundur fari í leikhús, en segjum nú að hann hafi ekki farið á sýning-
una, heldur standi í anddyrinu á eftir og heyri tal tveggja manna sem eru á
leið út, og hann heyrir þá tala um sýninguna, jafnvel kýta um túlkun atburða,
og þá er hann að nálgast söguefni: „Hverjir eru þessir menn? Af hverju er
skynjun þeirra svona ólík? Hvers vegna fóru þeir saman í leikhús?“
Að skálda snýst ekki um skilning, heldur sýn. Skáldskapur fjallar kannski
ekki alltaf um gátu lífsins, en iðulega um gáturnar í lífinu. Það getur verið
uppspretta skáldskapar að skilja eitthvað ekki, eða misskilja. „Meinvill í
myrkrunum lá“ segir í jólasálminum. „Hver er þessi Meinvill?“ spurði Einar
Kárason í kvæði. Og við getum haldið áfram og spurt hvað hann hafi gert
af sér til að liggja svona í myrkrinu, hvaða voveiflegu atburðir urðu þess
valdandi? Hvað gerir skiltamaður? Það var helsta áhyggjuefni mitt þegar ég
hafði séð Kardimommubæinn sem barn (út af orðum Bastíans: „er skylt að
maður sé“). Er kannski hægt að segja sögu um skiltamann? „Hann kemur
eldsnemma í vinnuna og það er búið að breyta skiltinu hans...“
Gáturnar búa í orðunum, og þær geta líka búið í nöfnum. Minningar-
mörk í Hólavallagarði, hét bók eftir Björn Th. Björnsson, og kveikir ólíkt fleiri
hugleiðingar en ef hún hefði bara borið nafnið Legsteinar í kirkjugarðin-
um við Suðurgötu. Eins er það með nöfn á persónum: David Copperfield,
indjáninn Winnetou, prófessor Moriarty, Nebúkadnesar Nebúkadnesarson:
Hvað kom fyrir þetta fólk? Hvað býr í einu nafni?
Rithöfundurinn Sten Nadolny lýsti einu sinni í ritgerð angist skáldsins
andspænis auðri blaðsíðunni. Sem hann starir og starir á, uns hann veit-
ir því athygli að pappírinn er ekki alveg hvítur, hann er dálítið gulnaður,
einkennilegur. Hann snýr blaðinu við og viti menn, aftan á eru einhverjar
dularfullar setningar með rithönd frá átjándu öld. Svona gáta kveikir minnst
300 blaðsíðna sögu, en þá verður líka orðið Saragossa að koma fyrir ein-
hvers staðar í titlinum.
Angist hinnar
auðu síðu
Borgarbókasafn býður til rútu-
ferðar um bókaslóðir á höfuð-
borgarsvæðinu á opnunarkvöldi
Vetrarhátíðar, fimmtudaginn
23. febrúar. Lagt verður af stað
frá aðalsafninu í Tryggvagötu
15 20.15 og tekur ferðin um eina
og hálfa til tvær klukkustundir.
Ferðinni lýkur á sama stað og hún
byrjar, við Grófarhús.
„Við byrjum niðri í miðbæ og
keyrum alla leið upp í Grafarholt í
gegnum Vogana að Kleppi þar sem
Englar alheimsins áttu sér meðal
annars stað. Það verður svo ekið
upp í Breiðholt, þaðan í Árbæinn
og svo í Grafarholtið,“ segir Ingi-
björg Rögnvaldsdóttir, verkefnis-
stjóri hjá Borgarbókasafninu. Á
bakaleiðinni verður ekið vestur í
bæ á slóðir Djöflaeyjunnar og svo
endum við aftur á safninu.
Leiðsögumenn verða þær
Úlfhildur Dagsdóttir bók-
menntafræðingur og Margrét
Árnadóttir leikari og einnig munu
rithöfundar og fleiri gestir stíga
um borð, þar á meðal Andri Snær
Magnason, Óskar Árni Óskarsson
og Steinunn Sigurðardóttir.
„Við munum taka höfundana
upp í á þeirra slóðum, ef svo má
segja, en Andri Snær verður þó
líklega með okkur frá upphafi.
Hann mun lesa fyrir farþega rút-
unnar og Óskar mun lesa úr ljóð-
um sínum sem tengjast Breiðholt-
inu og Blesugrófinni.“
Borgarbókasafnið hefur áður
staðið fyrir bókmenntagöngum en
þetta er fyrsti bíltúrinn sem safn-
ið leggur upp í. „Það eru takmörk
fyrir því hversu langt er hægt að
fara í gönguferðum og við vildum
prufa að víkka þetta aðeins út með
þessu móti,“ segir Ingibjörg.
Ferðalagið er ókeypis en þar
sem sætafjöldi er takmarkaður
þarf að skrá þátttöku fyrir 21.
febrúar í síma 563-1717 eða með
tölvupósti: kristin.vidarsdott-
ir@reykjavik.is. ■
Rúntað um söguslóðir
ÚLFHILDUR DAGSDÓTTIR Mun ásamt
Márgréti Árnadóttur leiða rútufarþega
Borgarbókasafnsins um sögusvið íslenskra
bókmennta í Reykjavík.
GUÐBERGUR BERGS-
SON RITHÖFUNDUR
HALLDÓR GUÐMUNDSSON
> SKRIFAR UM BÓKMENNTIR
HEILDARLISTI
1 SUMARLJ., OG SVO KEMUR NÓTTINJÓN KALMAN STEFÁNSSON
2 HROKI OG HLEYPIDÓMARJANE AUSTEN
3 ÍSLANDSATLASHANS H. HANSEN
4 HVAR ER VALLI?MARTIN HANDFORD
5 ENDALAUS ORKAJUDITH MILLDGE
6 LOST IN ICELAND SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
7 SP.-ÍSL. / ÍSL.-SPÆNSK ORÐABÓKORÐABÓKAÚTGÁFAN
8 RONJA RÆNINGJADÓTTIRASTRID LINDGREN
9 ÞRIÐJA TÁKNIÐYRSA SIGURÐARDÓTTIR
10 VIÐ ENDA HRINGSINSTOM EGELAND
SKÁLDVERK - KILJUR
1 HROKI OG HLEYPIDÓMARJANE AUSTEN
2 MINNINGAR GEISJUARTHUR GOLDEN
3 DAUÐARÓSIRARNALDUR INDRIÐASON
4 BLÓÐSKULDMICHAEL CONNELLY
5 MÝRINARNALDUR INDRIÐASON
6 ENGLAR OG DJÖFLARDAN BROWN
7 GRAFARÞÖGNARNALDUR INDRIÐASON
8 ALKEMISTINNPAOLO COELHO
9 MÓÐIR Í HJÁVERKUMALLISON PEARSON
10 KARÍTAS ÁN TITILSKRISTÍN MARJA BALDURSDÓTTIR
„Vika leið, og ég hafði ekki
fengið skilaboð frá neinum.
Tómarúmið, sem ég upplifði
þar með, olli mér meiri hrell-
ingum en allt annað sem við
höfðum áður lent í. Veggirnir í
íbúðinni ætluðu að kæfa mig á
sekúndufresti, ég varð að beita
mig hörðu til að öskra ekki upp
yfir mig.“
- Liza Marklund gerir angist konu sem er á flótta undan
ofbeldisfullum eiginmanni sínum frábær skil í Friðlandi.
LISTARNIR ERU GERÐIR ÚT FRÁ SÖLU DAGANA 08.02.06 - 14.02.06
Í PENNANUM EYMUNDSSON OG BÓKABÚÐ MÁLS OG MENNINGAR
METSÖLULISTINN