Fréttablaðið - 19.02.2006, Síða 70
30 19. febrúar 2006 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
KR eða Stjarnan? Bæði.
Hvernig er formið? Ágætt.
Guðjón Þórðarson eða Atli
Eðvaldsson? Báðir.
Willum Þór Þórsson eða Pétur
Pétursson? Báðir.
Hvor titillinn var sætari, 1999 eða
2000? Get ekki gert upp á milli sigra.
Hefurðu þurft að hafa afskipti af
samherja í lögreglustarfinu? Nei.
Hefur handtekið fótboltamann?
Hér hvílir þagnarskylda.
Af hverju tekurðu fram skóna á
ný? Til að komast í form.
Muntu spila fram yfir fertugt? Það
er ólíklegt.
Efiðasti andstæðingur á ferlinum?
Margir góðir, get ekkert gert upp á
milli.
Besti samherji á ferlinum? Margir
góðir.
Auðveldasti andstæðingur á ferlin-
um? Enginn sérstakur.
KR er.... hverfisfélag Reykjavíkur.
Að vera lögga er... skemmtilegt.
MEÐ ÞORMÓÐI
EGILSSYNI60 SEKÚNDUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
FEBRÚAR
16 17 18 19 20 21 22
Sunnudagur
■ ■ LEIKIR
18.00 Haukar og Fram mætast
í DHL-deild kvenna í handbolta á
Ásvöllum.
■ ■ SJÓNVARP
09.10 US PGA Tour á Sýn.
12.10 Enska bikarkeppnin á Sýn
Útsending frá leik Liverpool og
Man. Utd í gær.
13.05 Enska knattspyrnan á
Enska boltanum. Bein útsending frá
leik Tottenham og Wigan í ensku
úrvalsdeildinni.
13.50 Ítalski boltinn á Sýn.
15.50 Enska bikarkeppnin á Sýn
Bein útsending frá leik Chelsea og
Colchester.
18.25 Enska bikarkeppnin á Sýn
Bein útsending frá leik Aston Villa
og Man. City.
20.25 Nissan-Open á Sýn. Bein
útsending frá þessum móti sem er
hluti af PGA-mótaröðinni.
23.30 NBA á Sýn. Sýndur verður
leikur Boston og Chicago í úrslita-
keppninni 1986.
01.30 NBA á Sýn. Bein útsending
frá Stjörnuleiknum í NBA-deildinni.
> KSÍ hefur sótt um
Knattspyrnusamband Íslands hefur sóst
formlega eftir því að lið frá Íslandi öðlist
þátttökurétt í „Royal League“ deildinni,
þar sem bestu liðin á Norðurlöndunum
spila á veturna. Þetta staðfestir Ómar
Smárason, upplýsingafulltrúi KSÍ, við
danska blaðið Berlingske Tidende um
helgina. Ekki er þó víst að
íslenskt lið fái þátttöku-
rétt þar sem forráða-
menn deildarinnar eru
ekkert sérstaklega
hrifnir að því að
spila innanhúss, en
sú þyrfti raunin að
vera þegar spilað
væri á Íslandi. „Við
erum með frábæra
höll en málið er í
höndum stjórnenda
deildarinnar,“ segir
Ómar.
Flott hjá Dagnýju
Dagný Linda Kristjánsdóttir hafnaði í 28.
sæti alpatvíkeppninnar á ÓL í Tórínó í
gær sem er mjög viðunandi árangur fyrir
skíðadrottninguna. „Aðalmarkmiðið hjá
mér var að komast niður svigið til að
bæta stigastöðuna mína og það tókst,“
sagði Dagný Linda við Fréttablaðið í
gær. Króatíska skíðadrottningin Janica
Kostelic sigraði og varði þannig ólymp-
íumeistaratitil sinn í greininni.
