Fréttablaðið - 19.02.2006, Page 69
FRÉTTIR AF FÓLKI
Britney Spears segist hlakka til að snúa aftur í poppheiminn.
„Þetta hljómar kannski
furðulega en ég
sakna þess að ferð-
ast, sjá framandi
staði, vera með
dönsurunum og
skemmta mér,“
sagði hún og
bætti við að
henni fynd-
ist enginn
hafa komið
í hennar
stað. „Ég
hef ekki
enn séð
nokkurn
sem staðið hefur sig stórkostlega. Þetta
hefur verið frekar leiðinlegt og enginn
hefur heillað mig upp úr skónum.“
Heath Ledger segist ansi skeptískur á að hann vinni óskarsverðlaunin
sem besti leikari í aðalhlutverki vegna
þess að hinir sem
eru tilnefndir eru of
góðir. Hann keppir
við Philip Seymour
Hoffman, Joaquin
Phoenix, Terrence
Howard og David
Strathairn um verð-
launin. „Það eru
svo margir í
þessum hópi
sem eiga
verðlaunin
skilin. Ég
er að sjálfsögðu stoltur af því að vera
tilnefndur en það er líka frábært að taka
þátt í kvikmynd sem vinnur svo mörg
verðlaun og er svona vel tekið,“ sagði
hann hógvær.
Sögusagnir hafa verið á kreiki um að hljómsveitin
Coldplay ætli að hætta
eftir að meðlimir
hennar tóku á móti
verðlaunum á Brit-
verðlaunahátíðinni.
Þar sagði Chris Martin;
„Fólk er orðið leitt
á okkur og
við líka. Þið
munuð ekki
sjá okkur í
mörg, mörg
ár. Í alvöru.“
Talsmaður
hans sagði þó
eftir tónleik-
ana að orð
Martins þýddu
alls ekki að hljómsveitin væri að leggja
upp laupana. „Þeir munu aðeins taka
sér hvíld áður en þeir byrja að vinna í
fjórðu plötunni.“
Jennifer Lopez hefur ljóstrað upp leyndarmálinu á bak við fegurð
hennar og segir
svefninn helsta
vopnið.
„Svefninn er
mikilvægastur.
Ég reyni að
sofa að minnsta
kost í átta tíma á
hverri nóttu. Ég
held að svefninn
sé það sem virkar
best en einnig vatn
og góð hreinsi-
mjólk,“ sagði hún.
[UMFJÖLLUN]
TÓNLIST
Ryan Adams hefur á ferli sínum
verið mjög mistækur. Stundum hef
ég fengið á tilfinninguna að hann
elski sviðsljósið örlítið of mikið.
Hann sé of viss um eigin snilligáfu
og flýti sér að gefa út plötur áður
en hann er með nægilega skotheld-
an pakka til þess að heilla gagn-
rýnendur, grúskara og rest upp úr
skónum.
Hann er svo skapandi, og svo
ákveðinn í að leyfa engu að liggja
kyrru, að hann hefur gefið út átta
breiðskífur á þeim sex árum sem
eru liðin frá frábærri frumraun
hans, Heartbreaker. Engin þeirra
hefur náð að standa undir vænting-
um miðað við þá plötu. Ryan Adams
var staðráðinn í því að gefa út þrjár
plötur á síðasta ári og þessi hér, 29,
er sú síðasta í röðinni. Hún líður
örlítið fyrir það. Það verður seint
tekið af Adams að hann er mjög
næmur lagahöfundur og flytjandi.
Ég man ekki eftir að hafa hann heyrt
syngja betur en á þessari plötu.
Miðað við hversu hratt platan var
unnin þá ætti ekki að koma neinum
á óvart að heyra að útsetningar séu
mjög einfaldar og vissulega hefði
verið hægt að krydda sum lögin
örlítið meira, en í heildina virkar
þetta vel. Lagið Nightbirds er sér-
staklega smekklega unnið, með til-
heyrandi gítarendurvarpi á réttum
stöðum sem skellur á eyrum hlust-
andans eins og brim á klettum á
hvassri nóttu.
Þetta er nokkuð tilfinninga-
þrungin plata og því kemur mér
ekkert á óvart að hún skuli fá mis-
jafna dóma í erlendu pressunni. Við
áttum samt góðar stundir saman.
Við Ryan höfum ekki náð svona vel
saman síðan ég renndi frumraun
hans í gegn í fyrsta skiptið.
Birgir Örn Steinarsson
Þríleik lokað
RYAN ADAMS: 29
Niðurstaða: Ryan Adams endar 2005 þríleik
sinn með plötu sem er hlaðin tilfinningum
og fegurð. Líklegast besta plata hans frá því
að hann gaf út frábæra frumraun sína fyrir
sex árum.