KÖRFUBOLTI „Þetta er mjög gleði-
legt. Stelpurnar voru skynsamar
í fyrri hálfleik en vörnin hefði
getað verið betri. Við löguðum
það síðan í seinni hálfleik og
Maria Conlon átti frábæran leik
og stjórnaði þessu eins og hers-
höfðingi,“ sagði Ívar Ásgríms-
son, þjálfari ÍS, eftir að hans
lið vann bikarmeistaratitilinn í
körfuknattleik kvenna með því
að leggja Grindavík að velli 88-
73 í úrslitaleik í Laugardalshöll
í gær
„Við lögðum upp með það að
passa Jericu Watson mjög vel
og það heppnaðist nokkuð vel.
Nú verður bara fagnað fram
eftir kvöldi,“ sagði Ívar. Stúdín-
ur voru með forystu nær allan
leikinn og fóru inn í hálfleikinn
með eins stigs forskot 35-34. Þær
voru síðan með fimm stiga for-
ystu fyrir síðasta leikhlutann en í
honum var aldrei spurning hvort
liðið færi með sigur af hólmi og á
endanum unnu þær með fimmtán
stiga mun.
Maria Conlon átti sannkall-
aðan stórleik fyrir ÍS og skoraði
25 stig en liðið lék vel sem heild
og spilaði leikinn af mikilli skyn-
semi. Jerica Watson var besti
leikmaðurinn í hinu unga Grinda-
víkurliði og skoraði 26 stig ásamt
því að taka tólf fráköst.
„Þetta gekk vel í byrjun en svo
misstum við dampinn og einbeit-
ingin var ekki upp á það besta.
Ekkert af því sem ÍS gerði kom
okkur á óvart en við náðum ekki
að framkvæma það sem við ætl-
uðum að gera á móti og því fór
sem fór. Við erum með ungt lið
sem fær ákveðna reynslu og ég
er mjög stoltur af stelpunum að
komast alla leið í úrslitaleikinn,“
sagði Unndór Sigurðsson, þjálf-
ari Grindavíkur. - egm
Stúdínur urðu bikarmeistarar í kvennaflokki:
Unnu á skynseminni
BIKARINN KYSSTUR Signý Hermanns-
dóttir átti stórleik með ÍS í úrslitaleiknum
í gær og lagði grunninn að sigri liðsins
með góðri vörn á Jericu Watson. Hér
tekur hún á móti bikarnum í leikslok.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
KÖRFUBOLTI Það var mikil spenna
fyrir úrslitaleik Grindavíkur og
Keflavíkur í bikarkeppninni sem
fram fór í Laugardalshöll í gær
enda um Suðurnesjaslag að ræða
og ekkert gefið eftir þegar þessi
tvö lið mætast. Það var þó ljóst
snemma leiks að það var Grinda-
víkurliðið sem mætti ákveðnara
til leiks og viljinn virtist vera mun
meiri þeirra meginn. Á endanum
unnu þeir öruggan og sanngjarn-
an 93-78 sigur þar sem mestu
munaði um varnarleik liðanna..
Í upphafi fyrsta leikhluta var
mikið jafnræði með liðunum,
Grindvíkingar byrjuðu betur en
Keflvíkingar komust síðan yfir
14-13, það var í eina skiptið í leikn-
um sem þeir voru með forystuna.
Seinni helmingur leikhlutans var
algjörlega eign þeirra gulklæddu,
Keflvíkingar gerðu slæm mis-
tök í sókninni og voru níu stigum
undir eftir fyrsta leikhlutann.
Grindvíkingar voru komnir á
bragðið og í öðrum leikhluta fóru
þeir á kostum og skoruðu fimm
þriggja stiga körfur, þar af skor-
aði Helgi Jónas Guðfinnson tvær.
Þeir voru 55-34 yfir í hálfleik.
Eftir þetta var á brattan að
sækja fyrir Keflvíkinga og þrátt
fyrir að þeir næðu aðeins að klóra í
bakkann og minnka forystu móth-
erja sinna þá var sigur Grindavík-
ur aldrei í hættu. Stemningin var
þeirra megin og að lokum varð
fimmtán stiga sanngjarn sigur
liðsins staðreynd.
Jeremiah Johnson var stiga-
hæstur hjá Grindavík með 26 stig
en auk þess átti hann átta stoð-
sendingar. Helgi Jónas Guðfins-
son skoraði 23 stig og átti fjórar
stoðsetningar en hvor þeirra tók
sex fráköst.
Hjá Keflavík var það A.J. Moye
sem skoraði mest eða 20 stig og þá
tók hann tíu fráköst.
-egm
Betri á öllum sviðum
Grindavík varð í gær bikarmeistari í karlaflokki á öruggan hátt og lögðu Kefl-
víkinga að velli 93-78. Grindvíkingar komu einfaldlega miklu ákveðnari til leiks
og var sigur þeirra verðskuldaður.
BIKARMEISTARARNIR Leikmenn Grindavíkur réðu sér vart fyrir kæti eftir sigurinn á Keflvíkingum í Laugardalshöllinni. Hvattir áfram af
mögnuðu stuðningsmannaliði keyrðu þeir andstæðinga sína gjörsamlega á kaf í fyrri hálfleik og eftir það má segja að sigurinn hafi aldrei
verið í hættu. Jeremiah Johnson, sem er lengst til hægri á myndinni, var magnaður í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI „Þetta er alveg æðis-
legt. Við náðum að gera það sem
við ætluðum að gera og það gekk
allt upp. Eins og allir vita er
Grindavíkurliðið mun hraðara og
það þurftum við að stöðva. Svo
ætluðum við auðvitað að stöðva
þeirra lykilmenn og það tókst
bara vel,“ sagði Signý Hermanns-
dóttir, fyrirliði ÍS, eftir sigur liðs-
ins í bikarkeppninni. Signý spilaði
mjög vel í leiknum, gerði 23 stig
og tók tuttugu fráköst, þar af
fimmtán varnarfráköst.
„Við spiluðum frábærlega.
Maria Conlon smellpassar í okkar
lið og er einmitt leikmaðurinn
sem við höfum þurft á að halda í
allan vetur. Hún veit alveg hvað
hún er að gera,“ sagði Signý.
Signý Hermannsdóttir, ÍS:
Allt gekk upp
STÚDÍNUR Stigu trylltan stríðsdans eftir
leikinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
KÖRFUBOLTI „Grindavík var að
spila mjög vel í þessum leik en
við vorum hinsvegar bara léleg-
ir. Það er eiginlega varla hægt að
segja meira um það. Við mættum
óákveðnir og slakir til leiks,“ sagði
Sigurður Ingimundarson, þjálfari
Keflavíkur eftir úrslitaleikinn í
gær. Sigurður var að vonum ekki
sáttur við frammistöðu síns liðs.
„Þetta er mjög svekkjandi, það
er alltaf leiðinlegt að tapa. Ég vil
þó óska Grindavík til hamingju
með þennan sigur,“ sagði Sigurð-
ur. -egm
Sigurður Ingimundarson:
Vorum ekki
nógu áveðnir
KÖRFUBOLTI „Þegar upp er stað-
ið þá spiluðum við þennan leik
gríðarlega vel og vorum sterkir
á svellinu. Keflavík hefur frá-
bært lið með mikla sigurvegara
innan sinna raða sem við bárum
mikla virðingu fyrir en óttuðumst
ekki. Við vissum að ekkert annað
en toppleikur myndi duga til sig-
urs og það tókst. Hugarfarið var
alveg rétt þegar á reyndi,“ sagði
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Grindavíkur, kampakátur eftir
að lið hans hafði fengið bikarinn
í hendurnar.
Páll Axel Vilbergsson, leikmað-
ur Grindvíkinga, var einnig í sig-
urvímu eftir leikinn. Hann skor-
aði sjö stig og tók alls tólf fráköst.
„Við mættum reiðubúnir í leikinn
og viljinn var sérstaklega til stað-
ar. Við ætluðum allan tímann að
taka dolluna og það var frábært
að upplifa þetta. Eftir smá ströggl
í byrjun náðum við góðu skriði,
stemningin kom í okkar herbúðir
og áhorfendur komu með,“ sagði
Páll. -egm
Friðrik Ingi og Páll Axel:
Spiluðum
gríðarlega vel
GRÁTI NÆST Leikmenn Keflavíkur voru afar
niðurlútir í leikslok enda voru þeir langt frá
sínu besta. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM